Erlent
Á lífi eftir 17 daga innilokaðir í námu Námamennirnir 33 sem lokuðust inni í námu í Chile fyrir rúmum hálfum mánuði eru á lífi. Það gæti tekið mánuði að ná mönnunum úr prísundinni. Erlent 23.8.2010 07:03
Wyclef áfrýjar Rapparinn Wyclef Jean hefur ákveðið að áfrýja úrskurði yfirkjörstjórnar Haítí sem meinaði honum fyrir helgi að bjóða sig fram til forsetaembættis landsins. Wyclef er ekki kjörgengur þar sem hann hefur ekki búið samfellt í fimm ár í landinu. Rapparinn bjó á Haítí þar til hann var níu ára gamall en hefur búið í Bandaríkjunum síðan þar sem hann gerði það meðal annars gott með hljómsveitinni Fugees. Erlent 23.8.2010 06:59
Sonur Mubaraks býður fram Auglýsingaspjöld þess efnis að Gamal Mubarak, yngri sonur Hosni Mubarak forseta Egyptalands, sé næsti leiðtogi Egyptalands er nú víða að finna í Egyptalandi. Erlent 23.8.2010 06:30
Netanyahu vill koma á óvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið í skyn að friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna, sem hefjast aftur í næstu viku, geti skilað árangri. Það er þó með þeim fyrirvara að Palestínumenn gangi að kröfum Ísraela. Erlent 23.8.2010 06:00
Stjórnarandstæðingar teknir höndum Rússneska lögreglan kom í veg fyrir að um hundrað stjórnarandstæðingar færu í fánagöngu í gegnum miðborg Moskvu í gær og handtók þrjá af leiðtogum stjórnarandstöðunnar. Þar á meðal var Boris Nemtsov sem talið er að komi til með að leiða stjórnarandstöðuna í næstu kosningum. Erlent 23.8.2010 05:00
Fjórir bandarískir hermenn drepnir Fjórir bandarískir hermenn féllu í austur- og suðurhluta Afganistan í gær, að sögn NATO. Þrír þeirra létust í átökum við uppreisnar-menn en einn lést þegar hann varð fyrir heimagerðri sprengju. Þá varð fyrrum skæruliðaleiðtoginn Slaam Pahlawan fyrir bílsprengju í Faryab-héraði í norðurhluta landsins. Erlent 23.8.2010 04:00
Hart deilt um bænahús í New York í morgun Það var handagangur í öskjunni í New York í morgun þegar stuðningsmenn og andstæðingar umdeildrar mosku, sem fyrirhugað er að reisa nærri rústum World Trade Center, mættust í morgun. Erlent 22.8.2010 21:00
Pakistanar flýja heimili sín - ástandið grafalvarlegt Tugir þúsunda eru enn að flýja af flóðasvæðunum í Pakistan, þremur vikum eftir að flóðin hófust. Erlent 22.8.2010 14:32
Leitað að bíræfnum málverkaþjófum Málverk eftir Vincent Van Gogh sem metið er á um 6 milljarða hefur ekki enn komist í leitirnar. Talið er að bíræfnir þjófar hafi stolið verkinu. Erlent 22.8.2010 13:28
Óvissa eftir þingkosningar í Ástralíu Vika gæti liðið áður en endanleg úrslit liggja fyrir í þingkosningum sem fram fóru í Ástralíu í gær. Erlent 22.8.2010 09:55
Tæplega 100 þúsund fluttir á brott frá Dandong Níutíu og fjögur þúsund manns voru fluttir frá borginni Dandong í norðurhluta Kína í dag eftir að Yalu-áin flaut yfir bakka sína vegna mikilla rigninga á svæðinu að undanförnu. Þriggja manna er saknað í borginni. Erlent 22.8.2010 09:52
Joly býður sig fram til forseta Hin norsk/franska Eva Joly sem er hvað þekktust hér á landi fyrir ráðgjafastörf við embætti sérstaks saksóknara, er sögð ætla að bjóða sig fram til forseta Frakklands. Erlent 22.8.2010 09:49
Flytja út vopn fyrir milljarða Vopnaframleiðendur í Noregi hafa þénað ríkulega á stríðunum í Afganistan og Írak. Nýjar sölutölur benda til þess að vopnaútflutningur frá Noregi hafi þrefaldast frá árinu 2004. Erlent 22.8.2010 08:00
Forsvarsmaður Wikileaks eftirlýstur fyrir nauðgun í Svíþjóð Forsvarsmaður uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, Julian Assange, er eftirlýstur fyrir nauðgun í Svíþjóð samkvæmt erlendum fjölmiðlum. Erlent 21.8.2010 10:46
Ástralir ganga til kosninga Ástralir ganga að kjörborðinu í dag en mjög mjótt er á munum milli Verkamannaflokksins sem nú fer með stjórn og Frjálslyndaflokksins. Nýir leiðtogar leiða báða flokka. Erlent 21.8.2010 10:00
Byrjaðir að nota kjarnorkueldsneyti í Busher Rússneskir og íranskir verkfræðingar hófu í morgun að koma kjarnorkueldsneyti fyrir í kjarnorkuveri í Busher í suðurhluta Írans, sem er mikilvægt skref í kjarnorkuáætlun Írana. Erlent 21.8.2010 09:51
Tvísýnni kosningar en reiknað var með Julia Gillard komst til valda fyrir tveimur mánuðum, þegar hún hrakti Kevin Rudd úr embætti leiðtoga Verkamannaflokksins. Hún tók við leiðtogaembættinu og jafnframt embætti forsætisráðherra, og í beinu framhaldi af því boðaði hún til kosninga í þeirri von að kjósendur kynnu að meta nýjan leiðtoga sem talaði hreint út. Þannig mætti henni takast að snúa við slæmri útkomu flokksins í skoðanakönnunum. Erlent 21.8.2010 07:00
Loðfílarnir misstu graslendið Loðfílar dóu ekki út fyrir um fjögur þúsund árum vegna þess að menn væru svo duglegir við mammútaveiðar, heldur vegna þess að graslendi eyddist svo mjög að þeim varð ekki lengur líft. Erlent 21.8.2010 06:30
Gefa sér eitt ár til að semja Ísraelsk og palestínsk stjórnvöld hafa fallist á að hefja friðarviðræður á ný í byrjun september. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá þessu í gær. Erlent 21.8.2010 05:30
Þurfa fleiri þyrlur Talsmaður matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Pakistana þurfa nauðsynlega á þyrlum að halda svo hægt sé að koma hjálpargögnum til fólks sem hafa lokast inni á flóðasvæðunum í landinu. Fjölmargar brýr og vegir hafa skemmst í flóðunum sem Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur líkt við hægfara tsunami-flóðbylgju. Emilia Casella, talsmaður matvælahjálparinnar, segir Sameinuðu þjóðirnar einungis hafa tíu þyrlur í Pakistan. Erlent 20.8.2010 23:30
Reyndi að selja albínóa Kenískur karlmaður hlaut 17 ára fangelsisdóm í nágrannaríkinu Tansaníu í dag fyrir að reyna að selja töfralækni samstarfsmann sinn sem er albínói. Töfralæknirinn hugðist borga 180.000 punda eða tæplega 22 milljónir fyrir albínóann Robinson Mkwana. Erlent 20.8.2010 22:37
Vilja Harry Potter smokka af markaði Warner Bros kvikmyndaframleiðandinn hefur stefnt svissneskum smokkaframleiðanda sem hefur selt smokka síðastliðin fjögur ár undir merkjum Harry Potters. Erlent 20.8.2010 15:10
Gos eins og í Eyjafjallajökli í 50 milljóna ljósára fjarlægð Stærðar eldfjall á M87 vetrarbrautinni gýs um þessar mundir og leysir gas úr læðingi. Sérfræðingar NASA geimvísindastofnunarinnar segja að eldfjallinu svipi mjög til eldgossins í Eyjafjallajökli. Erlent 20.8.2010 11:16
Mál bandarísks barnaníðings teygir anga sína til Íslands Ísland kemur við sögu í réttarhöldum yfir Bandaríkjamanni sgrunaður er um misnotkun á ungum drengjum um margra ára skeið. Maðurinn var handtekinn á miðvikudag í Pennsylvaníu og fjölmiðlar í Philadelphiu fjalla um málið í dag. Erlent 20.8.2010 10:53
Rapparinn fær ekki að bjóða sig fram Rapparinn Wyclef Jean sem kom öllum í opna skjöldu fyrir nokkrum vikum og sagðist ætla að bjóða sig fram til forsetaembættis Haíti má ekki bjóða sig fram samkvæmt yfirkjörstjórn landsins. Frá þessu var greint í gær og verður listi yfir frambjóðendur birtur í heild sinni í dag. Erlent 20.8.2010 07:04
Hægir á eftir uppsveifluna Þýska Zew-vísitalan, sem mælir væntingar í viðskiptalífinu, lækkaði úr 21,2 punktum í júlí í 14,0 punkta í síðasta mánuði. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan í apríl í fyrra og bendir til að þýskir fjárfestar séu svartsýnir. Erlent 20.8.2010 02:45
Aukin aðstoð til Pakistans Ríki heims hafa loks tekið við sér og gefið fé til neyðarhjálpar vegna flóðanna í Pakistan, þremur vikum eftir að hörmungarnar hófust. Erlent 20.8.2010 02:45
Um hundrað manns reknir til Rúmeníu Frönsk stjórnvöld sendu í gær nærri hundrað manns til Rúmeníu. Allt voru þetta sígaunar, eða rómar eins og þeir kalla sig sjálfir, sem að mati franskra stjórnvalda dvöldu ólöglega í Frakklandi. Frakkar segjast ætla að senda fleiri þeirra úr landi næstu vikurnar, flesta til Rúmeníu en suma til Búlgaríu. Erlent 20.8.2010 01:00
Framkvæmdin orðin flóknari Ríkisstjórnin í Sviss vill endurnýja tvíhliða samninga ríkisins við Evrópusambandið. Þeir eru orðnir tíu ára gamlir og renna út innan skamms. Doris Leuthard, forseti Sviss, viðurkennir að það verði erfitt að semja við Evrópusambandið um þetta. Bæði hafi Evrópusambandið stækkað mjög þann áratug sem liðinn er síðan tvíhliðasamningurinn var gerður og svo hafi Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins, sem tók gildi á síðasta ári, breytt ýmsu. Erlent 20.8.2010 00:45
Enn eru 50 þúsund eftir í Írak Allar bardagasveitir bandaríska hersins eru nú farnar frá Írak, rúmum sjö árum eftir að innrásin hófst og Saddam Hussein var steypt af stóli. Erlent 20.8.2010 00:30