Upp­gjörið: ÍR - Tinda­stóll 90-98 | Stólarnir stigu stórt skref í átt að undan­úr­slitum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ragnar Ágústsson var aðsópsmikill þegar Tindastóll var að byggja upp forskot sitt. 
Ragnar Ágústsson var aðsópsmikill þegar Tindastóll var að byggja upp forskot sitt.  Vísir/Vilhelm

Tindastóll bar sigurorð af ÍR, 98-90, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Skógarseli í kvöld. Tindastóll er þar af leiðandi kominn 2-0 yfir í einvígi liðanna.

Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrsta leikhluta og jafnræði var með liðunum. Undir lok leikhlutans náðu heimamenn góðum kafla með Tsotne Tsartsidze í broddi fylkingar og staðan var 25-21 ÍR í vil eftir fyrsta fjórðung.

Leikmenn Tindastóls komu hins vegar sterkari inn í annan leikhluta og munaði þar miklu um gott framlag frá Ragnari Ágústssyni af varamannabekknum. Ragnar setti níu stig á skömmum tíma í öðrum leikhluta og var kominn með 12 stig þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik.

Adomas Drungilas skoraði 14 stig og tók sjö fráköst í þessum leik. 

Tindastóll herti tökin í varnarleik sínum í öðrum leikhluta og hafði betur, 26-14, í þeim leikhluta. Gestirnir fóru þar af leiðandi með átta stiga forskot, 47-39, inn í þriðja leikhluta. Tindastóll var síðan kominn 15 stigum yfir, 69-54, undir lok þriðja leihluta. 

ÍR-ingar þurftu að hafa mikið fyrir þeim stigum sem þeir skoruðu þegar líða tók á leikinn og leikmenn Tindastóls náðu að halda Jacob Falko í skefjum. Af þeim sökum var sóknarleikur ÍR fremur vængbrotinn. 

Leikmenn TIndastóls höfðu góðar gætur á Jacob Falko. Vísir/Vilhelm

ÍR náði ekki að snúa taflinu sér í vil í fjórða leihluta þrátt fyrir nokkur áhlaup. Heimamenn lögðu þó ekki árar í bát og náðu að minnka muninn í 96-90 þegar skammt var eftir af leiknum. 

Tindastóll hleypti ÍR ekki nær og gestirnir fóru að lokum með öruggan átta stiga sigur af hólmi. Tindastóll leiðir því 2-0 í rimmu liðanna um sæti í undanúrslitum.    

Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, gat brosað breitt í leiknum í kvöld. Vísir/Vilhelm

Arnar Guðjónsson: Viljum meina að við séum með dýpsta liðið

„Við náðum upp feykilega góðri vörn í öðrum og þriðja leikhluta sem skilaði því að við náðum frumkvæðinu í leiknum. Þar náðum við forystu sem við létum ekki af hendi,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, sáttur. 

„Við viljum meina að við séum með mestu breiddina í okkar leikmannahópi. Það leggja allir eitthvað af lóðum á vogarskálina og menn skipast á að vera atkvæðamestir. Við fengum gott framlag frá Ragnari í þessum leik sem og fleirum. Júlíus Orri var stigahæstur í síðasta leik og nú stig aðrir leikmenn upp,“ sagði Arnar enn fremur. 

„Það var verst hvað þessi leikur var langur þannig að það er búið að loka Hvalfjarðargöngunum. Nú þurfum við að klára þetta einvígi í næsta leik til þess að fækka ferðum suður fyrir okkar fólk á meðan göngin eru lokuð,“ sagði hann léttur.

Borche Ilievski: Þeir náðu að stoppa bakverðina okkar

„Þeir náðu að halda bakvörðum okkar í skefjum stóran hluta af leiknum og við náðum ekki að finna lausnir á því. Það vantaði ekkert upp á baráttu og orku í liðið en við náðum okkur ekki á strik í sóknarleiknum,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR. 

„Þegar sóknarleikurinn hikstaði fóru leikmenn mínir of mikið í einstaklingsframtök og það ætluðu allir að vera hetjurnar sem kæmu okkur aftur inn í leikinn. Það kann aldrei góðri lukku að stýra,“ sagði Borche þar að auki. 

„Við höfum enn trú á því að við getum snúið taflinu okkur í vil. Við verðum bara að fara norður i næsta leik og laga það sem gekk illa í þessum leik þegar þar að kemur. Við getum gert mun betur en við gerðum í kvöld og ef við gerum það getum við komið til baka,“ sagði hann um framhaldið. 

Borche Ilievski, þjálfara ÍR, fannst leikmenn sínir fara of mikið í einstaklingsframtök. Vísir/Vilhelm

Atvik leiksins

Orkan sem Ragnar Ágústsson kom með inn af varamannabekknum í öðrum leikhluta var það sem varð til þess að það kviknaði líf í leikmönnum Tindatólsliðsins. 

Stjörnur og skúrkar

Ragnar Ágústsson heillaði mig mest en hann skoraði 14 stig, tók 13 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Dedrick Basile var hins vegar stigahæstur með 22 stig og Taiwo Badmus kom næstur með 21 stig. 

Jacob Falko skoraði mest fyrir ÍR eða 19 stig talsins og Tsotne Tsartsidze skilaði 18 stigum á töfluna fyrir heimamenn. 

Dedrick Basile var stigahæstur á vellinum. Vísir/Vilhelm

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Jóhannes Páll Friðriksson, Birgir Orn Hjörvarsson og Sigurbaldur Frímannsson, höfðu ágætis tök á þessum leik en hefðu getað látið leikinn flæða betur þegar leið á leikinn. Þeir fá sjö í einkunn fyrir prýðilega dómgæslu. 

Stemming og umgjörð

Það var frábær stemming í Skógarseli í kvöld og bæði lið fengu ríkulegan stuðning frá stuðningsmannasveitum sínum sem voru í gríðarlegu stuði. Þetta var skemmtilegt kvöld í Skógarseli þar sem leikmenn og stuðninsmenn sáu til þess að bjóða upp á góða skemmtun. 

Ghetto hooligans létu vel í sér heyra að vanda. Vísir/Vilhelm

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira