„Stjörnufólk er pirrað“ Aron Guðmundsson skrifar 19. maí 2026 07:03 Hlynur Bæringsson, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar sem spilaði undir stjórn Baldurs Þórs og varð Íslandsmeistari við hlið hans, lagði sitt mat á óvænt skipti Baldurs yfir til Álftaness. Vísir/Samsett Hlynur Bæringsson segir stuðningsmenn Stjörnunnar pirraða yfir skiptum þjálfarans Baldurs Þórs Ragnarssonar innan Garðabæjar frá Stjörnunni yfir til Álftaness í Bónus deildinni í körfubolta.
Þetta sagði Hlynur, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, sem varð Íslandsmeistari undir stjórn Baldurs árið 2025, í beinni útsendingu í Körfuboltakvöld á Sýn Sport í gærkvöldi. Greint var frá tíðindunum skömmu áður en Baldur hefur nýlokið sínu öðru tímabili sem þjálfari Stjörnunnar. Hann gerði liðið í fyrsta sinn að Íslandsmeisturum í fyrra. Klippa: Heimkoma Baldurs verði ekki skemmtileg „Hvað vil ég segja um þetta? Ég vil bara vera heiðarlegur,“ sagði Hlynur. „Óska Álftnesingum til hamingju með ráðninguna. En að sama skapi held ég að Baldur og allir í kringum Álftanes viti að það þarf meira til. Meira sem þarf að gerast í kringum þetta. En fyrir samfélagið á Álftanes, liðið, er þetta náttúrulega bara frábært. Mikil lyftistöng fyrir þá deild. Ber vott um metnaðinn sem fólkið í kringum félagið hefur. Stjörnufólk sé hins vegar mjög pirrað „Ég er að fara mjög varlega í þetta. Stjörnufólk er alveg pirrað. En þetta er til marks um það sem Álftnesingar hafa náð að gera þarna. Ég er að reyna feta einhverja línu.“ Orðrómar höfðu verið á kreiki um þessa hreyfingu Baldurs Þórs í einhvern tíma og komu tíðindin því sérfræðingum Körfuboltakvölds ekki á óvart. Hins vegar komi tíðindin fjölda fólks, sem fylgist með íslenskum körfubolta, á óvart. „Að hann skuli fara frá frábæru liði Stjörnunnar, þar sem mikil uppbygging og frábært lið. Lið sem er að fara berjast um titla næstu árin veit ég. Það kom mér mest á óvart,“ bætti Hermann Hauksson, annar af sérfræðingum Körfuboltakvölds við. Magnús Þór Gunnarsson þekkir það vel að söðla um og ganga til liðs við nágranna í sama bæ. „Ég fór yfir í Njarðvík frá Keflavík og var hataður í nokkra mánuði. Það verður ekki skemmtileg heimkoman í Stjörnuheimilið. En mikill metnaður hjá Álftnesingum, að ráða hann. Bara geggjað.“ Umræðuna um Baldur Þór Ragnarsson og óvænt skipti hans yfir til Álftaness má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Stjarnan Körfubolti Körfuboltakvöld Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira