Íþróttir

Fréttamynd

Raikonnen vann á Spáni

Finnski ökuþórinn Kimi Raikonnen vann nokkuð auðveldan sigur í spænska kappakstrinum í Formúlu eitt um helgina og lyfti sér með sigrinum í þriðja sætið í keppni ökumanna.

Sport
Fréttamynd

Norðurlandamótið í júdó í dag

112 keppendur eru skráðir til leiks á Norðurlandamótinu í júdó sem fram fer í TBR-húsinu við Gnoðarvog í dag. Mótið hófst í morgun en úrslit hefjast um klukkan 16. Júdómenn gera sér vonir um að vinna 3-4 Norðurlandameistaratitla.

Sport
Fréttamynd

Enski boltinn á lokaða sér rás

Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn, hefur ákveðið að setja á laggirnar nýja áskriftarstöð sem er tileinkuð enska boltanum. Þessi nýja stöð mun sýna frá fleiri knattspyrnuleikjum í ensku úrvalsdeildinni en þekkst hefur í íslensku sjónvarpi. Stöðin mun sýna samtímis frá fleiri en einum leik í einu á mismunandi rásum.

Sport
Fréttamynd

Sporting og CSKA Moskva í úrslitum

Portúgalska liðið Sporting Lissabon og rússneska liðið CSKA Moskva mætast í úrslitum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. CSKA burstaði ítalska liðið Parma, 3-0, í gærkvöldi. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Ítalíu.

Sport
Fréttamynd

BAR ætlar að una dómnum

Forráðamenn BAR-Honda hafa ákveðið að una banninu sem liðið fékk í gær, fyrir að vera með ólöglegan bíl í keppni á dögunum, en mikil óánægja var með dóminn.

Sport
Fréttamynd

BAR Honda í vondum málum

Lið BAR Honda í formúlu eitt, gæti verið í afar vondum málum, eftir að forráðamenn formúlunnar hafa farið fram á það að liðinu verði vikið úr keppni eftir að liðið varð uppvíst af því að vera með of léttan bíl í keppni á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Mark Webber í Smáralind

Ástralska Formúlu 1 kappaksturshetjan, Mark Webber er væntanlegur hingað til Íslands nú í maímánuði en það er í tengslum við styrktaraðila BMW Williams liðsins sem er Baugur. Ein bifreið liðsins verður sérstaklega flutt til Íslands og sýnd í Smáralind á annan í hvítasunnu.

Sport
Fréttamynd

Vilja efla áhuga á hjólreiðum

Landsvirkjun og hjólreiðanefnd Íþróttasambands Íslands undirrituðu í dag samstarfssamning fyrir sumarið 2005 undir kjörorðinu <em>Virkjum eigin orku!</em> Markmið samningsins er að kynna hjólreiðar og örva almenning til að stunda íþróttina og verður af því tilefni haldinn vísir að Tour d´Islande hjólreiðakeppni. Hún verður haldin dagana 23.-26. júní á höfuðborgarsvæðinu og við Búrfell.

Innlent
Fréttamynd

Montoya verður með á Spáni

Kólumbíski ökuþórinn Juan Pablo Montoya hefur staðfest að hann verði með liði sínu McLaren í Spánarkappakstrinum um helgina, eftir að hafa misst úr tvö mót vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Afar óvænt úrslit á HM í snóker

Shaun Murphy, 22 ára Englendingur, tryggði sér heimsmeistaratitilinn í snóker í gær þegar hann vann Walesverjann Matthew Stevens, 18-16, í úrslitaeinvígi á heimsmeistaramótinu í Sheffield. Þetta eru einhver óvæntustu úrslit í sögu heimsmeistaramótsins.

Sport
Fréttamynd

Getum unnið í Barcelona

Michael Schumacher, ökumaður hjá Ferrariliðinu í Formúlu 1, telur sig eiga góða möguleika á sigri í spænska kappakstrinum sem fram fer í Barcelona um helgina.

Sport
Fréttamynd

Fangelsisdómur í kjölfar tæklingar

Framherji í norska knattspyrnuliðinu Voss hefur verið dæmdur í mánaðarfangelsi í kjölfar þess að vináttuleikur fór úr böndunum í vetur og framherjinn braut í heift sinni tennur úr mótherja sínum og skildi hann eftir liggjandi í vellinum með heilahristing.

Sport
Fréttamynd

Alonso líklegastur á Spáni

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, segir að Fernando Alonso verði að teljast líklegasti kandidatinn til sigurs í Barcelona um helgina, en segir sína menn í Ferrari vera að eflast með hverjum deginum.

Sport
Fréttamynd

Woods tekjuhæsti íþróttamaðurinn

Ameríski kylfingurinn Tiger Woods er launahæsti íþróttamaður í heimi samkvæmt úttekt franska tímaritsins France Football og þar kemur fram að David Beckham er tekjuhæsti knattspyrnumaður heims.

Sport
Fréttamynd

KR - Þróttur í úrslitum

Það verða KR og Þróttur sem leika til úrslita í deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu á fimmtudaginn. Þróttur sigraði ÍA 2-1 í framlengdum leik en KR sigraði Breiðablik 3-0 í hinni undanúrslitarimmunni.

Sport
Fréttamynd

Aðstæður hentuðu Ferrari best

Fernando Alonso hjá Renault, sem er efstur í stigakeppni ökumanna í formúlu 1, hefur lýst yfir áhyggjum sínum yfir skyndilega bættu gengi Ferrari í síðustu keppni.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur úr leik á HM

Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen úr Víkingi er úr leik á heimsmeistaramótinu í Shanghai í Kína, eftir að hann tapaði fyrir sænskum spilara í morgun í fjórum lotum. Íslendingar hafa því lokið keppni á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Loeb sigraði á Ítalíu

Franski ökuþórinn Sebastien Loeb tryggði sér í dag sigur í Ítalíurallinu, eftir að hafa verið í forystu alla keppnina og hefur nú eins stigs forskot á Norðmanninn Petter Solberg í stigakeppni ökumanna.

Sport
Fréttamynd

Kristín með heimsmet í skriðsundi

Kristín Rós Hákonardóttir setti um helgina heimsmet í 50 metra skriðsundi fatlaðra á Landsbanakamóti Ármanns sem fram fer í Laugardalnum. Kristín kom í mark á 35,50 sekúndum en hún setti einnig Íslandsmet í 200 metra skriðsundi.

Sport
Fréttamynd

James Toney WBA-meistari

Hnefaleikakappinn James Toney varð WBA-meistari í þungavigt um helgina þegar hann lagði John Ruiz að velli.

Sport
Fréttamynd

Loeb á nánast sigurinn vísan

Frakkinn Sebastien Loeb er nánast búinn að tryggja sér sigur í Ítalíurallinu á Sardiníu sem lýkur í dag. Þegar þrjár sérleiðir eru eftir hefur hann rúmlega mínútuforskot á Norðmanninn Petter Solberg sem er í öðru sæti.

Sport
Fréttamynd

HM í íshokkíi hófst um helgina

Heimsmeistaramótið í íshokkíi hófst á laugardaginn í Vín í Austurríki. Kanadamenn, sem eru tvöfaldir heimsmeistarar, unnu Litháa, 5-4, og Rússland vann Austurríki, 4-2.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur og Tryggvi töpuðu saman

Guðmundur E. Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, og Tryggvi Áki Pétursson féllu í morgun úr leik í tvíliðaleik á heimsmeistaramótinu í borðtennis sem fram fer í Shanghai í Kína. Guðmundur heldur hins vegar áfram keppni í einliðaleik karla þar sem hann hefur tryggt sér sæti í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins.

Sport
Fréttamynd

SA meistari fimmta árið í röð

Skautafélag Akureyrar varð í gærkvöld Íslandsmeistari í íshokkíi fimmta árið í röð þegar liðið sigraði Skautafélag Reykjavíkur 7-1 og samanlagt 3-1 í úrslitarimmu liðanna. Þetta er í tólfta sinn á 14 árum sem Skautafélag Akureyrar vinnur sigur á Íslandsmótinu.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur byrjar vel í Kína

Guðmundur E. Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, byrjaði vel á heimsmeistaramótinu í borðtennis sem hófst í Kína í nótt. Guðmundur vann þrjá leiki í undankeppninni en Tryggvi Áki Pétursson beið lægri hlut fyrir Bandaríkjamanni.

Sport
Fréttamynd

Ísland er dásamlegt land

Fréttablaðið hitti einn besta skíðagöngumann allra tíma, Björn Dæhlie, í vikunni og ræddi við hann um fortíðina og framtíð, Ísland og afreksmenn.

Sport
Fréttamynd

Loeb efstur eftir fyrsta dag

Frakkinn Sebastian Loeb, heimsmeistari í ralli, er í fyrsta sæti eftir fyrsta keppnisdag í Ítalíurallinu sem fram fer á Sardínu. Hann er rúmlega hálfri mínútu á undan Norðmanninum Petter Solberg sem er í öðru sæti en keppni heldur áfram í dag.

Sport
Fréttamynd

Loeb með forystu á Ítalíu

Sebastian Loeb frá Frakklandi hefur forystu í Ítalíurallinu að loknum þremur sérleiðum. Hann er 8,7 sekúndum á undan Petter Solberg frá Noregi sem er í öðru sæti.

Sport
Fréttamynd

Kveðjulandsleikur Romario

Brasilíska knattspyrnugoðið Romario lék kveðjulandsleik sinn með Brasilíu í gær gegn Guatemala. Brasilía vann 3-0 og skoraði Romario fyrsta mark leiksins eftir 16 mínútna leik.

Sport