Erlent

Hlakka til heimferðar frá Írak

Æðsti hershöfðingi Bandaríkjanna í Írak segir að með þingkosningunum þar í landi um helgina hafi verið stigið stórt skref í brottflutningi bandarískra hermanna frá Írak.

Erlent

Danir á hálum ís

Lögreglan á Jótlandi hefur gefist upp við að telja umferðaróhöppin á þjóðvegi E20 til Esbjerg sem orðið hafa í dag.

Erlent

Harður jarðskjálfti í Tyrklandi

Á sjötta tug eru látnir og fjölmargir slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærðinni sex á Richter reið yfir í Tyrklandi í nótt. Búist er við að tala látinna fari hækkandi. Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherrans Recep Tayyip Erdoga að skjálftinn átti upptök sín í Elazig héraði sem er í austurhluta landsins. Öflugir eftirskjálftar hafa orðið undanfarnar klukkustundir.

Erlent

Morðingi James litla var með barnaklám

Ástæðan fyrir því að Jon Venables, annar þeirra sem myrti James litla Bulger, árið 1993 var handtekinn í lok febrúar þegar hann braut skilorð voru ásakanir um vörslu barnakláms. Breskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta af hverju Venables var handtekinn.

Erlent

Skipulagði morð á tveimur börnum

Þrjátíu og tveggja ára gamall bandarískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa skipulagt morð á tveimur börnum sem er hann talinn hafa misnotað kynferðislega. Maðurinn sem hefur að undanförnu setið í varðhaldi í Chicago bauð öðrum manni tæplega 15 þúsund dollara, eða tæpar tvær milljónir króna, fyrir að drepa börnin og foreldra þeirra.

Erlent

Ræningjarnir ófundnir

Þýska lögreglan hefur enn ekki haft hendur í hári fjögurra manna sem réðust inn á hótel í Berlín á laugardag og rændu vinningsfé á pókermóti sem haldið var á hótelinu. Talið er að ræningjarnir hafi ekki komist á brott með allt vinningsféð en skipuleggjendur mótsins fullyrða að mennirnir hafi stolið 250 þúsund evrum eða tæplega 44 milljónum króna.

Erlent

Varð fyrir jeppa á hraðbraut

Sex ára gömul stúlka lést þegar hún varð fyrir jeppa á miðri hraðbraut nálægt borginni Minneapolis í Bandaríkjunum í gær. Hún hafði verið týnd í rúma klukkustund en ekki er vitað hvernig hún komst inn á hraðbrautina en meðfram henni er öryggisgirðing sem á að varna fólki frá því að komast inn á brautina. Lögregla fer með rannsókn málsins og kannar meðal annars hvernig stúlkan komst af leikvelli í grennd við hraðbrautina.

Erlent

Fjörutíu létu lífið í Írak

Að minnsta kosti 40 létu lífið í árásum í Írak í tengslum við þingkosningarnar þar í landi í gær. Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hótuðu árásum í aðdraganda kosninganna og lýstu yfir útgöngubanni í gær þegar þau vöruðu alla þá sem ætluðu fara út til að kjósa að þeir yrðu berskjaldaðir gagnvart reiði Allah. Þrátt fyrir það segja yfirvöld að kjörsókn hafi verið yfir 50% en 19 milljónir Íraka voru á kjörskrá.

Erlent

Bigelow besti leikstjórinn fyrst kvenna

Spennumyndin The Hurt Locker kom, sá og sigraði þegar Óskarsverðlaunin voru afhend í 82. sinn í Hollywood, í nótt. Myndin vann til sex verðlauna, þar á meðal sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn.

Erlent

Obama dáist að hugrekki kjósenda í Írak

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama segist dást að hugrekki þeirra Íraka sem hafa farið á kjörstaði í dag en ekki látið undan ofbeldisöldunni sem nú ríður yfir landið og hótunum hryðjuverkamanna um ódæði. Þegar hafa 35 látist í skotbardögum og hryðjuverki sem grandaði 25 Írökum.

Erlent

Talsmaður Al-Kaída handsamaður

Talsmaður Al-Kaída, Adam Yahiye Gadahn, hefur verið handsamaður af bandarískum yfirvöldum en Adam þykir mikill fengur í þrotlausri baráttu Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum.

Erlent

Þingkosningar í skugga hryðjuverka

Þingkosningarnar í Írak fara fram í skugga hryðjuverkaárása, en að minnsta 30 hafa látið lífið og á sjötta tug manna særst í sprengjuárásum í Írak í morgun eftir að kjörstaðir opnuðu.

Erlent

Um 140 milljarðar króna í mútur

Spilling er enn útbreidd í Grikklandi, þrátt fyrir nærri þriggja áratuga aðild þess að Evrópu­sambandinu. Samtökin Transparency International, sem fylgjast með spillingu í ríkjum heims, halda því fram að almenningur í Grikklandi hafi árið 2009 greitt nærri 800 milljónir evra í mútur, eða hátt í 140 milljarða íslenskra króna.

Erlent

Hvíta húsið ætlar að koma í veg fyrir ályktun um þjóðarmorð

Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að koma í veg fyrir að umdeild þingsályktun verði samþykkt á Bandaríska þinginu en þar segir að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimstyrjöldinni. Málið hefur vakið upp miklar deilur á milli Bandaríkjamanna og Tyrkja og hafa Tyrkir meðal annars kallað sendiherra sinn heim frá Washington.

Erlent

Clinton heitir meiri hjálp í baráttunni við dópsmyglara

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur lofað því að Bandaríkjamenn láti meira til sín taka í baráttunni við eiturlyfjahringi í Mið-Ameríku. „Við ætlum að efla enn frekar samvinnu okkar á næstu mánuðum og árum,“ sagði Clinton en í dag lauk fimm daga ferð hennar um Suður-Ameríku. Í dag var hún stödd í Guatemala en ríki Mið-Ameríku verða illa úti í eiturlyfjastríðinu sem helst hefur geisað í Mexíkó að norðanverðu og í Kólombíu að sunnanverðu.

Erlent

Rekinn fyrir að gefa ekki út viðvörun eftir skjálftann

Stjórnvöld í Chile hafa rekið forstjóra stofnunarinnar sem hefði átt að gefa út flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálftans sem varð 800 manns að bana í síðustu viku. Stofnunin er hluti af sjóher Chile og hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast ekki strax við. Sjóherinn hefur einnig hafið rannsókn á því hvernig staðið varð að málum í hamförunum.

Erlent

Sjóræningjar taka norskt olíuskip

Sjóræningjar náðu í dag valdi á norsku olíuflutningaskipi undan strönd Madagaskar og er því nú siglt í átt að Sómalíu. Skipið heitir UBT Ocean og var það á leiðinni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Tanzaníu að því er talsmaður Brovigtank skipafélagsins segir í samtali við Reuters fréttastofuna.

Erlent

Prinsessa í einelti

Aiko prinsessa í Japan hefur misst úr nokkra daga í skóla vegna eineltis, að sögn japönsku hirðarinnar. Prinsessan er átta ára gömul.

Erlent

Íslendingur grunaður um morð í Danmörku

Tuttugu og þriggja ára gamall íslenskur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi í Danmörku grunaður um morð á 41 árs gamalli konu. Konan var skotin til bana við hús sitt í Lunde nálægt bænum Horsens í Danmörku á þriðjudaginn.

Erlent

Gerir grein fyrir stuðningi sínum við Íraksstríðið

Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, mun í dag bera vitni vegna rannsóknar á aðdraganda á þætti Breta í innrásinni í Írak árið 2003. Vitni hafa þegar sagt að Brown hafi átt stóran þátt í ákvörðuninni. Sjálfur sagði Brown að ástæða þess að hann hafi stutt innrásina hefði ekki verið grunur um að Írakar byggju yfir efnavopnum. Ástæðan hafi frekar verið sú að Írak hafi hunsað samþykktir Sameinuðu þjóðanna.

Erlent

Skotið á tvo lögreglumenn nærri Pentagon

Skotið var á tvo lögreglumenn á neðanjarðarlestarstöð, nærri varnarmálaráðuneytinu í Pentagon. Lögreglumennirnir særðust í árásinni, en ekki er greint frá hversu alvarlega. Árásarmaðurinn, sem er karlmaður á fertugsaldri, særðist einnig i árásinni.

Erlent

Fjöldi skipa festist í Eystrasalti

Um 50 skip hafa setið föst í ís í Eystrasalti frá því í gær. Fjögur skip hafa losnað með hjálp ísbrjóta. Sum þessara skipa sigldu í strand milli Stokkhólms og Álandseyja en önnur eru föst norðar, í Helsingjabotni.

Erlent

Vill atkvæðagreiðslu án tafar

Barack Obama Bandaríkjaforseti berst enn við að koma endanlegri mynd á heilbrigðisfrumvarpið, sem á að tryggja nánast öllum Bandaríkjamönnum sjúkra- og slysatryggingar.

Erlent