Karl III Bretakonungur
1 2 3 4 … 4 ›
Vill komast aftur í vinnuna Karl Bretakonungur er orðinn þreyttur á krabbameinsmeðferðinni og þrýstir nú á lækna sína og starfsfólk sitt um að fá grænt ljós til þess að mæta aftur í vinnu. Þetta segir frændi hans Peter Phillips í sjaldgæfu viðtali við ástralska miðla. Lífið 25.3.2024 09:31
Telur saklausar ástæður liggja að baki stormsins í kringum Katrínu „Maður þarf að passa sig. Það er rosa auðvelt að falla fyrir einhverjum svona kenningum,“ segir Guðný Ósk Laxdal, kennari og royalisti, um samsæriskenningar sem hafa sprottið upp undanfarnar viku um Katrínu Middleton, prinsessuna af Wales. Lífið 13.3.2024 13:48
Fyrsta opinbera myndin af prinsessunni eftir aðgerðina Kensingtonhöll birti í dag fyrstu opinberu mynd af Katrínu, prinsessu af Wales, síðan hún fór undir hnífinn í janúar. Erlent 10.3.2024 13:34
Sagan um brasilíska rassinn sterkust í Bandaríkjunum Fyrstu myndirnar af hertogaynjunni Katrínu Middleton á opinberum vettvangi í rúma tvo mánuði voru birtar í vikunni í bandarískum miðlum. Guðný Ósk Laxdal sérlegur sérfræðingur í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar segir málið sýna hve góðum samskiptum Katrín og Vilhjálmur Bretaprins eigi við bresku pressuna. Lífið 6.3.2024 07:00
Segir veikindi föður síns mögulega munu greiða fyrir sáttum Harry, hertogi af Sussex, hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn til að ná sáttum við fjölskyldu sína eftir að faðir hans, Karl III Bretakonungur, greindist með krabbamein. Erlent 16.2.2024 18:28
Nógu heilsuhraustur fyrir símtal Breska forsætisráðuneytið tilkynnti fjölmiðlum sérstaklega að Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hyggist ræða við Karl Bretakonung símleiðis í dag. Eins og greint var frá því á dögunum er Karl með krabbamein. Lífið 7.2.2024 16:09
Hefur margbrotið sig en annars verið við ágæta heilsu Harry Bretaprins mun ferðast frá heimili sínu í Los Angeles á næstu dögum til þess að heimsækja föður sinn, Karl III Bretakonung, sem hefur greinst með krabbamein. Erlent 6.2.2024 06:58
Karl Bretakonungur með krabbamein Karl III Bretakonungur hefur greinst með krabbamein. Erlent 5.2.2024 18:07
Bretakonungur berst við bólginn blöðruhálskirtil Karl III Bretakonungur leggst undir hnífinn í næstu viku vegna góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli. Erlent 17.1.2024 16:00
Hafði áhyggjur af því að það myndi flækja málin að deyja í Balmoral Elísabet II Bretadrottning hafði áhyggjur af því skömmu fyrir andlát sitt að það myndi valda skipuleggjendum útfarar hennar vandræðum ef hún félli frá í Skotlandi. Erlent 22.12.2023 07:19
Loðvík löngutangarlaus á jólakorti konungsfjölskyldunnar Hjónin Vilhjálmur og Katrín, krónprins og prinsessa af Wales, hafa sent frá sér árlegt jólakort fjölskyldunnar. Það sem hefur vakið sérstaka athygli er að það vantar löngutöng á Loðvík prins. Kenningar eru uppi um að hún hafi verið klippt af í myndvinnslunni. Lífið 11.12.2023 21:56
Karl kóngur taldi sig kannast við Portman úr gömlu Star Wars Karl Bretakonungur spurði leikkonuna Natalie Portman hvort hún hafi verið í gömlu Star Wars-myndunum þegar The Phantom Menace var frumsýnd. Portman var átján ára þarna og er fjórum árum yngri en fyrsta Star Wars-myndin sem kom út árið 1977. Lífið 7.12.2023 14:33
Karl og Katrín sögð hafa verið þau sem ræddu húðlit Archie Omid Scobie, höfundur bókarinnar Endgame: Inside the Royal Family, segir rannsókn hafna á því hvernig Karl Bretakonungur og Katrín, prinsessan af Wales, voru nefnd í tengslum við umræðu um húðlit sonar Harry Bretaprins og Meghan, eiginkonu hans, í hollenskri útgáfu bókarinnar. Erlent 1.12.2023 07:08
Telja Karl þurfa að segja hluti sem hann vilji ekki segja Breska þingið hefst í dag og af því tilefni mun Karl Bretakonungur halda ræðu líkt og hefð er fyrir. Um er ræða fyrstu opnunarræðu konungsins sem var krýndur í maí á þessu ári. Þar kynnir hann stefnu ríkisstjórnarinnar, en talið er að hún fari þvert gegn skoðunum Karls í ákveðnum málaflokkum. Hann muni því þurfa að segja hluti sem hann vilji ekki segja. Erlent 7.11.2023 11:31
Ár frá andláti Elísabetar og Karli vegnar bara nokkuð vel Ár er liðið frá því að Karl III tók við konungstigninni af móður sinni Elísabetu II Bretadrottningu, við fráfall hennar hinn 8. september 2022. Karl virðist hafa tekist nokkuð vel að feta í fótspor móður sinnar en nýtur engu að síður töluvert minni vinsælda. Erlent 8.9.2023 11:32
Peysa Díönu prinsessu á uppboði Peysa sem Díana prinsessa klæddist í upphafi níunda áratugar síðustu aldar er nú til sölu á uppboði. Um er að ræða rauða peysu með mynstri af hvítum kindum. Ein kindin er þó svört og er talið að Díana hafi þess vegna verið hrifin af peysunni. Lífið 19.7.2023 16:11
Kóngurinn nennti ekki að bíða eftir Biden Karl Bretakonungur var ekkert sérstaklega þolinmóður þegar hann tók á móti Joe Biden, Bandaríkjaforseta, í Windsor kastala í dag. Biden tók sér góðan tíma í samræður við lífvörð konungsins, sem var ekkert sérstaklega skemmt. Lífið 10.7.2023 16:25
Karl III krýndur konungur Skotlands Karl III var í dag krýndur konungur Skotlands samkvæmt hefð sem nær allt aftur til sautjándu aldar þegar Karl I Englandskonungur var krýndur konungur Skotlands. Erlent 5.7.2023 19:20
Karl hvattur til að beita sér vegna „svívirðilegrar“ ákvörðunar Karl III Bretakonungur hefur verið hvattur til að beita áhrifum sínum eftir að stjórnendur Prince's Trust, góðgerðasjóðs sem Karl stofnaði, gáfu út að einstaklingar sem voru beittir kynferðislegu ofbeldi á stofnunum fyrir börn fái aðeins 2.000 pund í bætur. Erlent 24.5.2023 10:14
Jarðarför Elísabetar Bretlandsdrottningar kostaði 28 milljarða Jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar kostaði 162 milljónir punda eða um 28,3 milljarða íslenskra króna. Talið er að mestur peningur hafi farið í löggæslu. Erlent 18.5.2023 23:07
Í haldi lögreglu í þrettán tíma fyrir misskilning Ofuraðdáandi bresku konungsfjölskyldunnar var handtekinn af lögreglunni síðastliðinn laugardag þegar nýr konungur var krýndur og þurfti að dúsa í haldi lögreglunnar í London í þrettán tíma. Erlent 12.5.2023 08:32
Segist ekki hafa verið Meghan Markle í dulargervi Velska tónskáldið Sir Karl Jenkins neitar því að hann hafi verið Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex í dulargervi við krýningu Karls Bretakonungs síðastliðna helgi, í bráðfyndnu myndbandi þar sem hann útskýrir klæðnað sinn. Horfa má á myndbandið hér fyrir neðan. Lífið 10.5.2023 23:49
Frægir fögnuðu krýningu Karls III Breska sendiráðið í Reykjavík hélt upp á krýningu nýs Bretakonungs með pomp og prakt síðastliðinn laugardag. Veislan var haldin í sendiráðsbústaðnum við Laufásveg og í veislutjöldum í garðinum og mættu boðsgestir úr ýmsum áttum, svo sem úr pólitík, viðskiptalífinu og menningargeiranum. Lífið 9.5.2023 16:01
„Absúrd“ að Karl sé kóngur í Karíbahafi Forsætisráðherra eyjaríkisins Sankti Vinsent og Grenadína í Karíbahafi segir það „absúrd“ að Karl Bretakonungur sé þjóðhöfðingi ríkisins. Hann segist myndu vilja sjá valdatíma Karls á eyjunum líða undir lok á sinni lífstíð. Erlent 8.5.2023 22:46
Sakar lögreglu um að hafa skipulagt handtökurnar fyrirfram Graham Smith, leiðtogi lýðveldissamtakanna Republic, sakar lögregluyfirvöld í Lundúnum um að hafa skipulagt það fyrirfram að handtaka mótmælendur við krýningu Karls III Bretakonungs, til að trufla og gera lítið úr mótmælum lýðveldissinna á krýningardaginn. Erlent 8.5.2023 12:48
Vilhjálmur sagði að Elísabet hefði verið stolt Tónleikar fóru í dag fram við Windsor-kastala í London í tilefni af krýningu Karls III Bretakonungs í gær. Segja má að viðburðurinn í dag hafi náð hámarki þegar Vilhjálmur krónprins tók til máls og klöppuðu áhorfendur gríðarlega þegar hann gekk upp á sviðið. Erlent 7.5.2023 23:51
Krýning Karls III Bretakonungs í myndum Það var mikið um dýrðir þegar Karl III Bretakonungur var krýndur í dag. Fjöldi fólks fagnaði með konungsfjölskyldunni en fleiri en 50 lýðveldissinnar voru handteknir af lögreglu. Erlent 6.5.2023 22:42
Tíminn einn leiði í ljós hvort Karli farnist vel í embætti Karl þriðji var krýndur Bretlandskonungur við sögulega, og ákaflega íburðarmikla, athöfn í Westminster í dag. Forseti Íslands, sem viðstaddur var athöfnina, segir að tíminn muni leiða í ljós hvernig Karli farnist í embætti. Konungurinn hafi sett sinn svip á magnþrungna athöfnina í morgun. Erlent 6.5.2023 20:30
Fór beint upp á flugvöll og aftur til Bandaríkjanna Harry Bretaprins dreif sig aftur heim til Bandaríkjanna eftir að faðir hans, Karl III, var krýndur Bretlandskonungur í dag. Sonur hans fagnar fjögurra ára afmæli í dag. Lífið 6.5.2023 14:38
Karl krýndur konungur Karl þriðji var í dag krýndur konungur Bretlands. Krýningarathöfnin hófst formlega klukkan tíu í morgun en á þriðja þúsund manns var boðið til athafnarinnar. Nokkrir mótmælendur voru handteknir. Erlent 6.5.2023 14:30