Innlent

Fundust heilir á húfi

Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út um klukkan 18 í gær, vegna þriggja rjúpnaskytta sem saknað var. Mennirnir höfðu verið á veiðum við Skjaldbreið. Um 30 björgunarsveitarmenn á átta bílum brugðust skjótt við, og fundu þeir bíl mannanna um klukkutíma síðar, og skömmu síðar tvo af mönnunum í suðurhlíðum fjallsins. Þeir voru báðir heilir á húfi, en villtir. Símasamband náðist við þriðja manninn, sem fljótlega kom í leitirnar, heill á húfi. Hægur vindur var á svæðinu, slæmt skyggni og myrkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×