Hernaður

Fréttamynd

Hótar Hútum vegna á­rása á flutninga­skip

Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran.

Erlent
Fréttamynd

Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali

Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Rústa brú eða orku­veri fyrir hverja á­rás á Hormússundi

Donald Trump segir að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip á Hormússundi, hvort sem það er með dróna, eldflaug eða öðrum hætti, muni Bandaríkin svara með eigin árásum. Þær verði gerðar á brýr eða orkuver. Einni brú eða orkuveri verði rústað fyrir hverja árás Írana.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu?

Vólódímír Selenskí rak í gær yfirherforingja Úkraínu og skipaði nýjan. Það gerði hann í kjölfar umfangsmikilla mótmæla eftir að hann rak varnarmálaráðherra landsins. Forsetinn segir frekari breytingar í vændum á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þing­menn

Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom.

Erlent
Fréttamynd

Fundar með fjölda her­foringja í skugga mót­mæla

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur á undanförnum dögum fundað með mörgum af helstu herforingjum úkraínska hersins. Forsetinn er sagður leita að arftaka Oleksanders Sirskí, formanns herforingjaráðs Úkraínu. Mikil mótmæli hafa átt sér stað í Úkraínu eftir að Selenskí lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedóróv taka pokann sinn í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Skoða að auka um­fang á­rása enn frekar

Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina.

Erlent
Fréttamynd

Auka þrýstinginn á Taí­van veru­lega

Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur.

Erlent
Fréttamynd

Íran og Banda­ríkin skiptast á á­rásum

Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi. 

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir fylgja æðsta­klerkinum til grafar í skugga á­rása

Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein.

Erlent
Fréttamynd

Breskt her­skip siglir um Hval­fjörð

Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales er nú statt í Hvalfirði en bresk flotadeild hefur tekið þátt í æfingum NATO á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Æfingar tengdar loftrýmiseftirliti og loftvörnum fara fram við Ísland. 

Innlent
Fréttamynd

Á­rásir á báða bóga og um­ferð um sundið dregst saman

Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði.

Erlent
Fréttamynd

Tólf Evrópu­ríki sögð ætla að smíða nýja lang­dræga eld­flaug

Tólf Evrópuríki hyggjast taka saman höndum og verja 37 milljörðum punda á næstu tíu árum til að smíða nýja langdræga eldflaug. Frá þessu greindu stjórnvöld á Bretlandseyjum, sem fara fyrir verkefninu en það verður til umræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag.

Erlent
Fréttamynd

Úkraínu­menn uppi­skroppa með loft­varnar­flug­skeyti

Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar.

Erlent
Fréttamynd

Rússar ógnuðu bresku her­skipi sem siglir við Ís­land

Breskar orrustuþotur fylgdu eftir rússneskri herflugvél eftir að henni var flogið hættulega nálægt flugmóðurskipi Breta í Noregshafi í síðustu viku. Herskipið sinnir nú eftirliti fyrir Atlantshafsbandalagið norður af Íslandi og fundaði utanríkisráðherra með breskum ráðherra um borð í gær.

Erlent
Fréttamynd

Íran gerir á­rásir á Barein og Kúveit í kjöl­far á­rása Banda­ríkjanna

Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní.

Erlent
Fréttamynd

Óttast rúss­neskar ögranir gegn Eystra­salts­ríkjunum

Tvö Atlantshafsbandalagsríki vara við því að stjórnvöld í Kreml kunni að ráðast til atlögu gegn Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi til þess að láta reyna á samstöðu bandalagsins. Örvænting vegna hrakfara Rússa í stríðinu gegn Úkraínu kunni að drífa þá áfram til þess.

Erlent
Fréttamynd

Þetta er í sam­komu­lagi Trumps við Írani

Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana.

Erlent
Fréttamynd

Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu

Langdrægur úkraínskur dróni er sagður hafa hæft olíuhreinsistöð í grennd við Moskvu. Forseti Úkraínu segir þetta svar við árásum Rússa en þeir drápu ellefu manns og skemmdu dómkirkju í Kænugarði í dróna- og flugskeytaárás í gær.

Erlent
Fréttamynd

Kaninn pakkar saman í Evrópu

Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tilkynnt bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu að til standi að fækka töluvert herþotum, flugvélum og herskipum í Evrópu. Um er að ræða hersveitir sem tekið hafa þátt í aðgerðum NATO í gegnum áratugina og stendur meðal annars til að fækka orrustuþotum í Evrópu um þriðjung.

Erlent
Fréttamynd

Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin

Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum.

Erlent