Þjóðskrá frá Hagstofu til dómsmálaráðuneytis 15. febrúar 2006 14:15 MYND/Stefán
Þjóðskráin verður flutt frá Hagstofunni til dómsmálaráðuneytisins 1. maí næstkomandi ef frumvarp forsætisráðherra þar að lútandi nær fram að ganga. Ætlunin með þessu er að skilja betur milli hagskýrslugerðar og stjórnsýslustarfsemi að sögn hagstofustjóra. Þjóðskráin hefur heyrt undir Hagstofuna frá því að hún var stofnuð árið 1953 en nú verður breyting á samkvæmt frumvarpi um breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu sem kynnt var á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Flutningurinn er að frumkvæði Hallgríms Snorrasonar hagstofustjóra sem segir að þjóðskráin þyki eiga betur heima innan stjórnsýslunnar en á Hagstofunni þar sem hagskýrslugerð og ýmiss konar tölfræði er unnin. Þjóðskráin sé stjórnvaldsskrá sem notuð sé í ýmiss konar sifjaréttarlegum málum sem heyri undir dómsmálaráðuneytið. Þá standi til að virkja þjóðskrána betur við útgáfu vegabréfa, en sú útgáfa heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Aðspurður segir Hallgrímur að flutningur þjóðskrárinnar tengist ekki á nokkurn hátt fyrirhugaðri greiningardeild innan ríkislögreglustjóra sem meðal annars er ætlað að leggja mat á hættu vegna hryðjuverka og stjórnarandstöðuþingmenn hafa kallað vísi að leynilögreglu. Hallgrímur segir hugmyndir um flutning skrárinnar hafi komið upp í haust og hann hafi ekki vitað af frumvarpi dómsmálaráðherra sem lýtur að greiningardeildinni. Hallgrímur segir enn fremur að þjóðskráin verði rekin á sama hátt og verið hafi, að minnsta kosti fyrst um sinn, og að hún verði áfram í Borgartúni. Frumvarpið er nú til kynningar hjá þingflokkum og verður væntanlega lagt fram á næstu dögum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira