ÍR

ÍR

Fréttir af Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, frá Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lifir draumurinn eða raun­gerist leðju­slagur á botninum?

Lárus Jóns­son, þjálfari Þórs Þor­láks­hafnar, segir leik liðsins gegn ÍR í Bónus deildinni í körfu­bolta í kvöld gríðar­lega mikilvægan. Hans lið þurfi að vinna til að eiga séns á að komast í úr­slita­keppnina, tap þýði að leðju­slagur við botn deildarinnar bíði þeirra.

Körfubolti
Fréttamynd

Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik

Njarðvík vann 3-1 endurkomusigur á ÍR þegar að liðin mættust í Lengjubikarnum í fótbolta í Reykjaneshöllinni í dag. Bragi Karl Bjarkason skoraði sitt fyrsta mark fyrir Njarðvík í sínum fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa verið keyptur frá FH á dögunum. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“

Borce Ilievski, þjálfari ÍR, var að vonum ánægður með sannfærandi sigur sinna manna gegn Ármanni nú í kvöld. ÍR-liðið lék afar vel í dag gegn Ármanni sem hafði unnið tvo leiki í röð fyrir kvöldið í kvöld en lék kanalausir þar sem Brandon Averette er handleggsbrotinn.

Körfubolti