Meistararnir lögðu botnliðið í spennuþrungnum leik Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Fram máttu hafa sig alla við í leik gegn botnliði ÍR í kvöld er liðin mættust í Olís deildinni í handbolta. Meistararnir höfðu að lokum betur, 26-28. Handbolti 13.2.2026 20:15
Uppgjör: ÍR - Þór Þ. 75-78 | Þórsarar sóttu gríðarmikilvægan sigur Þór Þorlákshöfn sótti gríðarmikilvægan 75-78 sigur gegn ÍR í Skógarseli í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Dramurinn um að komast í úrslitakeppnina lifir því enn. Körfubolti 12.2.2026 18:31
Lifir draumurinn eða raungerist leðjuslagur á botninum? Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, segir leik liðsins gegn ÍR í Bónus deildinni í körfubolta í kvöld gríðarlega mikilvægan. Hans lið þurfi að vinna til að eiga séns á að komast í úrslitakeppnina, tap þýði að leðjuslagur við botn deildarinnar bíði þeirra. Körfubolti 12.2.2026 14:32
Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti 6.2.2026 07:33
Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn 5.2.2026 14:03
Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA KA hafði betur gegn ÍR þegar að liðin mættust í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í Breiðholti sex marka sigur KA, 37-31. Handbolti 4. febrúar 2026 20:03
Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Njarðvík vann 3-1 endurkomusigur á ÍR þegar að liðin mættust í Lengjubikarnum í fótbolta í Reykjaneshöllinni í dag. Bragi Karl Bjarkason skoraði sitt fyrsta mark fyrir Njarðvík í sínum fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa verið keyptur frá FH á dögunum. Íslenski boltinn 1. febrúar 2026 17:41
„Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Borce Ilievski, þjálfari ÍR, var að vonum ánægður með sannfærandi sigur sinna manna gegn Ármanni nú í kvöld. ÍR-liðið lék afar vel í dag gegn Ármanni sem hafði unnið tvo leiki í röð fyrir kvöldið í kvöld en lék kanalausir þar sem Brandon Averette er handleggsbrotinn. Körfubolti 29. janúar 2026 21:50
Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Sigurganga Ármenninga endaði snögglega í Laugardalshöllinni í kvöld en ÍR-ingar mættu og unnu 35 stiga stórsigur, 109-74. Körfubolti 29. janúar 2026 20:54
Uppgjörið: Haukar - ÍR 23-22 | Dramatískur sigur hjá Haukakonum Haukar og ÍR áttust við í 15. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta á Ásvöllum í kvöld og endaði leikurinn með eins marks sigri Hauka, 23-22. Með sigrinum lyfta Haukar sér upp fyrir ÍR og verma þriðja sæti deildarinnar. Handbolti 29. janúar 2026 20:30
Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Fram sótti 21-20 sigur úr háspennuleik við KA/Þór á Akureyri og ÍR endaði taphrinu sína með öruggum sigri gegn Selfossi í 15. umferð Olís deildar kvenna. Handbolti 25. janúar 2026 16:41
Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Stjörnumenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Bónusdeild karla í körfubolta með níu stiga sigri á ÍR-ingum, 118-109, í Skógarselinu. Stjörnumenn voru lengst af með mikla yfirburði en ÍR-ingar voru næstum því búnir að vinna upp forskotið á lokakafla leiksins. Körfubolti 22. janúar 2026 21:00
Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Þakið ætlaði að rifna af ÍR höllinni um helgina þegar Breiðhyltingar héldu þorrablót með miklum stæl. Borgarstjóraefni létu sig ekki vanta og upprunalegi Breiðholts-rapparinn Emmsjé Gauti tryllti lýðinn. Lífið 20. janúar 2026 20:00
Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Tindastóll vann 101-90 gegn ÍR í 14. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Dedrick Basile fór mestan fyrir heimamenn á Sauðárkróki en hann stimplaði þrefalda tvenna á tölfræðiblaðið í þessum örugga sigri. Körfubolti 15. janúar 2026 18:32
Uppgjörið: ÍR - ÍBV 26-29| Eyjakonur tylltu sér á toppinn ÍBV tyllti sér á topp Olís-deildarinnar með öruggum sigri á ÍR 26-29. Eyjakonur hafa nú sigrað sjö leiki í röð og eru á góðri siglingu. Handbolti 15. janúar 2026 17:17
Rúnar Ingi: „Kæfðu okkar stemningu og völtuðu yfir okkur“ Njarðvík skoraði einungis 59 stig er liðið tapaði gegn ÍR í kvöld, 84-59, í 13. umferð Bónus deild karla. Frammistaða liðsins var döpur og engin stig komu frá varamönnum. Sport 8. janúar 2026 22:43
Uppgjörið: ÍR - Njarðvík 84-59 | ÍR-ingar byrja árið vel ÍR tók á móti Njarðvík í 13. umferð Bónus deild karla í kvöld og vann öruggan sigur 84-59. Þetta var annar sigur ÍR-inga í röð og líklegast besta frammistaða þeirra á tímabilinu til þessa. Körfubolti 8. janúar 2026 18:33
„Viljum gera atlögu að titlinum en því miður er það ekki raunhæft“ Það var uppgefinn en ánægður Borce Ilievski sem mætti til viðtals strax að loknum dramatískum sigri ÍR gegn Keflavík nú í kvöld. Borce segist sannarlega vera ánægður með sigurinn en nefnir þó að lukkudísirnar hafi vakað yfir liðinu í kvöld. Körfubolti 4. janúar 2026 21:58
Umfjöllun: ÍR-Keflavík 89-86 | ÍR-ingar byrja nýja árið vel Kanalausir Keflvíkingar fóru tómhentir heim úr Skógarselinu í kvöld því heimamenn í ÍR byrjuðu nýtt ár með flottum sigri í tólfu umferð Bónusdeildar karla í körfubolta. Körfubolti 4. janúar 2026 20:46
ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata ÍR-ingar voru ekki lengi að bæta við sig leikmanni í jólafríinu. Króatíski körfuboltamaðurinn Emilio Banić hefur skrifað undir samning við ÍR og mun spila með Breiðhyltingum í Bónus-deild karla í körfubolta á nýju ári. Körfubolti 22. desember 2025 07:46
Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Sigurmark Garðars Inga Sindrasonar til að skjóta FH í undanúrslit bikarkeppninnar í handbolta rennur honum að líkindum seint úr minni. Hann skoraði á síðustu sekúndu leiksins mark sem skaut liðinu áfram. Handbolti 19. desember 2025 21:41
„Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var sáttur með sigur sinna manna gegn ÍR í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 18. desember 2025 22:14
„Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ „Það er eðlilegt að vera leiður þegar maður tapar svona leik,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, eftir naumt tap liðsins gegn Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 18. desember 2025 22:02
ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Valsmenn unnu baráttusigur er liðið heimsótti ÍR í lokaumferð Bónus-deildar karla í körfubolta fyrir stutt jólafrí í kvöld, 82-85. Körfubolti 18. desember 2025 21:47
„Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Kristófer Acox, leikmaður Vals í Bónus-deild karla í körfubolta, gat andað léttar eftir nauman þriggja stiga sigur liðsins gegn ÍR í kvöld, 82-85. Körfubolti 18. desember 2025 21:32
Geggjaðar Eyjakonur á toppinn ÍBV komst í kvöld á topp Olís-deildar kvenna í handbolta með stórsigri á ÍR í toppslag. Munurinn endaði í tólf mörkum, 36-24. Handbolti 17. desember 2025 20:34
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti