Erlent

Sextugur karlamaður slasaðist í Keflavík

Karlmaður á sextugsaldri, sem slasaðist í Keflavík í gær, þegar lok af loftþrýstigeymi þeyttist framan í hann , gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi og er ekki í lífshættu.

Erlent

Landamærin að Gasa verði opnuð alveg

Utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, Catherine Ashton, hvetur Ísraela til að opna landamærin að Gasasvæðinu algjörlega. Hún heimsótti svæðið í gær og ræddi meðal annars við fólk um það hvort líf þeirra hefði breyst eftir að einangruninni á svæðinu var aflétt að hluta fyrr í mánuðinum.

Erlent

Fótboltaáhugamenn fari í HIV-próf

Læknar í Bretlandi ráðleggja nú fótboltaáhugamönnum sem sóttu Suður-Afríku heim á heimsmeistaramótinu í fótbolta að gangast undir HIV-próf, hafi þeir stundað óvarið kynlíf. Nærri 25 þúsund áhangendur enska landsliðsins eru nýkomnir heim af mótinu en talið er að um einn af hverjum fimm fullorðnum einstaklingum í Suður-Afríku séu smitaðir af alnæmisveirunni.

Erlent

17 myrtir í afmælisveislu

Byssumenn hófu skotárás í afmælisveislu í borg í Coahuila-ríki í Mexíkó á sunnudagsmorgun með þeim afleiðingum að 17 manns létust, þar á meðal afmælisbarnið. Talið er að morðin tengist eiturlyfjastríðinu í Mexíkó en glæpagengi hafa barist um völdin á svæðinu, sem er ein aðalsmyglleið fyrir eiturlyf inn í Bandaríkin.

Erlent

Mikil flóð í Kína

Mikil flóð eru í Kína. Fimmtán hafa látist og tuttugu og einn hefur týnst í miklum flóðum í Sichuan héraðinu.

Erlent

Írar geta lært mikið af Íslendingum

Bernard Allen, írskur stjórnmálafræðingur og formaður nefndar sem rannsakar ástæður og orsakir efnahagshrunsins á Írlandi, segir að Írar ættu að líta til Íslands við rannsóknina á efnahagshruninu árið 2008.

Erlent

Sjálfsmorðsárásir í Írak: Yfir 50 látnir

Að minnsta kosti fjörutíu og þrír létust í sjálfsmorðsárás í höfuðborg Íraks, Bagdad í morgun. Þá er talið að fjörutíu hafi særst í árásinni. Samkvæmt upplýsingum frá írösku lögreglunni beindist tilræðið að meðlimum súnnískra hersveita.

Erlent

Hillary Clinton til Pakistan

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lenti á flugvellinum í Íslamabad í Pakistan klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma en hún er í opinberri heimsókn í landinu.

Erlent

Beinbrotnaði er hún datt fram úr rúminu

Leikkonan Zsa Zsa Gabor var flutt á sjúkrahús í Hollywood í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa dottið fram úr rúmi sínu. Leikkonan, sem er 93 ára, beinbrotnaði við fallið en hún var að horfa á sjónvarpið þegar slysið átti sér stað. Að öðru leyti er ekki vitað um liðan hennar.

Erlent

Fjórtán létust í rútuslysi

Að minnsta kosti fjórtán létu lífið og tólf slösuðust í Albaníu þegar rúta keyrði útaf fjallvegi í norðurhluta landsins og féll tugi metra ofan í gljúfur. Nokkrir þeirra sem slösuðust eru enn í lífshættu og því ekki útilokað að tala látinna kunni að hækka.

Erlent

Fresta endurskoðun á efnahagsáætlun

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa frestað endurskoðun á efnahagsáætlun Ungverja vegna ágreinings um niðurskurð í opinberum útgjöldum. AGS og ESB vilja sjá harkalegri niðurskurð og telja að stjórnvöld í Ungverjalandi hafi ekki gengið nægilega langt.

Erlent

Neyðarástand í Rússlandi vegna hitabylgju

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í 19 héruðum Rússlands vegna mikilla hitabylgju. Eigendur fiskeldisstöðva í Kostroma héraði hafa þurft að henda fiski sem drepist hefur í kvíum vegna hitans. Í einni fiskeldisstöðinni þurftu menn að henda tólf tonnum af styrju og silungi.

Erlent

Fjölmenn jarðaför í Íran

Tugir þúsunda manna mættu í jarðarför 27 manna sem féllu í tveimur sprengjuárásum í borginni Zahedan í Íran á fimmtudag. Lögregla segist hafa handtekið 40 manns sem grunaðir eru um hlutdeild í sprengjutilræðinu þegar tveir menn sprengdu sig í loft upp skammt fá bænahúsi í borginni.

Erlent

Osama bin Laden verður afi

Omar bin Laden, fjórði elsti sonur Osama bin Laden, telur að faðir sinn sé á lífi. Hann veit hins vegar ekki Osama heldur sig.

Erlent

Stöðvun olíuleka gengur vel

Stöðvun olíulekans í Mexíkóflóa gengur vel að sögn forsvarsmanna olíufélagsins BP. Hann var stöðvaður í tilraunaskyni á fimmtudag til þess að kanna ástand olíuborholunnar.

Erlent

Spánverjar vilja fá kolkrabbann

Kolkrabbinn Páll, sem varð heimsfrægur fyrir að spá rétt um úrslit leikja þýska landsliðsins á HM, gæti verið á leið til Spánar. Páll spáði Spánverjum sigri gegn Hollendingum í úrslitaleik mótsins.

Erlent