Innlent
Ákvörðun Alcoa fagnað Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á Húsavík um miðjan dag þegar tilkynnt var að bandaríska fyrirtækið Alcoa hefði valið Bakka við Húsavík fyrir byggingu hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Áformin voru staðfest með undirritun samkomulags milli Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um að kanna hagkvæmni þess að reisa þar 250 þúsund tonna álver. Framkvæmdir myndu hefjast í fyrsta lagi árið 2010. Innlent 1.3.2006 18:54
Íslendingur í haldi bresku lögreglunnar Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri, sem lögreglan í Burnley á Englandi handtók í síðustu viku og sakar um rán á breskri stúlku, verður í gæsluvarðhaldi fram í byrjun apríl þegar mál hans verður tekið fyrir. Innlent 1.3.2006 18:45
Ungliðar mótmæltu álverframkvæmdum Ungliðar gegn stóriðju mótmæltu byggingu álvers á Bakka við Húsavík, á skrifstofum Alcoa á Suðurlandsbraut í dag. Lögregla fjarlægði ungliðana af skrifstofunum eftir skamma en hávaðasama viðveru þeirra þar. Innlent 1.3.2006 18:48
Félagsmálaráðherra ávarpaði fund Kvennanefndar SÞ Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, ávarpaði í dag 50. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Ráðherrann lagði áherslu á að enda þótt árangur hefði náðst á grundvelli þeirrar stefnu sem mörkuð var á Peking ráðstefnunni árið 1995 þá væri ljóst að enn væri mikið verk að vinna. Innlent 1.3.2006 17:03
Mótmælendur ruddust inn á skrifstofu Alcoa Um 20 ungir mótmælendur hafa ruðst inn á skrifstofur Alcoa við Suðurlandsbraut í Reykjavík og hafa þar í frammi mótmæli gegn byggingu álvers við Húsavík. Ungliðarnir krefjast þess að hætt verði við byggingu álversins og fallið frá stóriðjustefnu stjórnvalda. Innlent 1.3.2006 16:26
Enn er allt í hnút Enn er allt í hnút hjá samningarnefnd Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefnd sveitarfélaganna. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag. Innlent 1.3.2006 16:08
Bakki við Húsavík varð fyrir valinu Bandaríska álfyrirtækið Alcoa og ríkisstjórn Íslands hafa undirritað samkomulag um að hefja ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reisa nýtt, 250.000 tonna álver á Bakka við Húsavík. Verði af byggingu þess mun álverið nota rafmagn sem að mestu verður framleitt með vistvænni jarðvarmaorku. Verði ákveðið að reisa nýtt álver á Norðurlandi er fyrstu framkvæmda á svæðinu ekki að vænta fyrr en árið 2010. Innlent 1.3.2006 15:00
ABC barnahjálp safnar fyrir skóla Það er ekki oft sem skrýmsli og furðuverur heimsækja Bessastaði en það gerðist í dag þegar Dorrit Moussaieff, forsetafrú, tók á móti börnum og gaf fé í söfnunina "Börn hjálpa börnum" sem hófst í dag og það var ekki annað að sjá en að Dorrit væri hin hressasta á Bessastöðum þegar hún tók á móti nemendum úr fimmta bekk Álftanesskóla. Innlent 1.3.2006 14:52
Gagnrýnir Nýsköpunarsjóð Runólfur Ágústsson telur að aðstandendur keppninnar um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands séu komnir á hálan ís með afstöðu sinni til kvenna. Vísar hann til ummæla sem Hanna María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna, lét falla í fréttum NFS á mánudagskvöld. Innlent 1.3.2006 13:24
Húsvíkingar vongóðir um álver Andi Einars heitins Benediktssonar athafnaskálds mun væntanlega svífa yfir vötnum á æskuheimili hans í Gamla Bauki á Húsavík í dag, þar sem stuðningsmenn álvers við Húsavík, vonast til að geta fagnað nýju álveri í héraði síðdegis. Innlent 1.3.2006 11:51
Tímaritið aVs lagt niður Tímaritum landsins fækkar um eitt á föstudag. Þá verður tímaritið aVs formlega lagt niður en það hefur verið gefið út í röskan áratug. Í tímaritinu hefur verið fagleg umfjöllun um arkitektúr og skipulag auk tengdra málefna. Innlent 1.3.2006 07:39
Óvenju mikið um sjúkraflutninga Slökkviliðsmenn hafa haft í nægu að snúast síðasta sólarhringinn við sjúkraflutninga. Alls var farið í 88 útköll vegna slíkra flutninga frá klukkan átta í gærmorgun til klukkan átta í morgun og þykir það óvenju mikið. Innlent 1.3.2006 11:43
Slökkviliðsmenn krefjast hærri launa Fjöldi slökkviliðsmanna hefur safnast saman fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara í Borgartúni. Með því vilja slökkviliðsmenn þrýsta á um að laun þeirra verði bætt til muna frá því sem nú er. Innlent 1.3.2006 11:37
Jeppa stolið í Grindavík Toyota Hi-Lux jeppa var stolið í Grindavík síðustu nótt og hefur ekki fundist. Bíllinn er blár að lit með bílnúmerið LT-053. Hann er með 38 tommu hjólbarða og krómaðan veltiboga. Innlent 1.3.2006 11:21
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum Umhverfissvið Reykjavíkurborgar ráðleggur þeim sem eru með viðkvæm öndunarfæri að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum. Ástæðan er sú að svifryk í Reykjavík er hátt yfir heilsuverndarmörkum og er það annan daginn í röð sem slíkt gerist. Innlent 1.3.2006 10:51
Situr ráðherrafund í Kaupmannahöfn Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda, situr í dag fund samstarfsráðherra í Kaupmannahöfn. Þar á að leggja línurnar að helstu áherslum í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar og ákveða fjárlög næsta árs. Innlent 1.3.2006 10:47
Straumur kaupir í Funcom Straumur-Burðarás hefur keypt 5,5 prósenta hlut í norska tölvuleikjaframleiðandanum Funcom sem framleiðir netleiki. Hluturinn var keyptur í lokuðu hlutafjárútboði en allur eignarhluti Straums er metinn á tæpar 800 milljónir króna. Viðskipti innlent 1.3.2006 10:42
Fjögurra milljarða hagnaður Símans Síminn hagnaðist um rúma fjóra milljarða króna á síðasta ári. Það er þriðjungi meiri hagnaður en árið áður þegar félagið hagnaðist um þrjá milljarða króna. Innlent 1.3.2006 10:14
Íslendingur í bresku fangelsi Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri er í gæsluvarðhaldi í Burnley í Englandi, eftir að hann var handtekinn í síðustu viku á hótelherbergi, þar sem 14 ára bresk stúlka var með honum. Innlent 1.3.2006 09:41
Bjóða fram A-lista í Reykjanesbæ Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óflokksbundnir í Reykjanesbæ ætla að bjóða sameiginlega fram til næstu bæjarstjórnarkosninga undir bókstafnum A. Innlent 1.3.2006 09:35
Einna minnst verðbólga á EES-svæðinu Verðbólga hérlendis síðasta árið mælist 1,3 prósent samkvæmt evrópsku neysluverðsvísitölunni, sem er samræmd verðbólgumæling EES-ríkjanna. Þetta er heldur minni verðbólga en á evrópska efnahagssvæðinu þar sem hún mælist 2,2 prósent og evrusvæðinu þar sem hún mælist 2,4%. Innlent 1.3.2006 09:20
Leita að Pompei austursins Haraldur Sigurðsson prófessor í haffræði hefur leitt hóp vísindamanna sem hefur fundið stað sem segja má að sé eins konar Pompei austursins. Innlent 1.3.2006 07:56
Vopnað rán upplýst Lögreglan í Kópavogi hefur upplýst vopnað rán sem var framið í lyfjaversluninni Apótekaranum 22. febrúar. Karlmaður á þrítugsaldri sem hefur alloft komist í kast við lögin hefur viðurkennt að hafa verið að verki. Innlent 1.3.2006 09:08
Ingimundur leiðir F-listann Ingimundur Þ. Guðnason, bæjarstjóri í Garðinum, skipar fyrsta sæti á framboðslista F-listans, lista framfarasinnaðra kjósenda, við sveitarstjórnarkosningar í vor. Ingimundur hefur verið bæjarstjóri í Garði frá 1990 og verður bæjarstjóraefni listans í kosningunum. Innlent 1.3.2006 09:05
Fons kaupir Skeljung á ný Stóru olíufélögin, sem áður fyrr voru einskonar kjölfesta í ákveðnum hagsmunahópum, ganga nú kaupum og sölum. Eignarhaldsfélagið Fons, í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar keyptu í gær Skeljung af Högum, sem er í Baugs-samstæðunni, samkvæmt frétt Morgunblaðsins. Innlent 1.3.2006 09:00
Sprengdu bor lausan Sprengjusérfræðingar sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar fengu óvenjulegt verkefni á dögunum. Þá var kallað eftir þeirra hjálp til að losa jarðbor Íslenskra orkurannsókna sem var pikkfastur á rúmlega kílómetra dýpi nálægt Reykjanesvita. Innlent 1.3.2006 07:40
Heimaþjónusta við sængurkonur leggst af Heimaþjónusta ljósmæðra við sængurkonur, sem fara fljótt heim af fæðingadeildinni, lagðist af á miðnætti, en þá rann út samningur ljósmæðra við Tryggingastofnun, án þess að nýr samningur næðist. Innlent 1.3.2006 08:52
Verðlaunuð fyrir Reykjanesbæjarbók Þorgrímur Þráinsson og Ingibjörg M. Möller urðu hlutskörpust í samkeppni Reykjanesbæjar um handrit að barna- og unglingabók. Innlent 1.3.2006 07:33
Veðjað á álver Spákaupmenn á peningamarkaðnum virðast veðja á að álfyrirtækið Alcoa ætli að reisa álver fyrir norðan, því hækkun krónunnar um rösklega eitt prósent í gær er meðal annars rakin til væntinga til þess. Innlent 1.3.2006 08:02
Hugað að sameiningu á Vesturlandi Unnið er að því að sameina þrjú verkalýðsfélög á Vesturlandi í eitt. Þetta eru verkalýðsfélögin Valur í Dalasýsu, Hörður í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar og Verkalýðsfélag Borgarness. Innlent 1.3.2006 07:31