Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi. Erlent 9.10.2026 11:28
Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Líkurnar á því að Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní, hljóti friðarverðlaun Nóbels ruku skyndilega upp á vinsælli veðmálasíðu í nótt. Það sama gerðist fyrir ári kvöldið áður en tilkynnt var að leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela hlyti verðlaunin. Erlent 9.10.2026 07:36
Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær. Erlent 8.10.2026 23:52
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Rússland vinnur kerfisbundið að því að grafa undan getu Úkraínu til að fæða heiminn. Með því að ráðast á hafnir, siglingaleiðir og landbúnaðarinnviði er ekki aðeins verið að herja á Úkraínu. Þetta skapar líka aukið álag á hnattrænt fæðuöryggi, með alvarlegum afleiðingum fyrir milljónir manna langt fyrir utan Evrópu. Skoðun 1. október 2026 17:01
Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. Erlent 30. september 2026 11:01
Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Hætt hefur verið við tvenna tónleika sem rapparinn Ye betur þekktur sem Kanye West átti að halda í Rússlandi í október. Ástæðan virðist vera sú að samningar hafi aldrei tekist á milli eigenda tónleikahalla og skipuleggjenda. Lífið 30. september 2026 08:01
Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Yfirvöld í Eistlandi segja útsendara Rússlands hafa gert íkveikjuárás á eistneskt hergagnafyrirtæki í Tallinn í ágúst. Rússneskir starfsmenn þarlendra leyniþjónusta hafi staðið að árásinni og er hún sögð liður í skuggastríði Rússa gegn Evrópu, sem ætlað sé að ógna ráðamönnum og íbúum heimsálfunnar og grafa undan stuðningi við Úkraínumenn. Erlent 29. september 2026 11:19
Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“. Erlent 29. september 2026 10:58
Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu. Erlent 28. september 2026 16:38
Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. Erlent 28. september 2026 10:00
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Erlent 25. september 2026 10:29
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. Erlent 25. september 2026 08:01
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Rússar eru líklegir til að gefa í þegar kemur að skuggastríði þeirra gegn Evrópu og að framkvæma fleiri fjölþáttaárásir á komandi mánuðum. Tölvuárásir, drónaárásir og skemmdarverk eru meðal þess sem kemur til greina en einhvers konar innrás í NATO-ríki þykir mjög ólíkleg. Erlent 24. september 2026 11:40
Veturinn verði Rússum erfiður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf. Erlent 24. september 2026 07:57
Bað Trump um „vetrarpakka“ Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. Erlent 23. september 2026 07:47
Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað. Erlent 21. september 2026 14:00
Pútín sló öll met Flokkur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur unnið metfjölda þingsæta í kosningunum sem haldnar voru í Rússlandi um helgina. Sameinað Rússland mun væntanlega stjórna 355 af 450 þingsætum í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, miðað við talin atkvæði þegar búið var að telja 95 prósent greiddra atkvæða. Erlent 21. september 2026 09:49
Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip. Erlent 19. september 2026 19:32
Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Donald Trump er sagður íhuga að bjóða Rússum viðskiptasamninga í þeirri von að Vladimír Pútín bindi enda á Úkraínustríðið. Forsetinn bandaríski hefur áður staðhæft að hann myndi ekki eiga í viðskiptum við Rússa fyrr en stríðinu ljúki. Erlent 18. september 2026 21:26
Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar ganga að kjörborðinu um helgina og eiga þeir þar að velja á milli tíu flokka, sem allir virðast sammála stærsta flokki landsins og Vladimír Pútín. Eini flokkurinn sem stóð gegn stríðinu í Úkraínu hefur verið bannaður. Erlent 17. september 2026 20:30
Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. Erlent 17. september 2026 16:40
Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan. Erlent 17. september 2026 07:52
Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Saksóknarar í Bandaríkjunum opinberuðu í gær ákærur gegn fimm mönnum sem grunaðir eru um að ætla sér að skipuleggja fjölþáttaógnir í Evrópu og framkvæma launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd. Erlent 16. september 2026 11:17
Pútín er hvergi nærri því að láta undan Pútín er reiðubúinn að halda þessu stríði áfram árum saman. Það er ekki vegna þess að ráðgjafar hans lofi honum skjótum sigri, þótt vel megi vera að þeir geri það. Stríðið er orðið innbyggt í pútínismann, rétt eins og pútínisminn er orðinn innbyggður í stríðið. Stjórnkerfi hans veitir honum frelsi til að gera það sem hann vill og arfleifð hans verður ekki lengur skilin frá stríðinu. Bæði Pútín og Rússland hafa búið sig undir langvinnt stríð. Umræðan 16. september 2026 10:36