Fréttir

Fréttamynd

Horfið frá því að sameina leikskóla?

Ekki er víst að leikskólar Vestmannaeyjabæjar verði sameinaðir eins og til stóð. Ákveðið var í skólamálaráði bæjarins í gær að leggja það til við bæjarrstjórn að frestað verði að sameina yfirstjórnir leikskóla Vestmanneyjabæjar.

Innlent
Fréttamynd

Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskotinu

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann bæri fulla ábyrgð slysaskotinu sem særði Harry Whittington. Cheney tjáði sig í fyrsta sinn í dag opinberlega um slysaskotið. Cheney vildi ekki ræða um hvað hefði orðið til þess að hann skaut Whittington en sagði þó við engan að sakast nema hann sjálfan.

Erlent
Fréttamynd

Gagnrýnir vændisfrumvarp dómsmálaráðherra

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingamaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir frumvarp sem hann kynnti fyrir ríkisstjórninni í gær, þar sem hvorki kaup né sala vændis er refsiverð. Ágúst vill að kaupendum vændis verði refsað, ekki seljendum.

Innlent
Fréttamynd

Leitað eftir samningi vegna Heilsuverndarstöðvar

Heilbrigðisráðherra hyggst leita eftir samningum um að starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar verði þar áfram, að minnsta kosti tímabundið, eftir að nýir eigendur taka við húsinu. Ráðherra opnaði í dag nýjan vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðskrá frá Hagstofu til dómsmálaráðuneytis

Þjóðskráin verður flutt frá Hagstofunni til dómsmálaráðuneytisins 1. maí næstkomandi ef frumvarp forsætisráðherra þar að lútandi nær fram að ganga. Ætlunin með þessu er að skilja betur milli hagskýrslugerðar og stjórnsýslustarfsemi að sögn hagstofustjóra.

Innlent
Fréttamynd

Gengu í hjónaband um borð í flugvél

Átta hollensk pör gengu í það heilaga um borð í flugvél Icelandair á degi elskenda, Valentínusardeginum, í gær. IcelandAir stóð fyrir samkeppni í Hollandi af því tilefni að fimmtán eru liðin frá því að IcelandAir hóf að fljúga frá Amsterdam til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Alifuglar hér á landi verða lokaðir inni ef til fuglaflensu kemur

Reikna má með að alifuglar hér á landi verði lokaðir inni líkt og annars staðar á Norðurlöndum þegar og ef fuglaflensa berst hingað til lands. Sóttvarnalæknir segir að ekki verði gripið til sérstakra aðgerða nú umfram það sem þegar hefur verið gert eftir að fuglaflensa hefur greinst í Þýskalandi og Austurríki.

Innlent
Fréttamynd

Impregilo og starfsmannaleigur sýknuð

Impregilo og tvær portúgalskar starfsmannaleigur voru í morgun sýknuð af kröfu AFLs, starfsgreinafélags Austurlands, um greiðslu félagsgjalda og gjalda í sjúkra- og orlofssjóði.

Innlent
Fréttamynd

FL Group í ölið

FL Group hefur keypt tæplega ellefu prósenta hlut í dankska drykkjarvöruframleiðandanum Royal Unibrew A/S. Markaðsvirði hlutarins er um 4,2 milljarðar króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Roger Waters til Íslands

Roger Waters, fyrrum forsprakki Pink Floyd, heldur tónleikaí Egilshöll 12. júní næst komandi. Þar flytur hann öll helstu lög Pink Floyd, þar á meðal öll lögin af plötunni Dark Side of the Moon. Sú plata hefur selst í þrjátíu og fjórum milljónum eintaka og var rúm ellefu ár samfleytt á lista Billboard yfir 200 mest seldu plötur Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Tveir slösuðust í bílslysi

Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra valt út af veginum við Urriðavatn, skammt frá Egilsstöðum í gærkvöldi. Þeir voru fluttir á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum og ákváðu læknar þar að senda þá áfram með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Unglingspiltar handsamaðir eftir árásir

Þrír unglingspiltar réðust í gærkvöldi á konu, sem var nýbúin að taka reiðufé út úr hraðbanka við Fífuhvammsveg í Kópavogi og reyndu að hrifsa af henni veskið. Hún brást hart við, hristi þá af sér og hringdi á lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkraflugvélin fjarri þegar hennar var þörf

Rúmur klukkutími leið frá því óskað var eftir sjúkraflugi fyrir fárveikt tveggja ára barn í Vestmannaeyjum þar til flugvélin sem sinna átti fluginu kom til Eyja. Flugvélin á að vera þar að staðaldri en var í viðgerð í Reykjavík þegar hennar var þörf.

Innlent
Fréttamynd

Mikill áhugi á lóðum í Úlfarsfelli

Um 5.500 manns hafa skoðað gögn vegna útboðs á lóðum í Úlfarársdal eða sótt sér geisladisk með gögnunum. Frestur til að skila inn kauptilboðum rennur út klukkan fjögur síðdegis á morgun og verða opnuð hálftíma síðar að þeim bjóðendum viðstöddum sem þess óska.

Innlent
Fréttamynd

Öll aðildarfélög styðja samkomulagið

Stjórnir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands styðja samkomulag sambandsins við menntamálaráðherra um samstarf í skólamálum. Samkomulagið, sem var gert eftir miklar deilur um fyrirhugaða styttingu náms til stúdentsprófs, hefur verið gagnrýnt af kennurum í mörgum skólum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja flytja inn erfðaefni til kynbóta

Bændur í Félagi kúabænda á Suðurlandi vilja að hafinn verði innflutningur á erfðaefni til að kynbæta kúastofninn. Tillaga þessa efnis var samþykkt með 23 atkvæðum gegn tíu á aðalfundi félagsins í gær.

Innlent
Fréttamynd

Vísitala framleiðsluverðs lækkar

Vísitala framleiðsluverðs var 97,1 stig á síðasta ársfjórðungi síðasta árs og hafði þá lækkað um 0,3 prósentustig frá næsta ársfjórðungi á undan.

Innlent
Fréttamynd

Straumi hleypt á fyrstu kerin

Straumi verður hleypt á fyrstu kerin í stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga klukkan tíu í dag. Þetta er fyrsti hluti stækkunarinnar sem er tekinn í notkun en framleiðslugeta álversins eykst úr 90 þúsund tonnum í 220 þúsund tonn.

Innlent
Fréttamynd

200 þúsund manns á hryðjuverkalista

Bandarísk yfirvöld búa yfir gagnagrunni sem hefur að geyma nöfn 325 þúsund manna sem grunaðir eru um aðild eða stuðning við hryðjuverk. Frá þessu greinir bandaríska dagblaðið Washington Post.

Erlent
Fréttamynd

Rúmlega þrjátíu prósent sveitarstórnarmanna konur

Konur eru nú um þrjátíu og tvö prósent sveitarstjórnarmanna. Í sveitarstjórnarkosningunum 2002 fór hlutfall kvenna í sveitarstjórnum landsins í fyrsta skipti yfir þrjátíu prósent og í tíu prósent sveitarfélaga eru konur í meirihluta. Þetta kemur fram í stuttri greiningu á hlut kvenna í sveitarstjórnum á kosningarvef félagsmálaráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Reiðubúnir að axla nokkra ábyrgð

Hópur danskra múslímaleiðtoga, sem sakaður hefur verið um að hafa kynnt undir deilur vegna myndanna af Múhameð, kvaðst í gær reiðubúinn að axla nokkra ábyrgð.

Erlent
Fréttamynd

Áfram mótmæli í Pakistan vegna Múhameðsmynda

Lítið lát er á mótmælum í Pakistan vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni sem birtar hafa verið í fjölmörgum evrópskum dagblöðum. Mótmælendur kveiktu í morgun í veitingastað Kentucky Fried Chicken í bænum Pashawar í norðurhluta Pakistans ásamt því að brenna bandaríska og danska fánann og hrópa slagorð gegn löndunum.

Erlent
Fréttamynd

Vilja segja upp samningum við SAS vegna flugmannadeilu

Stórir viðskiptavinir skandinavíska flugfélagsins SAS vilja nú hverjir á fætur öðrum segja upp samningum sínum við félagið vegna langvarandi deilu þess við flugmenn sína. Frá þessu er greint í Jótlandspóstinum.

Erlent
Fréttamynd

Keyptu 40 prósent fleiri bíla en árið áður

Íslendingar slógu öllum Vestur-Evrópumönnum við í bílakaupum í fyrra, sem jukust um rúm 40 prósent frá árinu á undan. Næst mest var aukningin í Danmörku, eða um 20 prósent og þar næst á Írlandi, ellefu prósent.

Innlent
Fréttamynd

Norðmenn hættir loðnuveiðum

Síðasta norska loðnuskipið hélt út úr íslenskri lögsögu í gær, en veiðar norsku skipanna hér við land gengu illa að þessu sinni. Þau voru flest ellefu við veiðar hér og máttu aðeins veiða í nætur, en ekki flottroll.

Innlent
Fréttamynd

Leita að ömurlegu ljóði

Leitin að ömurlegasta ljóðinu er hafin. Það þarf að vera þrjú erindi sem hvert inniheldur fjórar fimmtán atkvæða ljóðlínur. Tekið verður tillit til asnalegra myndlíkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis auk annarra stílbragða ömurðarinnar.

Innlent