Erlent
Heldur umbótum Schröders áfram Angela Merkel, kanslari Þýskalands, boðaði í stefnuræðu sinni í þýska Sambandsþinginu í gær að halda þeim kerfisumbótum áfram sem lagt hefði verið af stað með í tíð fyrri ríkisstjórnar, með það að markmiði að blása nýjum þrótti í efnahags- og þjóðlíf Þýskalands. Erlent 30.11.2005 22:19
Myndband birt af gíslunum Sjónvarpsstöðin al-Jazeera hefur birt myndir af fjórum friðarsinnum sem eru í haldi samtaka sem kalla sig Sverð réttlátu herdeildanna. Þá er þýskur fornleifafræðingur og íraskur bílstjóri hennar í gíslingu mannræningja. Erlent 30.11.2005 22:19
Herinn ekki frá Írak fyrr en verkinu lýkur George W. Bush Bandaríkjaforseti kynnti í gær stefnu stjórnar sinnar í málefnum Íraks. Hann hafnaði því að setja bandaríska herliðinu í landinu nokkur tímamörk heldur sagði það munu snúa heim þegar aðstæður leyfðu. Erlent 30.11.2005 22:19
Fjöldi félaga var tekinn fastur Mohammed Mahdi Akef, leiðtogi Bræðralags múslima, segir að markmið fjöldahandtaka egypsku lögreglunnar á félögum í samtökunum sé að hræða fólk frá þátttöku í síðustu umferð egypsku þingkosninganna sem hefjast í dag. 900 múslimabræður hafa verið klófestir að undanförnu. Erlent 30.11.2005 22:19
Brýst inn hjá sofandi fólki Sænska lögreglan leitar nú um gjörvalla Svíþjóð að innbrotsþjófi sem brýst inn í svefnherbergi hjá sofandi fólki í Suður-Svíþjóð. Svefnherbergisþjófurinn er grunaður um 200 innbrot, þar af 150 í Trelleborg, en einhvern veginn tekst lögreglunni ekki að stöðva hann. Erlent 30.11.2005 22:19
Innan marka tjáningarfrelsis Prestur í sænskum hvítasunnusöfnuði, sem í stólræðu líkti samkynhneigð við "krabbameinsæxli á þjóðarlíkamanum", hét því í gær að hann væri hættur að skammast út í homma eftir að Hæstiréttur Svíþjóðar sýknaði hann af ákæru um brot á ströngum lögum gegn hatursáróðri. Erlent 30.11.2005 22:19
Lögregla handtekur nakta bankaræningja í El Salvador Lögreglan í El Salvador handtók tvo nakta menn á þriðjudag þar sem þeir voru að grafa göng að bankahvelfingu í höfuðborginni San Salvador. Unnið hafði verið að gangagerðinni dögum saman. Mennirnir voru nærri komnir að bankanum þegar þeir uppgötvuðust af tilviljun þegar hluti ganganna hrundi svo að stór hola myndaðist á götunni. Erlent 30.11.2005 21:07
Þrýstingur eykst á Bandaríkjastjórn Þrýstingur jókst enn á Bandaríkjastjórn í dag þegar breska stjórnin staðfesti að hún hefði farið formlega fram á upplýsingar um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Evrópusambandið er að kanna hvort aðildarríki þess, eða ríki sem sækjast eftir aðild, hafi leyft starfsemi ólöglegra fangelsa á vegum Bandaríkjastjórnar. Erlent 30.11.2005 21:51
Peres sagði skilið við flokk sinn Rúmlega sex áratuga langri samleið Shimon Peres og ísraelska Verkamannaflokksins lauk í dag þegar hann sagði sig úr flokknum og lýsti yfir stuðningi við Ariel Sharon og nýstofnaðan flokk hans sem nefnist Kadima. Erlent 30.11.2005 20:27
Viðræður innan tveggja vikna Íranir ætla að hefja viðræður við Evrópusambandið um framtíð kjarnorkuáætlunar þeirra innan tveggja vikna sagði Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, í dag. Erlent 30.11.2005 19:40
Grunur um sprengju á lestarstöðinni í Hróarskeldu Öll umferð um lestarstöðina í Hróarskeldu í Danmörku var stöðvuð um tíma í dag vegna grunsamlegs poka sem skilinn hafði verið eftir á stöðinni. Lögregla var kölluð á vettvang vegna gruns um að sprengja leyndist í pokanum. Erlent 30.11.2005 18:23
Varð fyrir hraðlest í Svíþjóð 15 ára gömul stúlka lést í gærkvöld þegar hún gekk ásamt tveimur jafnöldrum sínum í veg fyrir hraðlest skammt frá Gautaborg í Svíþjóð. Stúlkurnar fóru fram hjá hindrunum sem stöðva eiga umferð yfir járnbrautarteinana eftir að tvær lestir höfðu farið hjá og náðu tvær stúlknanna yfir sporin áður en hraðlestin hafnaði á þeirri þriðju. Erlent 30.11.2005 18:07
Stefnt að því að kalla um 20.000 bandaríska hermenn heim frá Írak Bandaríkjastjórn stefnir að því að kalla tuttugu þúsund hermenn heim frá Írak eftir þingkosningar í landinu um miðjan desember. Bush forseti segir að vilji Íraka muni ráða því hvort bandarískum hermönnum í landinu verði fækkað eða fjölgað á næstu mánuðum. Innlent 30.11.2005 11:58
Þúsundasta aftakan vekur umræður í Bandaríkjunum Reiknað er með að í dag fari fram eitt þúsundasta aftakan í Bandaríkjunum frá því þær voru aftur teknar upp þar eftir tíu ára hlé árið 1977. Erlent 29.11.2005 23:21
Sjö hundruð á sjúkrahús vegna kuldanna Sjö hundruð manns hafa verið fluttir fárveikir á sjúkrahús á veturbörðum hamfarasvæðunum í Pakistan. Átta manns hafa þegar fallið af völdum vetrarkuldanna við Himalaja-fjallgarðinn. Erlent 30.11.2005 11:57
Fellybylir hafa aldrei valdið jafn mikilli eyðileggingu og árið 2005 Fellibylir gætu valdið jafnmiklum eða meiri óskunda á næsta ári en þessu að mati sérfræðinga. Fellibyljatímabilinu lýkur formlega á morgun og aldrei í sögunni hafa fellibylir valdið jafnmikilli eyðileggingu og árið 2005. Erlent 30.11.2005 11:56
Tveir fórust í eldsvoða í Færeyjum Kona á níræðisaldri og sonur hennar á sjötugsaldri, fórust í eldsvoða í Suðurvogi í Færeyjum í gærkvöldi, sennilega vegna reykeitrunar. Ekki var um mikinn eld að ræða en talið er að eldsupptök hafi verið í kjallara hússins. Mæðginin voru ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. Erlent 30.11.2005 07:53
Styrkur Golfstraumsins hefur minnkað um 30% Golfstraumurinn hefur veikst um 30 % á síðustu fimmtíu árum, samkvæmt nýjasta tölublaði vísindaritsins Nature. Þá kemur einnig fram að hluti Golfstraumsins sé fastur í hringiðu í sunnanverðu Atlantshafi í stað þess að fara alla leið norður til Íslands og Grænlands. Erlent 30.11.2005 23:01
Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna í Írak Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna á sendibifreið nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Tveir slösuðust í árásinni. Yfirvöld í Írak búast við hrinu árása í landinu í næstu tveim vikum, í aðdraganda þingkosninganna fimmtánda desember. Erlent 30.11.2005 07:27
Bandaríkjamenn hefja ítarlega rannsókn á hugsanlegum leynifangelsum CIA Bandaríkjamenn ætla að hefja ítarlega rannsókn á því hvort leyniþjónustan CIA, haldi úti leynifangelsum í Austur-Evrópu. Þetta sagði Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundi sínum með Frank-Walter Steinmeyer, utanríkisráðherra Þýskalands í gær. Erlent 30.11.2005 07:25
Bensínverð hækkar Bensín hækkaði á sjálfsafgreiðslustöðvum í gær um um það bil krónu á lítrann eftir að stóru olíufélöginn hækkuðu bensínveðrið um álíka upphæð í fyrardag. Díselolían fylgir eftir en er yfirelitt um krónu ódýrari en bensín. Innlent 30.11.2005 07:21
Rjúpnaveiðitímabilinu lýkur í dag Síðasti rjúpnaveiðidagurinn er í dag og lýkur veiðitímanum á miðnætti, en veiðarnar stóðu fram undir jól, áður en rjúpnaveiðibannið tók gildi fyrir tveimur árum. Innlent 30.11.2005 07:17
Þrír hlutu áverka eftir árás varðhunda Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir árás þriggja varðhunda við pósthúsið í Marieholm í nágrenni Eslöv í Svíþjóð í gærkvöldi. Enginn hlaut alvarlega áverka en tveir voru fluttir á sjúkrahús með sjúkrabíl en sá þriðji í einkabíl. Lögreglan fór á staðinn til að leita hundanna en án árangurs. Erlent 30.11.2005 07:11
Efast um lögmæti kjörfundar Flokkur sem efla vill tengslin við yfirvöld í Moskvu vann yfirburðasigur í þingkosningunum í Tsjetsjeníu á sunnudaginn. Mannréttindasamtök bera brigður á að kosningarnar hafi verið frjálsar og óháðar. Erlent 29.11.2005 23:21
Einn beið bana þegar fólksbíll og olíuflutningabíll skullu saman í Noregi Einn maður beið bana þegar fólksbíll og olíuflutningabíll skullu saman í nágrenni Akershus í Noregi í gær. Við áreksturinn kviknaði mikill eldur en olíuflutningabíllinn var að flytja 28 þúsund lítra af bensíni og 13 þúsund lítra af olíu. Erlent 30.11.2005 06:48
Fóstrin sögð lifa aðgerðina Breska blaðið Daily Mail greindi frá því í vikunni að á Bretlandi sé talið að árlega lifi um fimmtíu fóstur af þegar reynt er að eyða þeim. Sum eru sögð lifa jafnvel fleiri en eina aðgerð. Erlent 29.11.2005 23:21
Boða byggingu kjarnorkuvera Breska ríkisstjórnin hyggst fjölga kjarnorkuverum í landinu til að mæta aukinni orkuþörf. Íslensk stjórnvöld fylgjast grannt með framvindu mála. Erlent 29.11.2005 23:21
Stökkbreyting í flensuveirunni Fuglaflensuveiran sem fundist hefur í fólki í Kína hefur þegar stökkbreyst og er öðruvísi en sá stofn veirunnar sem fundist hefur í fólki í Víetnam. Þetta fullyrða talsmenn heilbrigðisráðuneytisins í Kína. Enn er þó ekki talið að veiran geti borist beint á milli manna, en margir óttast að slíkt geti leitt til heimsfaraldurs. Erlent 29.11.2005 23:20
Kosningum flýtt í Kanada Vantraustsyfirlýsing var í gær samþykkt á Kanadastjórn, minnihlutastjórn Frjálslynda flokksins undir forystu Paul Martin. Kosið verður seint í janúar. Erlent 29.11.2005 23:21
Fjórir Pólverjar í gæsluvarðhald Tveir Pólverjar hafa verið úrskurðaðir í einangrunarvist fram á Þorláksmessu vegna morðsins á ungum Gambíumanni sem fannst látinn á hótelherbergi í Kaupmannahöfn í fyrradag. Tvær pólskar konur voru einnig úrskurðaðar í varðhald en Pólverjarnir eru allir sagðir hafa verið á hótelinu á sama tíma og morðið var framið. Erlent 29.11.2005 23:21