Sport „
121 122 123 124 125 126 127 128 129 … 334 ›
„Skora á yfirvöld að afturkalla þessa huglausu ákvörðun“ Leikur Aston Villa og ísraelska liðsins Maccabi Tel Aviv í Evrópudeildinni í fótbolta gæti farið fram án aðkomu stuðningsmanna gestaliðsins. Enski boltinn 16.10.2025 23:25
Flytur langt í burtu frá Ítalíu ef liðið hans kemst ekki á HM Þjálfari ítalska fótboltalandsliðsins hótar því að fara í útlegð frá sínu eigin landi ef landsliðið hans kemst ekki á þriðja heimsmeistaramótið í röð. Fótbolti 16.10.2025 23:02
Rúnar Ingi: Glaður að ég þurfti ekki að vera í opnunarleiknum á nýja húsinu Njarðvík vann öflugan útisigur gegn ÍA í Bónusdeild karla í kvöld eftir framlengdan leik. Leikurinn sveiflaðist fram og til baka en Njarðvík vann að lokum 11 stiga sigur, 119-130. Körfubolti 16.10.2025 23:01
Prufa ný VAR-spjöld fyrir þjálfara Alþjóða knattspyrnusambandið er nú að prófa leiðir fyrir þjálfara til að hafa áhrif á það hvort dómarinn verður sendur í skjáinn í leikjum eða ekki. Fótbolti 16.10.2025 22:30
Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 70-79 | Grindvíkingar með fullt hús Grindavík vann níu stiga útisigur gegn Álftanesi 70-79. Grindvíkingar voru undir í hálfleik og lokamínúturnar voru æsispennandi en að lokum varð Grindavík fyrsta liðið til að vinna Álftnesinga í vetur. Körfubolti 16.10.2025 22:02
Uppgjörið: Valur-Ármann 94-83 | Valsmenn í vandræðum með nýliðana Valsmenn fögnuðu sínum fyrsta sigri í Bónus-deild karla í körfubolta í vetur en lentu þó óvænt í vandræðum með nýliða Ármanns sem höfðu steinlegið í fyrstu tveimur leikjum sínum. Körfubolti 16.10.2025 21:50
FIFA segir að Trump geti tekið HM-leiki af bandarískum borgum Donald Trump hótaði borgarstjórum í Bandaríkjunum að hann gæti tekið HM-leiki af þeim. Í fyrstu neitaði FIFA að Bandaríkjaforseti hefði slík völd en nú er komið annað hljóð í FIFA-fólk. Fótbolti 16.10.2025 21:48
Uppgjörið: ÍA - Njarðvík 119-130 | Svakaleg spenna á Skaganum Njarðvíkingar unnu sinn fyrsta leik í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir mættu á Akranes og lögðu Skagamenn með ellefu stigum eftir framlengdan leik, 130-119. Körfubolti 16.10.2025 21:22
Boltinn var inni og Glódís Perla fagnaði dramatískum sigri Glódís Perla Viggósdóttir og félagar í Bayern München unnu dramatískan sigur í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 16.10.2025 21:18
Haukar einir á toppnum og HK á hraðri leið upp töfluna Haukar eru einir á tpppnum eftir sannfærandi sigur á Stjörnunni í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. HK-ingar sóttu tvö stig á Akureyri og fögnuðu þar þriðja deildarsigri sínum í röð. Handbolti 16.10.2025 21:02
Uppgjörið: KR - Þór Þ. 95-75 | Fullkomin byrjun KR heldur áfram KR bar sigurorð af Þór Þorlákshöfn þegar liðin leiddu sama fáka sína í þriðju umferð Bónus-deildar karla á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 95-75 KR-ingnum í vil sem fara vel af stað í deildinni á þessari leiktíð. Körfubolti 16.10.2025 20:54
Tíu marka kvöld hjá Orra í Meistaradeildinni Orri Freyr Þorkelsson átti sannkallaðan stórleik í kvöld í Meistaradeildinni í handbolta. Það voru fullt af íslenskum handboltamönnum í eldlínunni í Meistaradeildinni í kvöld. Handbolti 16.10.2025 20:31
KA-menn fögnuðu fjórða sigrinum í röð og nú á móti Val KA-menn héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir unnu Valsmenn í sjöundu umferðinni í kvöld. Handbolti 16.10.2025 20:12
Vinicius Junior bauð í svaka partý en gæti endað í fangelsi Brasilíska knattspyrnustjarnan Vinicius Junior er í vandamálum í heimalandinu. Real Madrid-stjarnan þarf að koma fyrir rétt í næsta mánuði. Fótbolti 16.10.2025 19:21
Gæti náð Liverpool-leiknum Trent Alexander-Arnold fór frá Liverpool til Real Madrid í sumar eins og frægt var og auðvitað mættust liðin síðan í Meistaradeildinni. Það leit út fyrir að meiðsli enska bakvarðarins myndu taka frá honum leikinn en nú líta hlutirnir betur út. Fótbolti 16.10.2025 19:15
Ekki góð ferð til Lemgo hjá Hauki og félögum Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson og félegar í Rhein-Neckar Löwen fóru tómhentir heim frá Lemgo í þýsku bundesligunni í handbolta í kvöld. Handbolti 16.10.2025 18:46
Diljá og félagar náðu ekki að snúa við blaðinu Brann er úr leik í Evrópubikar kvenna eftir jafntefli á heimavelli í seinni leiknum á móti sænska liðinu Hammarby. Fótbolti 16.10.2025 17:58
Meira harpix á milli Íslands, Færeyja og Grænlands Forkólfar handknattleikssambanda Íslands, Grænlands og Færeyja undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aukið samstarf þjóðanna í handbolta, á landsleik Íslands og Færeyja í undankeppni EM kvenna. Handbolti 16.10.2025 17:17
Hatrið á sér heillanga sögu: Hitað upp fyrir uppgjör ensku risanna Liverpool og Manchester United mætast á sunnudaginn í uppgjöri erkifjendanna sem jafnframt eru sigursælustu fótboltalið Englands. Hatrið á milli liðanna á sér langa sögu og mikið er í húfi í stórleiknum á Anfield, eins og fjallað er um í frábæru upphitunarmyndbandi frá ensku úrvalsdeildinni sem ætti að koma öllum í rétta gírinn. Enski boltinn 16.10.2025 16:32
Gæti misst af HM ef hún fær ekki vegabréf fyrir nýfædda dóttur sína Norska handboltakonan Nora Mørk gæti misst af heimsmeistaramótinu sem hefst í næsta mánuði af nokkuð sérkennilegri ástæðu. Handbolti 16.10.2025 15:47
Jóhann tekur við Þrótti en Blikar leita áfram Jóhann Kristinn Gunnarsson verður næsti þjálfari kvennaliðs Þróttar í fótbolta, eftir að hafa stýrt liði Þórs/KA síðustu ár. Íslenski boltinn 16.10.2025 15:03
Mætti ryðgaður til leiks eftir aðgerðina Haukur Helgi Pálsson er klár í slaginn með Álftanesi sem mætir Grindavík í stórleik umferðarinnar í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Hann spilaði óvænt strax í síðustu viku eftir aðgerð á barka í haust. Körfubolti 16.10.2025 14:16
Fórnaði frægasta hári handboltans Fyrrverandi handboltastjarnan Mikkel Hansen þekkir margt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Pabbi hans er þar á meðal. Hansen hefur nú rakað af sér líklega þekktasta hár handboltasögunnar, til að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini. Handbolti 16.10.2025 13:32
Unnu sextánda leikinn í röð og eiga heimsmetið Landslið Marokkós í fótbolta karla setti heimsmet með sigri sínum á Lýðveldinu Kongó í fyrradag. Fótbolti 16.10.2025 11:30
Portúgalarnir í skýjunum yfir gestrisni Framara Falleg skilaboð biðu Framara í búningsklefa leikmanna portúgalska stórliðsins Porto eftir leik liðanna í Evrópudeild karla í handbolta í vikunni. Vel þótti takast til í þessari frumraun Framara við að halda Evrópudeildarleik í Úlfarsárdal. Handbolti 16.10.2025 11:01
Hafa unnið 31 af síðustu 33 leikjum í deild og Meistaradeild Íslendingalið Magdeburg hefur unnið ellefu af síðustu tólf leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Handbolti 16.10.2025 10:31
Tímabilið búið hjá Sævari Atla: „Ótrúlega svekkjandi“ Sævar Atli Magnússon hefur lokið leik þetta tímabilið vegna meiðsla sem hann varð fyrir í landsleik Íslands við Frakkland á mánudagskvöldið var. Félag hans Brann í Noregi greinir frá tíðindunum. Fótbolti 16.10.2025 09:28
Borgarstjóri Boston svarar Trump Michelle Wu, borgarstjóri Boston, hefur svarað Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna hótana hans um að færa leiki á HM í fótbolta næsta sumar úr borginni. Fótbolti 16.10.2025 08:30
„Var alltaf Mist með krabbamein alls staðar annars staðar“ Fótboltakonan Mist Edvardsdóttir var smám saman að festa sig í sessi í íslenska landsliðinu þegar henni var kippt hratt niður á jörðina. Hún var 23 ára þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein en segir fótboltann hafa hjálpað sér mikið og meinið ef til vill stuðlað að því að hún fann ástina og eignaðist tvo stráka. Íslenski boltinn 16.10.2025 08:00
HM í fótbolta „í samkeppni“ við HM í handbolta Eins og við Íslendingar þekkjum vel þá á handboltinn oftast janúarmánuð á Íslandi en nú er útlit fyrir að handboltinn fái í framtíðinni mikla samkeppni í dimmasta mánuði ársins. Fótbolti 16.10.2025 06:03