Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi átt að vera tekin daginn fyrir kjördag í vor.

Innlent
Fréttamynd

Bíl ekið á ljósa­staur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöld eða nótt tilkynnt um að bíl hefði verið ekið á ljósastaur. Í dagbók lögreglu kemur fram að engin slys hafi orðið á fólki en bíllinn hafi verið tjónaður. Ekki kemur fram hvar áreksturinn átti sér stað en tilkynning barst til Stöðvar 2 sem sér um Garðabæ, Hafnarfjörð og Álftanes.

Innlent
Fréttamynd

Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber

Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu Arnarlandi í Garðabæ hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll. Þá heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli.

Innlent
Fréttamynd

Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás. Maðurinn er grunaður um að hafa veitt konu á fertugsaldri alvarlega áverka í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 

Innlent
Fréttamynd

Gæslu­varð­hald sonar þing­mannsins aftur fram­lengt

Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa banað föður sínum í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október á grundvelli almannahagsmuna. Hinn látni var eiginmaður þingmanns.

Innlent
Fréttamynd

Hló að svari sambýliskonunnar

Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. 

Innlent
Fréttamynd

Kókaínið hafi verið lykil­þáttur í vin­skapnum

Grískur karlmaður neitar því að hafa myrt portúgalskan karlmann í Kópavogi á síðasta ári. Farið var ítarlega yfir frásögn mannsins við aðalmeðferð málsins og sönnunargögn, þar á meðal eldhúshníf, skóför og götótta hettupeysu.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á hjólreiðamann í Kópa­vogi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í dag þar sem ekið var á hjólamann í hverfi 200 í Kópavogi. Sá hlaut minni háttar áverka en var sendur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu um störf dagsins.

Innlent
Fréttamynd

Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri

Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat.

Innlent
Fréttamynd

Fimm ára dómur Norberts stað­festur

Karlmaður að nafni Norbert Walicki hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir tilraun til manndráps, með því að skera mann á háls með eldhúshnífi. Árásin átti sér stað á gistiheimili í Kópavogi í júní 2023.

Innlent
Fréttamynd

Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða

Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Innlent
Fréttamynd

Skoða hvort út­lendingar þurfi að bíða eftir fullri að­stoð

Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 33 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins.

Innlent
Fréttamynd

Náum verð­bólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér

Bæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Við náum ekki tökum á verðbólgunni ef ríkið keyrir upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. 

Innlent