Fréttir

Fréttamynd

Sex látnir á árinu

Sex hafa látist í umferðarslysum það sem af er árinu. Um tíu til fimmtán prósent ökumanna nota ekki bílbelti þrátt fyrir að margoft hafi verið sýnt fram á mikilvægi þeirra. Þessi hópur hefur mikil áhrif á slysatíðnina að sögn forstöðumanns rannsóknarnefndar umferðarslysa.

Innlent
Fréttamynd

Óvissan slæm fyrir Framsókn

Staða Framsóknarflokksins veikist við þá ákvörðun Árna Magnússonar að hætta í pólitík að mati Önnu Kristinsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Hún telur slæmt fyrir flokkinn að ekki liggi skýrt fyrir hver muni taka við formennsku af Halldóri Ásgrímssyni eftir fráhvarf Árna.

Innlent
Fréttamynd

Brotthvarf Árna veikir Framsókn

Brotthvarf Árna Magnússonar af þingi og úr ráðherrastóli veikir Framsóknarflokkinn og Halldór Ásgrímsson, formann flokksins, segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði.

Innlent
Fréttamynd

Skrifaði undir tvo samninga tendum sjúkraflutningum

Eitt síðasta embættisverk Jóns Kristjánssonar sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra var að undirrita tvo samninga tengdum sjúkraflutningum. Annar samningurinn var við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga á svæðinu og hinn samningurinn var við Rauða kross Íslands um útvegun og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga.

Innlent
Fréttamynd

Snjóþekja víða um land

Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vestfjörðum er þæfingur á Dynjandisheiði. Þungfært er og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og snjóþekja er á Eyrarfjalli. Hálkublettir eru víða á Norðausturlandi og snjóþekja er á Lágheiði. Þá er einnig snjóþekja víða á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Gjaldeyrisforði Seðlabankans eykst um 3,7 milljarða króna

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 3,7 milljarða í febrúarmánuði og nam 72,1 milljarði í lok hans eða 1.104 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Aukninguna má rekja til reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gegnishagnaðar.

Innlent
Fréttamynd

Bíll fauk útaf veginum undir Hafnarfjalli

Bíll með kerru á suðurleið fór hálfur útaf á þjóðvegi eitt undir Hafnarfjalli fyrr í dag. Nokkuð hvasst var á þessum slóðum en svo virðist sem vindhviða hafi feykt kerrunni út af veginum og með þeim afleiðingum að bíllinn snerist á veginum. Tvennt var í bílnum en engin slys urðu á fólki. Bíllinn er nokkuð skemmdur en kerran er óskemmd.

Innlent
Fréttamynd

Norðurljósablús lukkaðist vel

Blúshátíðin Norðurljósablús var haldin á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin og þótti hún lukkast vel. Aðalgestir hátíðarinnar voru Emil & the Ecstatics en alls komu 25 tónlistarmenn í sjö hljómsveitum fram á tíu blústónleikum um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Norskur auðjöfur kaupir stærsta laxeldisfyrirtæki heims

Eigendur hollenska laxeldisfyrirtækisins Marine Harvest N.V., sem er stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði, hafa samþykkt yfirtökutilboð Geverans Trading Co. Ltd., sem er í eigu norska auðjöfursins Johns Fredriksens. Yfirtökutilboð Geveran Trading hljóðar upp á 1,75 milljarða evrur.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Margir eftirskjálftar

Hátt á þriðja tug eftirskjálfta hafa mælst í nágrenni Krísuvíkur þar sem skjálfti að stærðinni 4,6 á Richterskala átti upptök sín um klukkan 14:30. Um litla skjálfta er að ræða en enginn þeirra hefur mælst yfir 2,7 á Richterskala.

Innlent
Fréttamynd

Fullkomið brúðkaup tekið til sýninga í Reykjavík

Leikritið Fullkomið brúðkaup, sem sýnt hefur við miklar vinsældir hjá Leikfélagi Akureyrar, verður tekið til sýninga í Borgarleikhúsinu en gengið var nýlega frá samning um sýningar. Leiksýningin er aðsóknamesta sýning í sögu Leikfélags Akureyrar en sýningum lauk í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Markmið að bæta möguleika þroskaheftra

Norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra er að fara af stað með verkefni sem fjallar um lífskjör og lífsgæði þroskraheftra einstaklinga. Í frétt á heimasíðu Norðurlandaráðs segir að markmið verkefnisins sé að auka gæði þeirra möguleika sem standa þroskaheftum einstaklingum til boða.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðleg skákhátíð: Skákin brúar bil

Skáksamband Íslands stendur fyrir alþjóðlegri skákhátíð í Reykjavík dagana 6.-18. mars. Skákhátíðin ber heitið Skákin brúar bil og er ætlað að brúa bil milli kynslóða, trúarbragða, þjóðarbrota, kynþátta og kynja. Fjölmargir skáksnillingar koma til landsins gagngert vegna hátíðarinnar sem er ekki síður hátíð fjölbreytileika og fjölmenningar. Skáksnillingarnir koma frá hinum ýmsu löndum meðal annars Egyptalandi, Líbanon, Færeyjum, Bandaríkjunum, Ísrael Rúmerníu og fleiri löndum.

Innlent
Fréttamynd

Allt nötraði við Krísuvíkurskóla

Jarðskjálftinn sem varð um 7,7 kílómetra aust-norð-austur af Krísuvík um hálf þrjú í dag fannst vel í Krísuvíkurskóla. Að sögn Ernu Hauksdóttur, ráðgjafa við skólann, fundu allir þar vel fyrir skjálftanum. Hún sagði þó engar sjáanlegar skemmdir á húsinu og hlutir hafi ekki færst úr stað.

Innlent
Fréttamynd

Jarðskjálfti í nágrenni Krísuvíkur

Jarðskjálfti upp á 4,6 á Richterskala varð klukkan 14:30 í dag. Upptök skjálftana eru um 7,7 kílómetra aust-norð-austur af Krísuvík samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Veðurstofunnar. Skjáfltinn fannst mjög víða á höfuðborgarsvæðinu og allt austur á Selfoss. Nokkur vegsummerki eru víða vegna skjálftans en rúða brotnaði í heimahúsi í Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Fuglaflensa í Póllandi

Grunur leikur á að hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst í Póllandi í fyrsta sinn. Milljónum fugla hefur verið slátrað í Írak til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Erlent
Fréttamynd

Mútumál hjá DaimlerChrysler

Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler greindi frá því í dag að innri rannsókn fyrirtækisins, sem hefði verið gerð í kjölfar ásakana um mútuþægnihjá fyrirtækinu, hefði leitt í ljós að „ósæmilegar greiðslur“ hefðu verið inntar af hendi í Afríku, Asíu og Austur-Evrópu. Hafi nokkrum starfsmönnum verið vikið úr starfi, sumum til frambúðar en öðrum tímabundið, vegna þessa.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nýr framkvæmdarstjóri hjá Vensy

Jorge Eugui hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá Vensy, dótturfélagi Alfesca á Spáni. Vensy er markaðsleiðandi í sölu á reyktum laxi á Spáni, bæði í eigin vörumerki, Skandia, og í vörumerkjum stórmarkaða með um 20% markaðshlutdeild, þar af 13% í eigin vörumerki, Skandia. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 300 starfsmenn.

Innlent
Fréttamynd

Segir stjórnvöld fela niðurstöður

Það er engu líkara en stjórnvöld vilji fela niðurstöður rammaáætlunar um samanburð á virkjanakostum og líklegum umhverfisáhrifum þeirra. Þetta sagði Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra í Silfri Egils í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fatah-liðar gengu á dyr

Þingmenn Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, gengu útaf fyrsta þingfundi nýrrar heimastjórnar Palestínumanna í dag. Þingið er nú undir stjórn Hamas-samtakanna og á fundinum ætluðu Hamas-liðar að breyta nýrri löggjöf sem sett var síðasta dag fyrra þings þar sem völd forsetans voru aukin.

Erlent
Fréttamynd

Íraksþing kemur saman síðar í mánuðinum

Nýkjörið þing Íraks verður kallað saman til síns fyrsta fundar þann 12. mars næstkomandi. Illa hefur gengið að mynda þjóðstjórn í landinu og hafa átök sjía- og súnní-múslima síðustu vikur ekki hjálpað til í þeim efnum. Að minnsta kosti níu féllu í röð sprengjuárása í Bagdad og næsta nágrenni í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Bakkaði á kyrrstæðan bíl

Síðastliðin vika var róleg í umdæmi lögreglunnar í Vík í Mýrdal en fimm ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var á 123 km hraða. Eitt umferðaróhapp varð í Vík en ökumaður ók aftur á bak á kyrrstæðan bíl.

Innlent
Fréttamynd

Þróun hagkerfisins vekur athygli erlendis

Birgir Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þriðji varaforseti Alþingis, og Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sóttu fund þingforseta smærri ríkja í Evrópu sem haldinn var í Mónakó í lok febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Höfðu afskipti af 80 ökumönnum

Lögreglumenn í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði höfðu afskipti af 80 ökumönnum vegna umferðarlagabrota í liðinni viku. Þar af voru 62 vegna hraðaksturs og fjögur vegna gruns um ölvun við akstur.

Innlent
Fréttamynd

1.500 búnir að skila inn framtölum

Skattframtöl landsmanna eru þegar tekin að skila sér til skattstjóra landsins. Um 1.500 manns hafa talið fram á netinu en búast má við að áður en yfir lýkur skili rúmlega 200 þúsund manns framtölum sínum á netinu.

Innlent
Fréttamynd

Babic svipti sig lífi

Milan Babic, fyrrverandi leiðtogi Króatíu-Serba, svipti sig lífi í morgun. Babic var í fangelsi í Haag í Hollandi en stríðsglæpadómstóllinn þar í borg hafði sakfellt hann fyrir glæpi gegn mannkyninu og dæmt hann í 13 ára fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Loðnuvertíðinni að ljúka

Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru nú aðeins þrjú skip eftir á miðunum út af Snæfellsnesi, þar sem loðnan hrygnir og drepst. Lang flest loðnuskipin eru búin með kvóta sína og því hætt veiðum og skipin þrjú, sem enn eru úti, eiga aðeins eftir að veiða smá slatta.

Innlent
Fréttamynd

Ökumaður fékk aðsvif og velti bíl sínum

Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um útafakstur og bílveltu á Hellisheiði um klukkan átta í morgun. Talið er að ökumaður bílsins hafi fengið aðsvif en bíll hans hafnaði utan vegar á Hellisheiði austan við Smiðjulaut.

Innlent
Fréttamynd

Ákveðið í dag hvort Öryggisráð SÞ tekur á málinu

Alþjóða kjarnorkumálastofnunin ákveður í dag hvort kjarnorkuþróun Írana verður vísað fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórn Írans hótar enn frekari auðgun úrans ef ákveðið verður að vísa málinu fyrir ráðið. Mohamed El Baradei, yfirmaður stofnunarinnar, segist gera sér vonir um að hægt verði að semja við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra áður en vikan er úti.

Erlent