Fréttir
Solreiser í eigu Heimsferða Innlent 13.10.2005 19:26 Réttindi samkynhneigðra Össur Skarphéðinsson vill að á næsta þingi verði lögum breytt til að leyfa frumættleiðingar samkynhneigðra og kirkjuvígslu á hjónaböndum þeirra. Þetta sagði Össur í pistil á síðu sinni, Ossur.hexia.net. "Ég er þeirrar skoðunar að það sé gróf mismunun gagnvart samkynhneigðum að þeir fái ekki að helga hjónaband sitt frammi fyrir guði ef að þeir eru trúaðir og óska þess," sagði Össur í samtali við Fréttablaðið. Innlent 13.10.2005 19:26 Braut glas framan í öðrum Aðalmeðferð í máli 23 ára Keflvíkings sem ákærður er fyrir fjölda afbrota fór fram í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. Maðurinn stal farsímum, veskjum, misnotaði greiðslukort sem hann stal, braust inn í bíla, veitingastað og söluturn, var gripinn með eiturlyf og braut glas framan í öðrum manni. Innlent 13.10.2005 19:26 Gæsluvarðhald vegna fíkniefna Rúmlega fertugur maður í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, eftir að talsvert magn af fíkniefnum fannst heima hjá honum við húsleit. Innlent 13.10.2005 19:26 Færri komust að en vildu Fjörutíu nemendur, sem allir fengu mjög góða meðaleinkunn í 9. bekk í vor, sóttu um að komast á nýja almenna bóknámsbraut við Menntaskólann á Akureyri og sleppa þar með við að sitja 10. bekk næsta vetur. 18 komust að. Innlent 13.10.2005 19:26 Ahmadinejad með myrka fortíð Bandaríkjamenn sem haldið var í sendiráði sínu í Teheran í 444 daga fyrir um aldarfjórðungi síðan staðhæfa að nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sé einn gíslatökumannanna. Erlent 13.10.2005 19:26 Miðlæg bólusetningarskrá Miðlæg bólusetningarskrá er það sem koma skal, nái tillögur stýrihóps á vegum sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra fram að ganga. Innlent 13.10.2005 19:26 Uppnám vegna heimsóknar Uppnám ríkir í viðskiptalífinu og innan utanríkisþjónustunnar vegna hótana kínverskra yfirvalda. Þau eru ævareið vegna komu taívanskrar sendinefndar hingað til lands og hóta aðgerðum.Sendinefnd með sjálfum utanríkisráðherra Taívans kom hingað til lands síðdegis og hóf þar með óformlega heimsókn sem valdið hefur töluverðu uppnámi. Innlent 13.10.2005 19:26 Feðrum í fæðingarorlofi fjölgar Foreldrum í fæðingarorlofi hefur fjölgað um rúmlega tvö þúsund á síðustu tveimur árum, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Innlent 13.10.2005 19:26 Sjóræningjar tóku hjálpargögn Skipi sem flytja átti hjálpargögn til Sómalíu hefur verið rænt í Indlandshafi. Um borð í skipinu var matur frá Sameinuðu þjóðunum sem flytja átti til svæðanna sem verst urðu úti í flóðbylgjunni sem skall á ströndum landsins um síðustu jól. Að sögn bandarísku fréttastofunnar CNN var skipið á leiðinni frá kenýsku höfninni Mombasa til Bossaso í Norðaustur-Sómalíu þegar vopnaðir sjóræningjar réðust á það. Erlent 13.10.2005 19:26 Íþróttafélög semja við borgina Sextán íþróttafélög skrifuðu undir samstarfssamninga við Reykjavíkurborg, Íþrótta og tómstundarráð, og Íþróttabandalag Reykjavíkur um stuðning við félögin og er heildarfjárhæð samningsins 4,4 milljarðar króna. Innlent 13.10.2005 19:26 « ‹ ›
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Maður var dæmdur í 12 mánaða fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gagnvart ungu stúlkubarni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Barnið leit á manninn sem afa sinn og sjálfur bar hann fyrir dómi að hafa litið á stúlkuna sem barnabarn sitt. Innlent 13.10.2005 19:27
Talsmaður neytenda skipaður Gísli Tryggvason var skipaður talsmaður neytenda frá og með deginum í dag til næstu fimm ára. Gísli lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1997 og meistaraprófi í viðskiptafræðum og stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2004. Innlent 13.10.2005 19:27
Tvær kærur felldar niður Ríkissaksóknari úrskurðar innan mánaðar hvort kærur á Sandgerðisbæ verði teknar til greina eftir að Sýslumaðurinn í Keflavík vísaði þeim frá. Innlent 13.10.2005 19:27
Gill unir skyrslettudómi Paul Gill, einn þremenningana sem slettu skyri á álráðstefnu á Hótel Nordica, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfu flugleiðahótela var vísað frá dómi. Gill ætlar ekki að áfrýja dómnum. Innlent 13.10.2005 19:27
Efast um hæfi saksóknara Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, gagnrýnir harðlega rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á honum og fleirum í tengslum við meint brot gegn fyrirtækinu. Hann segir líta út sem lögregla hafi reynt að réttlæta illa ígrundað upphaf málsins með því að leita að sakarefnum. Innlent 13.10.2005 19:27
Vantraust samþykkt á stjórnina Þýska þingið samþykkti nú í morgun vantraust á ríkisstjórn Gerhards Schröders kanslara með 296 atkvæðum gegn 151. Schröder hafði hvatt þingmenn til að styðja vantrauststillöguna svo flýta mætti kosningum. Erlent 13.10.2005 19:27
Ofvitinn og Druslan í Skorradal Ekki er ólíklegt að Ofvitinn og Druslan verði á Indriðastöðum í Skorradal um helgina, eina stærstu ferðahelgi ársins, en þangað stefnir Félag húsbílaeigenda í kvöld. Fréttamaður Stöðvar 2 kynnti sér ferðir þessara tveggja ásamt fjölda annarra húsbíla sem bera álíka skemmtileg nöfn en alls eru húsbílaeigendur hér á landi orðnir 800 talsins. Innlent 13.10.2005 19:27
Sex ákærðir í Baugsmálinu Ákæra Ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu er í 40 liðum og snertir auðgunarkafla almennra hegningarlaga, lög um bókhald, ársreikninga, hlutafélög og tollalög. Stjórn Baugs segist standa með ákærðu og undirbýr skaðabótamál á hendur ríkinu. Rannsókn lögreglu sætir gagnrýni fyrir tíma og tengsl rannsakanda og ákæranda. Innlent 13.10.2005 19:27
Ákærður í Ásláksmáli Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 12. desember 2004 á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ, slegið annan mann hnefahöggi efst í háls vinstra megin með þeim afleiðingum að brot kom í hálshryggjarlið og slagæð við hálshrygg rofnaði. Innlent 13.10.2005 19:27
Lögreglan varar við innbrotum Mjög mikilvægt er að ganga vel frá húsum sínum þegar farið er í frí segir Arinbjörn Snorrason aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík. Fyrstu helgina í júlí leggja margir land undir fót og þá er mikilvægt að tryggja sig gegn innbrotum. Innlent 13.10.2005 19:27
Átök á Gasa svæðinu Átök brutust út á Gasa-ströndinni í dag þegar ísraelskar lögreglusveitir tókust á við róttæka gyðinga. Harðlínumenn búa sig undir átök vegna yfirvofandi brotthvarfs frá landnámssvæðunum. Erlent 13.10.2005 19:26
Hótel sprengt í Bagdad Mildi þykir að enginn lést er sprengjuárás var gerð á Babylon hótelið í miðborg Baghdad, höfuðborgar Íraks í gærkvöldi. Einn særðist í árásinni en þó ekki lífshættulega að því er framkvæmdastjóri hótelsins sagði í samtali við AP-fréttastofuna. Erlent 13.10.2005 19:26
Lögreglumenn sekta sem aldrei fyrr Lögreglumenn um allt land biðu ekki boðana í gær, eftir að skrifað hafði verið undir samning Ríkislögreglustjóra og Umferðarstofu um stórhert eftirlit á þjóðvegunum næstu þrjá mánuðina, og stöðvuðu og sektuðu tugi ökumanna. Innlent 13.10.2005 19:26
Íslensk hryssa dvelur með kengúrum Hryssa af íslenskum ættum, Dana, eyðir nú dögunum í félagsskap kengúruhóps í Ástralíu. Í haganum hjá henni eru líka tvö önnur hross, einnig af íslenskum uppruna. Innlent 13.10.2005 19:26
Dregið úr ofbeldi í Guantanamo Yfirmaður í Guantanamo fangelsinu á Kúbu, sagði í gær að aðeins lítill hluti starfsmanna fangelsisins hefði komið illa fram við fangana. Hann sagði að af þeim þúsundum yfirheyrslna sem þar hafi farið fram, sé í raun aðeins hægt að tala um tíu skipti sem fangar hefðu verið beittir ofbeldi. Erlent 13.10.2005 19:26
SÍF selur hlutabréf SÍF hagnaðist um fjögur hundruð og þrjátíu milljónir króna þegar félagið seldi í dag hlutabréf í gamla keppinautnum SH sem nú kallast Icelandic Group. Þetta eru hlutabréf sem félagið fékk við sameiningu Sjóvíkur og SH. Innlent 13.10.2005 19:26
Hvíta húsið rýmt Þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum var rýmt sem og Hvíta húsið og George Bush, Bandaríkjaforseti fluttur á öruggan stað, er einkaflugvél flaug inn á bannsvæði í borginni í morgun. Erlent 13.10.2005 19:26
Ker vill niðurfellingu sekta Þingfest var í Héraðsdómi Reyjavíkur í gær kæra eignarhaldsfélagsins Kers, sem á Olíufélagið Essó, á hendur ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá ógiltan fyrri úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar um samráð olíufélaganna. Innlent 13.10.2005 19:26
Lokað á Sirkus Síðdegis á mánudag, þremur dögum eftir að hafið var að senda sjónvarpsstöðina Sirkus út á merki PoppTíví, var lokað á útsendingar Sirkus á breiðbandi Símans. Innlent 13.10.2005 19:26
Réttindi samkynhneigðra Össur Skarphéðinsson vill að á næsta þingi verði lögum breytt til að leyfa frumættleiðingar samkynhneigðra og kirkjuvígslu á hjónaböndum þeirra. Þetta sagði Össur í pistil á síðu sinni, Ossur.hexia.net. "Ég er þeirrar skoðunar að það sé gróf mismunun gagnvart samkynhneigðum að þeir fái ekki að helga hjónaband sitt frammi fyrir guði ef að þeir eru trúaðir og óska þess," sagði Össur í samtali við Fréttablaðið. Innlent 13.10.2005 19:26
Braut glas framan í öðrum Aðalmeðferð í máli 23 ára Keflvíkings sem ákærður er fyrir fjölda afbrota fór fram í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. Maðurinn stal farsímum, veskjum, misnotaði greiðslukort sem hann stal, braust inn í bíla, veitingastað og söluturn, var gripinn með eiturlyf og braut glas framan í öðrum manni. Innlent 13.10.2005 19:26
Gæsluvarðhald vegna fíkniefna Rúmlega fertugur maður í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, eftir að talsvert magn af fíkniefnum fannst heima hjá honum við húsleit. Innlent 13.10.2005 19:26
Færri komust að en vildu Fjörutíu nemendur, sem allir fengu mjög góða meðaleinkunn í 9. bekk í vor, sóttu um að komast á nýja almenna bóknámsbraut við Menntaskólann á Akureyri og sleppa þar með við að sitja 10. bekk næsta vetur. 18 komust að. Innlent 13.10.2005 19:26
Ahmadinejad með myrka fortíð Bandaríkjamenn sem haldið var í sendiráði sínu í Teheran í 444 daga fyrir um aldarfjórðungi síðan staðhæfa að nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sé einn gíslatökumannanna. Erlent 13.10.2005 19:26
Miðlæg bólusetningarskrá Miðlæg bólusetningarskrá er það sem koma skal, nái tillögur stýrihóps á vegum sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra fram að ganga. Innlent 13.10.2005 19:26
Uppnám vegna heimsóknar Uppnám ríkir í viðskiptalífinu og innan utanríkisþjónustunnar vegna hótana kínverskra yfirvalda. Þau eru ævareið vegna komu taívanskrar sendinefndar hingað til lands og hóta aðgerðum.Sendinefnd með sjálfum utanríkisráðherra Taívans kom hingað til lands síðdegis og hóf þar með óformlega heimsókn sem valdið hefur töluverðu uppnámi. Innlent 13.10.2005 19:26
Feðrum í fæðingarorlofi fjölgar Foreldrum í fæðingarorlofi hefur fjölgað um rúmlega tvö þúsund á síðustu tveimur árum, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Innlent 13.10.2005 19:26
Sjóræningjar tóku hjálpargögn Skipi sem flytja átti hjálpargögn til Sómalíu hefur verið rænt í Indlandshafi. Um borð í skipinu var matur frá Sameinuðu þjóðunum sem flytja átti til svæðanna sem verst urðu úti í flóðbylgjunni sem skall á ströndum landsins um síðustu jól. Að sögn bandarísku fréttastofunnar CNN var skipið á leiðinni frá kenýsku höfninni Mombasa til Bossaso í Norðaustur-Sómalíu þegar vopnaðir sjóræningjar réðust á það. Erlent 13.10.2005 19:26
Íþróttafélög semja við borgina Sextán íþróttafélög skrifuðu undir samstarfssamninga við Reykjavíkurborg, Íþrótta og tómstundarráð, og Íþróttabandalag Reykjavíkur um stuðning við félögin og er heildarfjárhæð samningsins 4,4 milljarðar króna. Innlent 13.10.2005 19:26