Innlent
Ekkert eftirlit með vélaolíukaupum Ekkert eftirlit er með því hverjir kaupa vinnuvélaolíu og í hvaða tilgangi en slík olía er rúmlega 43% ódýrari en dieselolían. Yfir 18 sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu selja slíka olíu í sjálfsölum sínum. Eftir að þungaskatturinn var færður af bifreiðum og yfir á dieselolíuverð hafa verið einvher brögð að því að menn kaupi vinnuvélaolíu í stað diesel. Innlent 20.3.2006 20:23
Engar tillögur borist um varnir landsins Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sagði á fundi í Stapanum í kvöld að engar tillögur hefðu borist um hvað koma ætti í stað Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Í samtali við Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdarstjóra Nató sagði de Hoop Scheffer að nauðsynlegt væri að hafa sama viðbúnað á Íslandi og verið hefur og með skuldbindingum Atlantshafsbandalagsins og Íslands gagnvart hvort öðru mætti segja að Bandaríkjaher sé hluti af viðbúnaði alls bandalagsins. Innlent 20.3.2006 20:46
Festist undir brú Vörubíll, sem var á leið austur eftir Kársnesbraut festist undir landbrúnni við Hafnarfjarðarveg og þurfti að loka veginum á meðan lögregla losaði bílinn. Engin slys urðu á fólki en bíllinn eyðilagðist talsvert. Innlent 20.3.2006 20:40
Ljóst í febrúar að vellinum yrði lokað Bandaríkjastjórn ætlar ekki að verja neinu fé til herstöðvarinnar í Keflavík frá 1. október á þessu ári. Samkvæmt heimildum NFS var þetta vitað strax í byrjun febrúar - og var ástæðan fyrir fundi samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna í þeim mánuði. Innlent 20.3.2006 18:57
Orkuveita Reykjavíkur tilbúin að útvega orku í Helguvík Álversframkvæmdir gætu hafist í Helguvík þegar á næsta ári. Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur tilkynnt forsætisráðherra að Orkuveitan geti komið að orkusölu til stóriðju á Suðurnesjum mun fyrr en áður var talið. Innlent 20.3.2006 18:41
Alcoa segist ekki framleiða hergögn Alcoa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Andra Snæs Magnasonar í fréttum NFS í gærkvöld. Þar hafna forsvarsmenn fyrirtækisins því að það sé í hergagnaframleiðslu en viðurkenna að þeir framleiði einstaka hluti úr áli sem notaðir séu við smíði Tomahawk-flugskeyta. Innlent 20.3.2006 18:16
Faldi fíkniefni undir mælaborði bíls Þrjú kíló af hassi og tæplega 47 grömm af kókaíni fundust við tollaeftirlit við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þan sjöunda þessa mánaðar. Fíkniefnin voru falin í rörbúti inn undir mælaborði bíls og í tveimur slökkvitækjum. Ökumaðurinn, sem er pólskur, kom í ferjuna í Danmörku og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. mars næstkomandi. Innlent 20.3.2006 17:56
Hæstiréttur myndi líklega snúa við niðurstöðu Baugsmálsins Hæstiréttur mun líklega snúa við niðurstöðu Héraðsdóms í Baugsmálinu, ef málinu verður áfrýjað. Þetta segir dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Innlent 20.3.2006 17:19
Ráðherrar sagðir pukrast Stjórnarliðar voru sakaðir um pukur á Alþingi í dag vegna umræðu um brotthvarf varnarliðsins. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, sagði þá hafa hannað atburðarásina á miðvikudag þegar tilkynnt var um ákvörðun Bandaríkjamanna að kalla herinn á brott. Því neitaði forsætisráðherra. Innlent 20.3.2006 17:08
Jóhann Ólafsson & Co kaupir Volta ehf Jóhann Ólafsson & Co hefur keypt allt hlutafé í Volta ehf. Í kjölfarið fer í hönd áreiðanleikakönnun og munu eigendaskiptin fara fram þann 4. apríl næstkomandi. Viðskipti innlent 20.3.2006 15:57
Tók á móti undirskriftalistum vegna hágæsluherbergis Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra tók í dag á móti undirskriftalista þar sem hún var hvött til að tryggja rekstur svokallaðs hágæsluherbergis á Barnaspítala Hringsins. Innlent 20.3.2006 15:30
Heimasíða héraðsdóma opnuð Dómstólaráð hefur opnað heimasíðu þar sem framvegis verður hægt að nálgast á einum stað dagskrár allra héraðsdómstóla í landinu og flesta dóma og úrskurði sem kveðnir eru upp hjá dómstólunum. Innlent 20.3.2006 15:05
Fundur stendur yfir Fundur Jaap de Hoop Scheaffer, framkvæmdastjóra Atlandshafsbandalagsins, með Bush Bandaríkjaforseta stendur nú yfir í Hvíta húsinu í Washington. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er meðal annars á dagskrá á fundinum. Innlent 20.3.2006 15:01
Ræðu ráðherra breytt eftir á? Andri Snær Magnason rithöfundur segir að ræðu sem iðnaðarráðherra hafi flutt á Iðnþingi á síðasta ári hafi verið breytt eftir á á heimasíðu ráðuneytisins. Aðstoðarmaður ráðherra vísar þessu á bug. Innlent 20.3.2006 14:35
FL Group styrkir Sinfóníuna FL Group ætlar að styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 10 milljónir króna á ári, næstu fjögur árin. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi FL Group og Sinfóníunnar í hádeginu. Innlent 20.3.2006 14:02
Boðar til fundar stuttu fyrir fund forsætisráðherra Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ boðar til almenns fundar um atvinnumál í dag, þremur klukkustundum á undan forsætisráðherra. Innlent 20.3.2006 12:04
Atkvæðagreiðsla um sameiningu Hafin er atkvæðagreiðsla um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna, sem yrði aðili að Alþýðusambandi Íslands, en ekki Samiðn. Innlent 20.3.2006 12:03
Fagna hugmynd forsætisráðherra Sameiginlegur fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Atvinnuráðs sambandsins fagnar þeirri hugmynd forsætisráðherra að skipuð verði samráðsnefnd ríkis og sveitarstjórnar á Suðurnesjum sem vinni að viðbrögðum við brotthvarfi flugsveita varnarliðsins frá Keflavíkurflugvelli. Innlent 20.3.2006 11:02
Hægt á íslensku víkingaskipunum Verulega hefur hægt á íslensku víkingaskipunum en þau virðast þó ekki hafa orðið fyrir varanlegu tjóni, segir meðal annars í ítarlegri grein breska blaðsins Sunday Telegraph um íslenskt efnahagslíf, og birt var í gær. Innlent 20.3.2006 09:46
Sjúkraflugum fjölgar Rúmlega ellefu hundruð manns voru fluttir með sjúkraflugi til og frá Reykjavíkruflugvelli í fyrra, sem er fjölgun um fjögur hundruð frá árinu áður. Þetta kom fram í svari samgönguráðhera við fyrirspurn á Alþingi. Þar kemur einnig fram að miklar sveiflur eru í þessum flutningum milli ára og var óvenju mikið um sjúkraflug í fyrra. Lang flestir sjúklingar, sem fluttir eru til Reykjavíkur, eru lagðir inn á Landsspítalann. Innlent 20.3.2006 10:43
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, er 325,9 stig en það er 0,18 prósenta hækkun frá því í febrúar. Vísitalan gildir fyrir apríl, að sögn Hagstofunnar. Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 4,2 prósent síðastliðna 12 mánuði. Viðskipti innlent 20.3.2006 09:56
Intrum innheimtir fyrir Borgarbókasafnið Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur samið við innheimtufyrirtækið Intrum um að hafa uppi á þeim sem láta undir höfuð leggjast að skila bókasafnsbókum. Bókasafnsbækur má hafa að láni í mánuð en tíu króna dagsektir bætast ofan á ef farið er fram yfir þann tíma. Innlent 20.3.2006 08:55
Áfengi í vörslu lögreglu Allt áfengi af barnum á veitingahúsinu Kaffi Láru á Seyðisfirði, hefur verið í vörslu lögreglu síðan á föstudagskvöld og vistað í læstum fangaklefa, að fyrirmælum sýslumanns. Innlent 20.3.2006 08:51
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki Samherja í Grimsby Nýtt fiskvinnslufyrirtæki í eigu Samherja, mun taka til starfa í Grimsby í Bretlandi á næstunni og á það að heita Ice Fresh Seafood. Aukast þá enn umsvif íslendinga á Humbersvæðinu í Bretlandi, en talið er að þar búi nú um 200 íslendingar sem hafi fjölda Breta í vinnu. Innlent 20.3.2006 08:45
Ökumaður ölvaður Vitni telja það mildi að ekki hlaust stór slys af, þegar ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Kringlumýrarbraut á níunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn lenti utan í vegriði á milli akbrautanna og braut það niður á að minnstakosti tuttugu metra kafla uns hann nam staðar, stór skemmdur. Ökumaður tók þá til fótanna, en lögreglumenn hlupu hann uppi. Kalla þurfti á slökkvilið til að hreinsa olíu og bensín úr bílnum, á vettvangi. Innlent 20.3.2006 09:13
Pálmi Haraldsson kaupir Hekla Travel Pálmi Haraldsson, sem á sínum tíma keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi FL Group, hefur keypt dönsku ferðaskrifstofuna Hekla Travel. Innlent 20.3.2006 08:42
Hagvöxtur 5,5% á síðasta ári Hagvöxtur hér á landi var 5,5% á síðasta ári. Frá þessu er greint í vefriti fjármálaráðuneytisins í morgun en tekið er fram að talan geti breyst þegar Hagstofan fær frekari gögn til að vinna úr. Innlent 20.3.2006 07:58
Meiddist á hrygg eftir vélsleðaslys Kona meiddist á hrygg þegar hún datt af vélsleða uppi á Langjökli síðdegis í gær. Samferðafólk hennar kallaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og tókst áhöfn hennar að lenda á jöklinum, þrátt fyrir vont skyggni. Flogið var með konuna á slysadeild Landsspítalans og reyndist hún minna meidd en óttast var. Eftir rannsóknir og aðhlynningu fékk hún að fara heim. Innlent 20.3.2006 07:38
Lánshæfi staðfest Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poors staðfesti fyrir helgi lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Viðskipti innlent 19.3.2006 23:03
Flugmálastjórn í stríð við flugumferðarstjóra Yfirmenn Flugmálastjórnar eru komnir í stríð við starfsmenn sína, segir formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Þeir eru mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem var tekið upp, þrátt fyrir að svipuðu vaktakerfi hafi verið hafnað í kjarasamningum. Innlent 19.3.2006 18:05