Samstarf

Toyota sýnir úr­vals fyrir­tækja­bíla á Verk og vit

Toyota á Íslandi
Guðmundur Rúnar Ingvarsson (t.v.), ráðgjafi Toyota Professional, og Hlynur Ólafsson, sölustjóri Toyota Professional, verða í eldlínunni á stórsýningunni Verk og vit næstu daga þar sem nokkrir fyrirtækjabílar verða kynntir. 
Guðmundur Rúnar Ingvarsson (t.v.), ráðgjafi Toyota Professional, og Hlynur Ólafsson, sölustjóri Toyota Professional, verða í eldlínunni á stórsýningunni Verk og vit næstu daga þar sem nokkrir fyrirtækjabílar verða kynntir. 

Toyota á Íslandi hefur þjónustað íslenskt atvinnulíf í marga áratugi með góðum árangri. Á stórsýningin Verk og vit sem haldin verður í Laugardag 18.-21. apríl mun fyrirtækið sýna nokkra úrvals bifreiðar sem henta ólíkum fyrirtækjarekstri.

Toyota á Íslandi sendur mjög framarlega þegar kemur að því að þjónusta fyrirtæki landsins,“ segir Hlynur Ólafsson, sölustjóri fyrirtækjasölu hjá Toyota Kauptúni. „Við erum m.a. með 3 ára þjónustupakka sem fylgir öllum nýjum bílum sem inniheldur smur- og ábyrgðarþjónustu upp að 60.000 km. á Proace sendibílum. Um leið leggjum við áherslu á að taka atvinnubíla sem fyrst inn í þjónustu eða í viðgerð til að stytta þann tíma sem viðskiptavinur er án bíls. Einnig gerum við fyrirtækjasamninga við þau fyrirtæki sem eru að kaupa bíla af okkur í einhverju magni en sá samningur inniheldur ýmis fríðindi eins og t.d. lánsbíl á meðan á viðgerð stendur og margt fleira.“

Hilux er þekktur vinnuþjarkur og líka skemmtilegur í sportið.

Toyota er með vegaaðstoð í samvinnu við Félag íslenskra bifreiðaeigenda. „Vegaaðstoð er í boði á öllum tímum sólahringsins alla daga ársins og felur meðal annars í sér aðstoð ef bíll verður straum- eða bensínlaus, flutning á verkstæði ef bíll bilar og flutning rafmagnsbíls heim eða á næstu hleðslustöð ef rafmagnið klárast. Einnig fylgir FÍB aðild í 12 mánuði fyrir umráðamann bifreiðar, honum að kostnaðarlausu.“

Proace EV er 100% rafdrifinn sendibíll sem hentar mjög vel í alla vörudreifingu innanbæjar.

Undanfarin þrjú ár hefur Toyota á Íslandi boðið eigendum Toyota bifreiða, sem fluttar eru inn af Toyota á Íslandi, upp á þann kost að framlengja ábyrgðina á viðkomandi bifreiðum um tólf mánuði/15.000 km. (20.000 km. í tilviki Proace) í senn – hvort sem fyrr kemur – eftir að fimm ára eða sjö ára ábyrgð frá innflutningsaðilanum er útrunnin eða í þann mund að renna út. „Það eina sem eigandi bifreiðarinnar þarf að gera er að koma með hana í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. Toyota Relax er í boði þar til Toyota bifreið hefur náð tíu ára aldri eða verið keyrð 200.000 km. eða meira, hvort sem fyrr kemur.“

Proace City EV er nettur og flottur vinnubíll.

Á Verk og vit, sem hefst á morgun fimmtudag, mun Toyota á Íslandi kynna þrjá skemmtilega bíla, Toyota Hilux, Proace GX EV og Toyota Proace City. „Toyota Hilux er fyrst og fremst mjög áreiðanlegur bíll, endingargóður og sérstaklega vinsæll í endursölu. Allir þessir þættir skipta máli fyrir fyrirtæki sem eru með rekstur á bílum en einnig er hann með háa dráttargetu og burð upp á tæpt 1 tonn. Þetta er bíll sem henta í alla atvinnustarfsemi.“

Proace GX EV er frábær vinnubíll.

Toyota Proace EV er 100% rafdrifinn sendibíll sem hentar mjög vel í alla vörudreifingu innanbæjar segir Hlynur. „Bíllinn hentar líka vel fyrir iðnaðarmanninn sem er í akstri á milli margra staða á dag. Hann er með dráttargetu upp á 1 tonn og burð upp á tæpt 1 tonn. Bíllinn er einfaldur í allri umgengni og með þægilega hleðsluhæð í flutningsrými.“

Vinnuaðtaða bílstjórans er góð í Proace.

Að lokum nefnir hann Toyota Proace City sem er nettur sendibíll og þægilegur í allan snattakstur með vörur eða fyrir iðnaðarmanninn. „Það er hægt að fá Proace City 100% rafdrifinn, með 1,2 L bensínvél eða með dísel vél, allt eftir því hvað viðskiptavinurinn í raun vill nota bílinn í. Bíllinn leggur vel á og er með 600 kg burð.“

Það er nóg pláss fyrir þrjá í Proace GX.

Verið hjartanlega velkominn á sýningarbás Toyota á Íslandi á Verk og vit, dagana 18.-21. apríl í Laugardal í Reykjavík.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×