Móðir 13 ára fórnarlambs: Hann vissi vel hvað hún var gömul Andri Ólafsson skrifar 11. september 2008 11:11 Frá Eyrarbakka.
Móðir 13 ára stúlku sem misnotuð var af 37 ára karlmanni á Eyrabakka um helgina segist niðurbrotin. Dóttir hennar, sem er nýfermd, laumaðist út af heimili sínu seint á föstudagskvöldið og þáði ásamt vinkonu sinni boð mannsins um að þiggja áfengi og veitingar á heimili hans. Vinur mannsins og jafnaldri var einnig á staðnum. Maðurinn veitti stúlkunum áfengi og bauð þeim í heita pottinn á heimili sínu. Seint um nóttina þegar stúlkan var orðin ofurölvi hafði hinn 37 ára gamli maður við hana samfarir. Í samtali við Vísi fyrr í vikunni játaði maðurinn að hafa haft samræði við stúlkuna. En sagðist hins vegar ekki hafa vitað hve ung hún var. „Hann átti alveg að vita hvað hún er gömul, enda var þessi maður bekkarbróðir mannsins míns," segir móðirin. Hún hefur síðan um helgina verið að vinna úr þessu áfalli og reynt að veita dóttur sinni þá aðstoð sem hún þarf á að halda. Í dag fór dóttirin í skólann í fyrsta skiptið síðan áfallið reið yfir um helgina. „Við höfum fengið góða aðstoð hjá teyminu á Landspítalanum og félagsmálayfirvöldum á Selfossi. Þetta er allt mjög fært fólk sem hefur verið að aðstoða okkur og við erum þeim afar þakklát. Þau hafa staðið sig mjög vel," segir móðir stúlkunnar. Hún segir að strax snemma á laugardaginn hafi hún fundið að ekki væri allt með felldu. Dóttir hennar fór smátt og smátt að segja henni frá því sem hafði gerst en það var ekki fyrr en um kvöldið að hún opnaði sig endanlega og sagði móður sinni frá því hvað hafði komið fyrir. „Þetta er smátt og smátt að rifjast upp fyrir henni. Hún man eftir því að hann hafi verið að leita á hana. Hún reyndi að slá til hans og ná honum af sér. Hún var bara svo drukkin að hún gat það ekki," segir móðir hennar. Hún segir að síðustu dagar hafi verið erfiðir en að vinkonur dóttur sinnar hafi stutt við hana. „Ég á mér þá ósk heitasta að dóttir mín nái að vinna sig út úr því sem gerðist. Með hjálp fjölskyldunnar og annara sem eru reiðubúnir að aðstoða hana. Ég vona að þannig ná hún með einhverjum hætti að sætta sig við það sem hefur gerst. Ég veit að þetta hljómar sérkennilega. En við getum ekki breytt því sem orðið er. Eina leiðin til þess að sigrast á þessu er að horfast í augu við áfallið og vinna sig svo út úr því." Hún segist einnig vonast til þess að maðurinn sem braut gegn dóttur sinni fái þungan dóm. „Ég er reyndar þeirrar skoðunar að dómar í kynferðisbrotamálum eru of vægir á íslandi. En ég veit að þyngsti dómurinn sem þessi maður fær er hans eiginn mannorðsmissir. Hann verður aldrei litin sömu augum í þessum bæ."
Tengdar fréttir 37 ára karl kærður fyrir að nauðga 13 ára stúlku 37 ára gamall karlmaður frá Eyrarbakka var handtekinn um helgina vegna gruns um að hann hafi notfært sér ölvunarástand 13 ára gamallar stúlku og haft við hana samræði. 9. september 2008 16:31 Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Sjá meira
37 ára karl kærður fyrir að nauðga 13 ára stúlku 37 ára gamall karlmaður frá Eyrarbakka var handtekinn um helgina vegna gruns um að hann hafi notfært sér ölvunarástand 13 ára gamallar stúlku og haft við hana samræði. 9. september 2008 16:31