6 Bankastjóri: Vanskil hjá fyrirtækjum aukast og raunvaxtastig er of hátt Innherji
Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Gera má ráð fyrir tilbreytingarlitlu veðri næstu daga þar sem áttin verður norðlæg og fremur kalt á Norður- og Austurlandi í þungbúnu veðri. Sunnan heiða verður bjartara um að litast og yfir daginn mun sólin ylja þannig að hitinn verði viðunandi. Veður
Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur gengið formlega frá félagsskiptum sínum yfir í Vals en félagsskiptin hafa nú verið staðfest á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands. Íslenski boltinn
Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024. Hún var titluð í gær en hefð er fyrir því í bænum að veita titilinn síðasta vetrardag hvers árs. Lífið
Yrði staðfastur forseti á Bessastöðum Helga Þórisdóttir skilaði inn meðmælum sínum til framboðs forseta Íslands í Hörpu. Fréttir
Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Gangi lögsóknir þeirra í Bandaríkjunum ekki eftir vilja forsvarsmenn kínverska fyrirtækisins ByteDance, sem á samfélagsmiðlafyrirtækið TikTok, frekar loka miðlinum vinsæla en að selja hann. Það er vegna þess að kóðinn á bakvið samfélagsmiðillinn þykir of mikilvægur rekstri ByteDance og þeir vilja ekki að hann endi í annarra höndum. Viðskipti erlent
Léttir fyrir markaðinn en „erfiði kaflinn“ við að ná niður verðbólgu að hefjast Það var léttir fyrir skuldabréfamarkaðinn að sjá mælda verðbólgu í apríl í lægri mörkum væntinga, segir fjárfestingastjóri, og verðbólguálag lækkaði um 0,15 til 0,2 prósentustig. Sérfræðingar telja að stýrivextir Seðlabankans verði ekki lækkaðir í maí en líkur hafi aukist á að þeir lækki í ágúst. Erfiði kaflinn í baráttunni við verðbólguna sé fram undan. „Við þurfum því að sjá meiri hjöðnun verðbólgu til að vextir geti lækkað eitthvað að ráði,“ að mati sjóðstjóra. Innherji
Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Veðurupplýsingar frá Veðurstofu Íslands eru orðnar aðgengilegar á kortavef Já.is. Samstarf