Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Þakefnasala Íslands 18. apríl 2024 08:31 Halldór E. Smárason, sölu- og markaðsstjóri Þakefnasölu Íslands (lengt til hægri) verður í eldlínunni á Verk og vit næstu daga. Þakefnasala Íslands hóf starfsemi árið 2021 sem heildsala og verslun á gæða þakefnavörum en starfsfólk fyrirtækisins býr þó yfir áratuga reynslu í faginu. „
Við bjóðum upp á fjölbreytt vöruúrval frá traustum og viðurkenndum framleiðendum og um leið ein bestu verð hér á landi,“ segir Halldór E. Smárason, sölu- og markaðsstjóri Þakefnasölu Íslands. „Helstu vöruflokkar okkar eru þakpappi, tjörugrunnur, einangrun, lofttúður, niðurföll, undirlagsdúkur, drendúkur (jarðvegsdúkur), þéttiefni, festingar og sérhæfð verkfæri til þaklagna.“ Þakefnasala Íslands hóf starfsemi árið 2021 sem heildsala og verslun. Hún er staðsett í Drangahrauni 4 í Hafnarfirði. Polyglass er stærsti birgir Þakefnasölu Íslands í þakpappa en það er ítalskt fyrirtæki sem hefur framleitt þakpappa í yfir 50 ár. „Við höfum einkasölu leyfi á vörum frá Polyglass en um er að ræða ábræddan þakpappa og sjálflímandi þakpappa. Polyglass framleiðir sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður Elastoflex YEP 2500 þakpappa með sjálflímandi köntum en sá pappi er níðsterkur og ætlaður undir bárujárn.“ Frá EUROFAST í Hollandi koma festingar, sérstakar samsettar skrúfur fyrir ábræddan undirpappa sem lagður er á timbur undirlag og því erfitt að bræða að sögn Halldórs. „Eins fáum við dýflur og skrúfur frá EUROFAST til að festa einangrun á þök, hreyfanlegar ef einangrað er með steinull en fastar og stillanlegar ef einangrað er með hörðu plasti (XPS eða PIReX) eða búinn til vatnshalli. Hægt er að panta samsetta einingu plasthólks og skrúfu beint frá EUROFAST sem er mikill vinnusparnaður. Skrúfurnar ganga í allt undirlag, tré, stein og stál. Eins eru í boði ryðfríar skrúfur ásamt galvaniseruðum.“ ANJO er líka hollenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á ál lofttúðum og loftræstikerfum, þar á meðal einangraðar lofttúður úr áli með plast hatti sem hafa verið vinsælar. „Einnig eigum við yfirleitt á lager XPS einangrun frá GIAS. 100 mm þykka einangrunin er algengust en við höfum verið að reyna að eiga bæði 50 og 80 mm á lager. Auk þess bjóðum við upp á PIReX einangrun frá EMD í Póllandi en einangrunargildi PIReX er umtalsvert meira en hjá XPS því það duga 120 mm PIReX til að gefa sama einangrunargildi og 200 mm af XPS eða steinull.“ Stórsýningin Verk og vit hefst í Laugardag í dag, 18. apríl og stendur yfir til sunnudags. Þakefnasala Íslands verður að sjálfsögðu á staðnum og kynnir ýmsar spennandi vörur. „Á básnum okkar verður sérfræðingur frá Polyglass sem sýnir niðurlagningu sjálflímandi þakpappa sem er að verða æ algengari í Evrópu. Þessi sérfræðingur verður með fjórar kynningar, á föstudag og laugardag og verður tímasetning kynnt nánar á Facebook síðu okkar.“ Starfsfólk Þakefnasölu Íslands hefur alla tíð lagt mikinn metnað í persónulega og góða þjónustu að sögn Halldórs. „Við reynum að svara öllum fyrirspurnum um leið og þær berast. Síðan bjóðum við hraða og persónulega þjónustu og teljum okkur vera með eitt besta verðið á markaðinum. Við seljum bara efni sem okkar fyrirtæki nota sjálf og teljum því gæðin vera í fyrirrúmi.“ Enda byggir fyrirtækið á ríflega 20 ára reynslu úr íslenskum byggingaiðnaði en það eru helst endurbætur og nýbyggingar húsa sem skila þessari reynslu. „Síðan höfum við sérhæft okkur í flötum þökum undanfarin 6-8 ár og búum því yfir umtalsverðri þekkingu og reynslu af slíkum þökum.“ Ýmsar spennandi nýjungar eru í vændum í ár eins og fyrri ár að sögn Halldórs. „Í ár munum við leggja áherslu á Elastoflex SA þakpappa sem er sjálflímandi sem er nýjung á Íslandi þótt við höfum verið með þennan pappa í svolítinn tíma. Eins erum við að fá sérstaklega hraðþornandi tjörugrunn á góðu verði.“ Verið velkomin á bás Þakefnasölu Íslands á Verk og vit um helgina.
Hús og heimili Mest lesið Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Davíð Ernir til liðs við Athygli Viðskipti innlent Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Viðskipti innlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent