Kvöldfréttir Stöðvar 2
1 2 3 4 5 6 7 8 … 63 ›
Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína Framtíð ríkisstjórnarsamstarfsins er ekki ljós, en forystumenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segjast tilbúnir í kosningar. Þeir útiloka ekki að mynda ríkisstjórn hvor með öðrum, fái þeir til þess umboð kjósenda. Innlent 12.10.2024 18:09
Hver er framtíð ríkisstjórnarinnar? Engin niðurstaða fékkst á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem boðað var til í skyndi í dag. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir nýjustu vendingar í beinni útsendingu og spáum í stöðu og framtíð ríkisstjórnarinnar, sem er þrungin óvissu. Við ræðum við formann Sjálfstæðisflokksins og fáum Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing í myndver. Innlent 11.10.2024 17:59
Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Ekki er útilokað að boðað verði til verkfalla í fleiri skólum en að óbreyttu leggja kennarar í átta skólum niður störf síðar í mánuðinum. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið. Innlent 10.10.2024 18:02
Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Óttast er að fellibylurinn Milton, sem skellur á Flórída af fullum þunga í nótt, verði mannskæður og hafi katastrófískar afleiðingar víða í ríkinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Íslending á hættusvæði sem segir biðina eftir hamförum kvíðvænlega. Innlent 9.10.2024 18:02
Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Skæruverkföll eru fram undan í átta skólum samþykki kennarar verkfall í atkvæðagreiðslu sem er hafin. Ekki hefur verið gefið upp í hvaða skólum kennarar hyggjast leggja niður störf en formaður Kennarasambands Íslands mætir í myndver og segir frá fyrirhuguðum aðgerðum og stöðu deilunnar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 8.10.2024 17:39
Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Sala á lyfinu Ozempic, sem oft er notað til að stuðla að þyngdartapi, hefur meira en tuttugufaldast á einungis fimm árum. Sölutölur það sem af er ári gefa til kynna að notkun þyngdarstjórnunarlyfja sé enn að stóraukast. Læknir óttast of auðvelt aðgengi fólks að lyfjunum. Innlent 7.10.2024 18:02
Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Innlent 6.10.2024 18:03
Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Beirút, höfuðborg Líbanon, er líkt við stríðssvæði. Ísraelsmenn og Hezbollah samtökin hafa gert árásir á báða bóga á landamærunum í dag á sama tíma og fólk á Gasasvæðinu er hvatt til að flýja. Lögregla þurfti að hafa afskipti af mótmælendum í Reykjavík á samstöðufundi fyrir Palestínu. Innlent 5.10.2024 18:06
Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Samkynhneigðir karlmenn fá að gefa blóð hér á landi frá og með næsta ári. Heilbrigðisráðherra segir mikið ánægjuefni að þetta skref sé loks tekið. Innlent 4.10.2024 18:02
Heilsugæslan til rannsóknar og síðasta farþegaflug júmbóþotu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rifti samningi sínum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ um aðgang að sjúkraskrám eftir nýlegan úrskurð Persónuverndar. Rætt verður við forstjóra Persónuverndar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 3.10.2024 18:02
Lækkaðir stýrivextir og óánægja með afnám kynjaskiptingar Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta sinn í fjögur ár í morgun. Við ræðum við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna í beinni í kvöldfréttum. Innlent 2.10.2024 18:02
Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum Íran skaut nú síðdegis eldflaugum að Ísrael. Neyðarástandi var lýst yfir í Ísrael og loftvarnarlúðrar ómuðu í helstu borgum. Svo virðist sem hættan sé liðin hjá í bili. Við förum yfir nýjustu vendingar fyrir botni Miðjarðarhafs í kvöldfréttum Stöðvar 2, sýnum myndir frá loftárás Írana og rýnum í stöðuna með Samúel Karli Ólasyni, fréttamanni. Innlent 1.10.2024 18:03
Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám Menntamálaráðherra boðar nýtt og gríðarumfangsmikið matskerfi, sem taka á upp í grunnskólum á næsta skólaári. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar. Viðskiptaráð segir einfalt að gera breytingar á kerfinu, það þurfi að taka upp samræmd próf á ný. Innlent 30.9.2024 18:00
Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Íbúar í Vogabyggð lýsa yfir miklum áhyggjum af gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar, þar sem banaslys varð í nótt er ekið var á gangandi vegfaranda, og krefjast úrbóta. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og rætt verður við G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Innlent 29.9.2024 18:02
Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Í kvöldfréttum Stöðvar 2 köfum við í pólitíkina en kosningabarátta er hjá flestum flokkum komin á fullt. Við heyrum í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem er spennt fyrir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks. Innlent 28.9.2024 18:07
„Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis Vernda þarf börnin á Stuðlum fyrir hvert öðru en húsakosturinn býður ekki upp á aldursskiptingu að sögn framkvæmdastjóra hjá Barna- og fjölskyldustofu. Leitað sé logandi ljósi að nýju húsnæði en þangað til sé uppi „skítastaða“ eins og hann kemst að orði vegna óheillaþróunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 27.9.2024 18:00
Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Móðir þrettán ára drengs, sem er með ADHD og fíknivanda, stendur bæði ráðþrota og örmagna frammi fyrir kerfinu. Hún segir galið að ekki sé aldursskipt úrræði í boði hjá Stuðlum. Þar hafi hann komist í kynni við eldri stráka í mun verri málum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við móðurina sem segir engin úrræði í boði fyrir drenginn sinn. Innlent 26.9.2024 18:01
Stórfelldur þjófnaður í matvörubúðum og slysahætta á „ævintýraeyju“ Erlend þjófagengi herja á búðir hér á landi og á síðasta ári nam andvirði þýfisins í matvöruverslunum um fjórum milljörðum króna. Þá hafa eldri konur orðið sérstaklega fyrir barðinu á skipulögðum glæpahópum í verslunum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 25.9.2024 18:03
Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Talsverð tíðindi eru í glænýrri könnun Maskínu; þeirri fyrstu sem birtist eftir upphaf síðasta þingvetrar kjörtímabilsins. Heimir Már Pétursson rýnir í könnunina í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formannsefni VG, sem telur rétt að stefna að kosningum í vor. Þá heyrum við í formönnum Miðflokksins og Flokks fólksins í beinni útsendingu. Innlent 24.9.2024 18:00
Ótti um allsherjarstríð, ringulreið á lánamarkaði og íslenskir sæðisgjafar Hátt í þrjú hundruð hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í dag og þúsundir flýja suðurhluta landsins. Ótti um allsherjarstríð fer vaxandi. Farið verður yfir viðkvæma stöðu fyrir botni Miðjarðarhafs í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 23.9.2024 18:02
Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Maður sem er nýbúinn fá þjálfun í skyndihjálp bjargaði lífi félaga síns þegar hann fór í hjartastopp á Old boys fótboltaæfingu hjá Þrótti nú í ágúst. Stuttu síðar nýtti hann aftur þekkingu sína þegar annar leikamaður meiddist illa á æfingu. Félagar hans hafa ákveðið að tilnefna hann skyndihjálparmann ársins. Rætt verður við félagana í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 22.9.2024 18:02
Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Maður, sem er með MND-sjúkdóminn, hefur í þrjú ár þurft að berjast við Kópavogsbæ til að fá fulla ummönun vegna veikinda hans. Hann er hræddur um að kerfið sé að ganga frá eiginkonu hans sem er eini stuðningurinn sem hann fær. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 21.9.2024 18:06
Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair. Innlent 20.9.2024 18:02
Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Dæmi eru um að aðstandendur hafi endað á örorku og fatlaðir einstaklingar hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu. Í kvöldfréttunum verður rætt við Harald Þorleifsson baráttumann og frumkvöðul, sem bíður eftir að fá þjónustu. Innlent 19.9.2024 18:02
Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, og fjölskylda hans verða ekki flutt af landi brott fyrir laugardag. Þau munu þá geta krafist efnislegrar meðferðar á máli sínu. Innlent 18.9.2024 18:10
Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir lögreglu ekki ætla að eyða tíma í að eltast við sögusagnir í Krýsuvíkurmálinu þegar engar ábendingar eða sönnunargögn liggi fyrir um annað en það sem faðirinn hefur sjálfur sagt hafa gerst. Farið verður yfir stöðu málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 17.9.2024 18:01
Harmleikur á Krýsuvíkurvegi og harkalegar aðgerðir lögreglu Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað tíu ára gamalli dóttur sinni um kvöldmatarleytið í gær. Rætt verður við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón hjá miðlægri rannsóknardeild, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.9.2024 18:02
Mannskæð flóð og fækkun fiskbúða í borginni Minnst sjö hafa látist í flóðunum sem gengið hafa yfir Mið- og Austur-Evrópu eftir storminn Boris. Fjölmargra er saknað. Íslendingur í Vín segist aldrei hafa séð annað eins á þeim átta árum sem hann hefur búið á svæðinu. Innlent 15.9.2024 18:01
Kostnaður við vaxtahækkanir og umdeild stytta Boðaðar vaxtahækkanir á verðtryggðum húsnæðislánum geta kostað heimilin tugi þúsunda aukalega á mánuði. Þetta endurspeglar vaxtaumhverfið á Íslandi í dag og hefur slæm áhrif á heimilin, segir dósent í viðskiptafræði. Þá gerir það illt verra að ekki standi til að endurnýja almenna heimild til að ráðstafa séreignasparnaði inn á húsnæðislán. Innlent 14.9.2024 18:01
Ráðherra stendur fastur á sínu og möguleg ofgreining á ADHD Dómsmálaráðherra stendur keikur við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Farið verður yfir gagnrýnina og þróun málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.9.2024 18:12