Fréttir
Flensa í evrópska hluta Rússlands Óttast er að fuglaflensa hafi borist til evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld í héraðinu Tula hafa fyrirskipað sóttkví. Erlent 23.10.2005 17:50
Hlutabréf í FL Group lækkuðu um 5% Hlutabréf í FL Group lækkuðu um rösk fimm prósent í morgun. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, sem meðal annars á Flugleiðir og Icelandair, sagði starfi sínu lausu í gærkvöldi, að því er netfréttaritið Travel People greinir frá í morgun. Viðskipti innlent 23.10.2005 17:50
Sífellt fleiri í framhaldsnám Aldrei hafa fleiri útskrifast úr námi á háskólastigi á Íslandi og á skólaárinu 2003 - 2004. Sama má segja um útskrifaða nema af framhaldsskólastigi. Örlítil fækkun er þó í útskrift nýstúdenta en sífellt fleiri útskrifast með stúdentspróf verkgreina og viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi. Innlent 23.10.2005 17:50
Lithárnir án atvinnuleyfis Forsvarsmenn Afls Starfsgreinafélags á Austurlandi segja ljóst að enginn leyfi né samningar séu til staðar fyrir fjóra Litháa sem starfað hafa hjá fyrirtækinu Járn@járn á Reyðarfirði undanfarið. Lögregla hefur gefið fyrirtækinu frest til morguns til að afla gagna í málinu. Innlent 23.10.2005 17:50
Veggur mældur á 27 kílómetra hraða Það er ekki alltaf að marka hraðamælingar lögreglunnar. Það sannreyndu blaðamenn breska dagblaðsins Daily Mail þegar þeir prófuðu radarmæla lögreglunnar. Veggur, sem eðli málsins samkvæmt var kyrrstæður, mældist á tuttugu og sjö kílómetra hraða og kyrrstæður bíll á bílastæði mældist á fjórtán kílómetra hraða. Erlent 23.10.2005 17:50
Litli prinsinn farinn heim María krónprinsessa Dana og Friðrik ríkisarfi fóru heim af sjúkrahúsinu í dag með son sinn sem fæddist á laugardaginn. Fjölmiðlum var um leið gefið tækifæri til að sjá nýfædda prinsinn, sem svaf sallarólegur á sínu græna eyra meðan myndavélarnar suðuðu og smelltu í gríð og erg. Móður og syni heilsast vel og sögðust foreldrarnir vera að springa úr stolti yfir frumburðinum. Erlent 23.10.2005 17:50
Leyfir ekki innflutning erfðaefnis Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir ekki koma til greina að leyfa innflutning erfðaefna til að blanda við íslenska kúastofninn. Hann furðar sig á ályktun borgfirskra bænda um að undirbúningur að slíkum innflutningi skuli hafinn. Innlent 23.10.2005 17:50
Álit fjöllmiðlanefndar standi Ég er tilbúinn fyrir hönd míns flokks að standa að setningu laga sem byggir á þeirri þverpólitísku sátt sem náðist í fjölmiðlanefndinni," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Innlent 23.10.2005 17:57
Borgarstjóri fagnar kvennafrídegi Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, fagnar aðgerðum sem fyrirhugaðar eru til að minnast 30 ára afmælis kvennafrídagsins 24. október. Hún segir í yfirlýsingu að allt of hægt gangi að jafna launamun kynjanna og aðstöðumun til að afla tekna. Innlent 23.10.2005 17:50
Tilbúinn að endurskoða kvótakerfið Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að ekki komi til greina að flytja inn fósturvísa til þess að blanda við íslenska kúakynið. Hann vill hins vegar skoða hvort lyfta eigi þaki af mjólkurkvótanum til þess að mæta auknum þörfum markaðarins. Innlent 23.10.2005 17:50
Stöðvar ekki fyrr en í Rússlandi Skipstjóri rússneska togarans sem er á flótta undan norskum varðskipum með tvo norska strandgæslumenn innanborðs segist ekki ætla að nema staðar fyrr en hann er kominn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Enn í haldi Rússa Norskum strandgæslumönnum er enn haldið nauðugum um borð í rússneska togaranum Electron sem stefnir á Múrmansk í Rússlandi eftir að norskt varðskip skipaði því að stöðva á Barentshafi vegna ólöglegra veiða. Skipið er nú komið inn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Sveinum fer fækkandi Þeim sem ljúka sveinsprófi hefur farið fækkandi undanfarin ár. Þessa fækkun má útskýra með ríkjandi þenslu í þjóðfélaginu og yfirborgunum sem henni fylgir. Á skólaárinu 2003-2004 útskrifuðust 508 nemendur með sveinspróf og var það 57 nemendum færra en árið áður. Innlent 23.10.2005 17:50
Átak hjá Selfosslögreglu Ljósabúnaði var áfátt á fimmtíu og sjö bílum af þeim 290, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær, einkum til að kanna ástand ljósa. Þetta var fyrsti dagur í þriggja daga átaki Selfosslögreglunnar á þessu sviði. Ökumenn fengu áminningu, en nokkrir voru sektaðir vegna annarra atriða, sem voru í ólagi. Innlent 23.10.2005 17:50
Norskum strandgæslumönnum rænt Tveir eftirlitsmenn frá norsku strandgæslunni sem rússneskur togari rændi á sunnudagskvöld, eru enn um borð í togaranum. Rússnesk stjórnvöld hafa sent herskip á móti honum og er því ætlað að ná í Norðmennina. Rússarnir halda því fram að skotið hafi verið að þeim, en því neita norsk stjórnvöld. Erlent 23.10.2005 17:50
Láta draga bílana burt? Íbúar í Hlíðahverfi mótmæltu harðlega á fundi sínum í gærkvöld fyrirhuguðum framkvæmdum 365 miðla á lóðinni við Skaftahlíð 24. Íbúarnir vilja að framkvæmdirnar verði stöðvaðar. Forystumenn íbúanna hvetja til þess að íbúar láti draga burt alla bíla sem lagt hefur verið ólöglega. Innlent 23.10.2005 17:50
Eftirlaun ráðherra til skoðunar Misræmi á kostnaði vegna eftirlaunafrumvarpsins kemur forsætisráðherra á óvart. Hann segir stjórnvöld hafa rætt um að endurskoða lögin, en það verði ekki gert nema með samkomulagi allra stjórnmálaflokka. Alþingi samþykkti breytt lög um eftirlaun æðstu embættismanna og þingmanna rétt fyrir árslok 2003, og þiggja níu fyrrverandi ráðherrar nú eftirlaun, þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. Innlent 23.10.2005 17:50
Gruna tengdabróður Assad um morð Tengdabróðir Bashar al-Assad Sýrlandsforseta er meðal þeirra sem liggja undir grun um morðið á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta kemur fram í skýrslu þeirra sem hafa rannsakað morðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að sögn þýska blaðsins Stern. Erlent 23.10.2005 17:50
ASÍ vill svör frá ríkisstjórninni Forseti Alþýðusambands Íslands segir að stjórnvöld verði að brúa bilið milli gerðra kjarasamninga og verðbólgunnar sem nú blasir við, eigi friður að haldast á almennum vinnumarkaði. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin vilji ræða málið þar sem skynsamlegt sé fyrir alla að kjarasamningar haldi. Innlent 23.10.2005 17:50
Auðveldi úrræði í kynferðisbrotum Félagsmálaráðherra hefur hrint af stað aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi á Íslandi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa haft áhrif og þakkar fyrir kjark þeirra sem þar gengu á undan. Innlent 23.10.2005 17:57
Ken Clarke heltist úr lestinni Ken Clarke heltist úr lestinni í fyrstu umferð leiðtogakjörs breska Íhaldsflokksins í gær. David Davis varð hins vegar hlutskarpastur fjórmenninganna sem berjast um embættið. Erlent 23.10.2005 17:57
Lélegur frágangur kostar milljónir Lélegur frágangur á farmi vörubíla hefur kostað tryggingarfélögin meira en 110 milljónir króna undanfarin tvö ár. Lögregla hyggst grípa til aðgerða gegn þeim sem ekki ganga almennilega frá farmi á bílum sínum. Innlent 23.10.2005 17:50
Spá hækkun fasteignaverðs Fasteignaverð mun hækka um sex prósent hér á landi á næstu tólf mánuðum að mati greiningardeildar KB banka. Helstu ástæðurnar segir Greiningardeildin vera þær að raunvaxtakostnaður hækki ekki mikið og að atvinnuástand verði áfram gott. Innlent 23.10.2005 17:50
Kyrkislanga í klósettinu Þriggja metra löng kyrkislanga, sem Manchesterbúar gáfu nafnið Keith, er nú loks hætt að skríða milli klósetta í íbúðarblokk í borginni, en það hafði hún gert í þrjá mánuði, íbúunum til mikillar hrellingar. Erlent 23.10.2005 17:50
Ung stúlka finnst á lífi Sex ára stúlku var bjargað úr rústum húss í fjallaþorpi austur af Balakot í Pakistan í dag en níu dagar eru síðan jarðskjálfti af stærðinni 7,6 á Richter reið yfir norðurhluta landsins. Erlent 23.10.2005 17:50
Stíma inn í rússneska lögsögu Skipstjóri rússneska togarans "Elektron", sem lagði á flótta undan norskum varðskipum í Barentshafi með tvo norska veiðieftirlitsmenn innanborðs, sagðist í gær ekki ætla að nema staðar fyrr en hann væri kominn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Skoða reglur einkavæðingarnefndar Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að skoða verklagsreglur einkavæðingarnefndar og athuga hvort ástæða sé til að breyta þeim. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis. Innlent 23.10.2005 17:50
Fundust heilir á húfi Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út um klukkan 18 í gær, vegna þriggja rjúpnaskytta sem saknað var. Mennirnir höfðu verið á veiðum við Skjaldbreið. Innlent 23.10.2005 17:50
Saddam sóttur til saka Réttarhöld yfir Saddam Hussein hefjast í Bagdad í dag en hann er ákærður fyrir að hafa fyrirskipað fjöldamorð á 143 sjíum árið 1982. Mannréttindasamtök bera brigður á sanngirni réttarhaldanna og segja þau stjórnast af hefnigirni. Erlent 23.10.2005 17:50
Vilma orðin að fellibyl Hitabeltisstormurinn Vilma er nú formlega orðin að fellibyl. Vindkviðurnar ná allt að eitthundrað sjötíu og sjö kílómetra hraða á klukkustund en þegar vindhraðinn er kominn í eitthundrað og nítján kílómetra á klukkustund eru óveður skilgreind sem fellibylir. Erlent 23.10.2005 17:50