Erlent
Jórdanía: Sjálfsmorðsárásir á þremur hótelum Sprengja sprakk á þriðja hótelinu á skömmum tíma í Amman, höfuðborg Jórdaníu, fyrir skemmstu. Þriðja hótelið er Days Inn hótelið en áður hafði verið tilkynnt um sprengingar á hótelunum Radisson SAS og Grand Hyatt en öll hótelin eru vinsæl á meðal vestrænna ferðamanna. Erlent 9.11.2005 20:48
Forseti Kína í opinberri heimsókn í Bretlandi Hu Jintao, forseti Kína spásseraði um sali breska þingsins í dag og ræddi við breska ráðamenn, en hann er í opinberri heimsókn í Bretlandi. Mannréttindafrömuðir tóku honum ekki jafnvel heldur mótmæltu og veifuðu tíbetskum fánum. Erlent 9.11.2005 20:07
Lengsta samfellda flug farþegaþotu Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sendu í morgun vél af gerðinni 777 í loftið frá Hong Kong og hún á ekki að lenda fyrr en á morgun, eftir tuttugu og þriggja tíma flug. Leiðin liggur frá Hong Kong yfir Bandaríkin til Evrópu, en vélin á að lenda á Heathrow í fyrramálið. Ef þetta tekst er um að ræða lengsta samfellda flug farþegaþotu, bæði mælt í tíma og kílómetrum. Erlent 9.11.2005 20:01
Fimm hið minnsta látnir í tveimur sprengingum í Jórdaníu Að minnsta kosti fimm eru látnir og fjörutíu særðir eftir að sprengjur sprungu á tveimur hótelum í Amman, höfuðbog Jórdaníu, fyrir stundu. Önnur sprengjan, sú fyrri að því er virðist, sprakk á Radisson-hótelinu sem er vinsælt á meðal ísraelskra ferðamanna. Erlent 9.11.2005 20:01
Venus Express skotið á loft Það tókst vel til í morgun þegar geimflauginni Venus Express var skotið á loft. Þar með hófst könnunarferð til Venusar, næsta nágranna jarðarinnar. Vísindamenn vonast til að verða margs vísari um hlýnun jarðar en hundrað sextíu og einn dag tekur fyrir flaugina að komast á áfangastað. Erlent 9.11.2005 19:59
Demókratar sigruðu í Virginíu og New Jersey George Bush, Bandaríkjaforseti, fékk á baukinn í gær þegar demókratar höfðu betur í ríkisstjórakosningum í lykilríkjunum Virginíu og New Jersey. Því til viðbótar höfnuðu kjósendur umbótatillögum sem Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, lagði til. Erlent 9.11.2005 19:53
Rannsakað hvernig fjölmiðlar fréttu af málinu Rannsókn er hafin á fregnum um leynifangelsi bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Tilgangurinn er að vísu ekki að komast að því hvort slík fangelsi séu til, heldur hvernig fjölmiðlar fengu veður af málinu. Erlent 9.11.2005 19:35
Blair galt afhroð í fyrsta sinn Í fyrsta sinn frá því að Tony Blair varð forsætisráðherra Bretlands galt hann í dag afhroð í þinginu. Þingmenn höfnuðu með afgerandi hætti drögum Blairs að hryðjuverkalögum þrátt fyrir ákafar tilraunir hans til að telja þingheimi hughvarf. Erlent 9.11.2005 19:14
Staðfest að stúlka lést úr fuglaflensu í Indónesíu Staðfest hefur verið að banamein 16 ára indónesískrar stúlku sem lést gær, hafi verið fuglaflensa og er hún þar með sjötta fórnarlamb veikinnar í Indónesíu, en alls hafa tíu greinst með flensuna í landinu. Erlent 9.11.2005 13:11
Mæla með aðild Makedóníu að Evrópusambandinu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til í dag að Makedóníu yrði veitt aðild að Evrópusambandinu, aðeins fjórum árum eftir að landið var á barmi borgarastyrjaldar. Erlent 9.11.2005 13:22
Lestarslys í norðurhluta Indlands Að minnsta kosti fimm létu lífið þegar yfirfull farþegalest og flutningalest rákust saman í norðurhluta Indlands í dag. Lögregla á staðnum segir enn fjölda fólks fastan í flaki eins vagnanna sem kramdist undir flutningalestinni, en áreksturinn var svo harður að fjórir farþegavagnar fóru út af sporinu. Því er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Erlent 9.11.2005 12:38
Bandaríkjaher segist hafa yfirbugað uppreisnarmenn í Qusayba Bandaríski herinn segist hafa náð að handtaka eða drepa alla uppreisnarmenn í borginni Qusayba við landamæri Sýrlands. Erlent 9.11.2005 12:17
Óeirðir færast í vöxt utan Frakklands Útgöngubann og hert löggæsla skilaði tilætluðum árangri í París í nótt. Í öðrum borgum landsins og nokkrum borgum í Þýskalandi og Belgíu hafa óeirðir hins vegar færst í vöxt. Erlent 9.11.2005 12:03
Tvísýnt um örlög hryðjuverkafrumvarps í Bretlandi Bæði Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, og Jack Straw, utanríkisráðherra landsins, hafa verið kallaðir heim frá útlöndum til þess að taka þátt í mikilvægri atkvæðagreiðslu um umdeilt frumvarp bresku stjórnarinnar um varnir gegn hryðjuverkum sem bera á undir breska þingið í dag. Erlent 9.11.2005 10:00
Rannsakar hryðjuverkaspólur sem dreift var í moskum Lögregla í Vestur-Yorkshire á Bretlandi rannsakar nú hvort myndböndum og DVD-diskum þar sem hvatt er til hryðjverka og ofbeldis hafi verið dreift í tveimur moskum í bænum Dewsbury um helgina. Erlent 9.11.2005 08:38
Hamingjusamir jafna sig fyrr á flensu Fólk sem er í hamingjusömu sambandi á auðveldara með að sigrast á flensu en þeir sem eru ósáttir í hjónabandi. Niðurstöður nýrrar rannsóknar lækna í Birmingham benda til þess að bein fylgni sé á milli hamingju í hjónabandi og þess hve fljótt fólk jafnar sig af flensu. Erlent 9.11.2005 07:33
Brown kallaður heim frá Ísrael vegna þingmáls Ferð Gordons Browns, fjármálaráðherra Bretlands, til Miðausturlanda varð heldur endaslepp því skömmu eftir að hann kom til Tel Aviv í Ísrael í gær var hann kallaður aftur heim til að taka þátt í mikilvægri atkvæðagreiðslu um lög gegn hryðjuverkum sem bera á undir breska þingið í dag. Erlent 9.11.2005 07:44
Japanar kaupa fuglakjöt af Indverjum vegna flensu Japanar hyggjast í fyrsta sinn kaupa alifuglakjöt frá Indlandi vegna fuglaflensunnar sem geisar í Asíu. Japanar hafa hingað til keypt fuglakjöt frá Taílandi og Kína en eftir að fuglaflensa greindist þar hafa yfirvöld bannað allan innflutning þaðan. Erlent 9.11.2005 07:41
Geimskutla af stað áleiðis til Venusar Geimskutlan Venus Express tók á loft frá Kasakstan í nótt. Geimvísindastofnun Evrópu hefur hannað flaugina, sem er ætlað að rannsaka yfirborð plánetunnar Venus. Geimskotið í nótt heppnaðist vel, en því var frestað um tvær vikur eftir að rannsóknir leiddu í ljós bilun í hitastilli. Erlent 9.11.2005 07:30
Unglingur gerði skotárás í gagnfræðaskóla Fimmtán ára gamall drengur hóf í gær skothríð í gagnfræðaskóla í Tennessee í Bandaríkjunummeð þeim afleiðingum að einn lést og tveir særðust alvarlega. Sá sem lést var aðstoðarskólastjóri í skólanum og annar hinna særðu var skólastjórinn. Ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir að sögn lögreglu. Erlent 9.11.2005 07:25
Vændishringur upprættur í Danmörku Ellefu karlmenn voru handteknir í Danmörku og Lettlandi í gær í umfangsmiklum aðgerðum dönsku og lettnesku lögreglunnar gegn mansali og vændi. Aðgerðin er stærsta aðgerð og samvinna embættanna til þessa við að uppræta stóran glæpahring. Innlent 9.11.2005 07:40
Mannskæð bílsprengjuárás í Baquba Bílasprengja sprakk í Írak í dag. Sjö írakskir lögreglumenn létust og níu manns særðust, þar á meðal þrír almennir borgarar, þegar bílasprengja sprakk í sjálfsmorðsárás á lögreglusveit. Árásin átti sér stað í borginni Baquba, sem er rétt norðan við Bagdad. Erlent 9.11.2005 07:39
CIA rannsakar upplýsingaleka um leynifangelsi Bandaríska leyniþjónustan hefur hafið rannsókn á því hvernig dagblaðið Washington Post komst yfir upplýsingar um meint leynifangelsi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Leyniþjónustan hefur farið þess á leit að dómsmálaráðuneytið kanni hver hafi lekið upplýsingunum í Washington Post. Erlent 9.11.2005 07:16
Óeirðir áfram víða um Frakkland Útgöngubann og hert löggæsla skiluðu tilætluðum áhrifum í París í nótt. Mikið dró úr óeirðunum í borginni, en sömu sögu er ekki að segja úr öðrum borgum landsins. Í Lyon, Toulouse, Bordeux og Amiens héldu óróaseggir uppteknum hætti og þar logaði allt í óeirðum. Erlent 9.11.2005 07:09
Frakkar setja útgöngubann Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi svo að setja mætti útgöngubann í óeirðabæjum. Villepin forsætisráðherra segir að uppræta verði misréttið sem innflytjendur megi stöðugt þola. Erlent 9.11.2005 02:23
Komið í veg fyrir stórt hryðjuverk Lögreglan í Ástralíu handtók snemma í gærmorgun sautján manns sem grunaðir eru um samsæri um að fremja mannskæða hryðjuverkaárás í landinu. Meðal hinna handteknu er herskár múslimaklerkur, Abu Bakr að nafni, sem er þekktur fyrir að hafa borið lof á Osama bin Laden. Innlent 9.11.2005 01:17
Kona dæmd fyrir nauðgun Kona var í gær dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir nauðgun í Björgvin. Nauðgunin átti sér stað í byrjun þessa árs en konan sem er 24 ára var þá í samkvæmi ásamt unnusta sínum og öðrum manni á fertugsaldri. Maðurinn bar að hann hefði sofnað en vaknað aftur við að konan var að hafa við hann munnmök meðan unnustinn tók myndir. Erlent 9.11.2005 01:30
Víetnami deyr úr fuglaflensu Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann er sá fyrsti sem deyr af völdum veikinnar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Erlent 9.11.2005 01:40
Weah talinn líklegri Síðari umferð forsetakosninganna í Líberíu fór fram í gær þar sem áttust við Harvard- menntaður hagfræðingur og heimsþekktur knattspyrnukappi. Ellen Johnson-Sirleaf og George Weah voru hlutskörpust í fyrri umferðinni sem fram fór 11. október síðastliðinn. Erlent 9.11.2005 02:19
Sá sjóræningjann glotta við tönn Áhöfn og farþegar skemmtiferðaskipsins Seabourn Spirit komust í hann krappan úti fyrir ströndum Sómalíu um helgina þegar sjóræningjar gerðu tilraun til að ræna skipinu. "Þetta var óhugnanleg upplifun, ég get fullvissað þig um það," sagði Charles Supple, stríðshetja úr síðari heimsstyrjöldinni og einn af 160 farþegum Seabourn Spirit, í samtali við AP-fréttastofuna á mánudag, en þá lagði skipið að bryggju á Seychelleseyjum í Indlandshafi. Erlent 9.11.2005 02:34
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent