Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Árni Sæberg skrifar 24. apríl 2024 15:13 Úr Kompás árið 2007. Þar gómaði Jóhannes Kr. Kristjánsson barnaníðinga með tálbeitum. Vísir Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nauðga pilti undir lögaldri. Pilturinn hafði ætlað að koma upp um barnaníðing eftir að hafa horft á fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem barnaníðingar voru veiddir með notkun tálbeita.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp þann 17. apríl en birtur í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 2. ágúst 2021, í samskiptum við piltinn í skilaboðum í síma, mælt sér mót við hann á heimili sínu, í því skyni að hafa við hann önnur kynferðismök. Hann hafi einnig verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 19. ágúst 2021, í bifreið sem hann ók, haft önnur kynferðismök við piltinn, en hann hafi fróað piltinum og látið piltinn fróa honum og hafa við hann munnmök með því að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart piltinum vegna aldurs- og þroskamunar og þess að hann var einn á ferð með honum. Horfði á Kompás og ætlaði að leika sama leik Í dóminum segir að pilturinn hafi greint frá því hjá lögreglu, í Barnahúsi og fyrir dómi að í aðdraganda atviksins hafði hann horft á Kompásþætti og erlend myndbönd um að koma upp um barnaníðinga. Hann hefði ætlað að koma upp um manninn sem barnaníðing og farið að hitta hann til að taka hann upp og birta upptökuna undir áhrifum frá Kompásþætti. Hann hefði ákveðið að fara á fund mannsins vopnaður hnífi til þess að geta komist út úr aðstæðum ef hann þyrfti. Hann hafi frosið þegar bifreið mannsins kom upp að honum og gleymt öllu og ekkert getað gert þrátt fyrir hnífinn sem hann hafi ekki viljað nota. Eftir nokkrar mínútur hafi maðurinn skipað honum að gyrða niður um sig buxurnar, sem hann hafi gert niður að hnjám því hann hafi verið svo hræddur. Maðurinn hafi fróað honum, gyrt niður um sig, skipað honum að gera það sama við sig og síðan skipað honum að hafa við hann munnmök. Meðan þetta hafi átt sér stað hafi þeir verið á keyrslu í og ekki stöðvað nema á rauðu ljósi. Þegar þeir hafi verið komnir inn í íbúðina hafi maðurinn spurt hvort hann hefði kysst karlmann og snert belti hans á meðan, en hann hafi neitað því. Hann hafi þá tekið upp hnífinn og komist út úr íbúðinni. Þegar út var komið hafi hann hringt til lögreglu. Þóttist ekki hafa vitað að um barn væri að ræða Í dóminum segir að maðurinn hafi borið fyrir sig að hann hefði ekki vitað að um barn væri að ræða og samtal þeirra á samskiptamiðlinum Fuckbook.com hefði ekki verið kynferðislegs eðlis. Meðal þess sem þeirra fór á milli var aldur piltsins og hvað maðurinn hyggðist gera við hann þegar þeir hittust. Maðurinn hafi meðal annars borið fyrir sig að pilturinn hafi notað rétta íslensku í samskiptum þeirra og ekki neitt „unglingamál“. Því hafi hann talið að um fullorðinn mann væri að ræða. Dómurinn leit svo á að maðurinn hefði látið það sér í léttu rúmi liggja að pilturinn væri á barnsaldri. Neitaði og sagði erfðaefni hafa komist í nærbuxurnar af grímu Maðurinn neitaði alfarið að hafa haft kynferðismök við piltinn en við rannsókn fannst erfðaefni úr piltinum innan á nærbuxum mannsins. Það skýrði maðurinn svo að hann hefði snert andlitsgrímu sem pilturinn bar en hafði hent af sér. Hann hefði svo létt af sér áður en hann yfirgaf íbúð sína og erfðaefnið þannig komist í nærbuxurnar. Dómurinn mat þann framburð mannsins ótrúverðugan en framburð piltsins stöðugan og trúverðugan. Því væri talið hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök í ákæru. Við ákvörðun refsingar mannsins var annars vegar litið til þess að hann hefði ekki áður sætt refsingu og hins vegar að brot hans hefðu beinst gegn mikilvægum hagsmunum piltsins. Því væri refsing hans hæfilega ákveðin átján mánaða fangelsisvist. Þá var manninum gert að greiða piltinum eina milljón króna í miskabætur. Loks var honum gert að greiða skipuðum verjanda sínum rúmlega 1,9 milljónir króna, réttargæslumanni piltsins 740 þúsund krónur og annan sakarkostnað upp á 708 þúsund krónur.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Kompás Dómsmál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira