
Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng
Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki.
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum.
Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu.
Lögregla sinnti margs konar verkefnum í dag eins og aðra daga, þar á meðal björgun manns sem staddur var í sjálfheldu á eigin svölum í Hafnarfirði.
Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er fundinn.
Aðalvarðstjóri hefur áhyggjur af fjölgun tilvika þar sem ökumenn aka yfir á rauðu ljósi. Fleiri og fleiri ökumenn séu annars hugar í umferðinni og jafnvel að horfa á kvikmyndir í símanum á meðan þeir keyra.
Maður var handtekinn í dag í vesturhluta Reykjavíkur grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum.
Samband ungra framsóknarmanna fékk ekki að bjóða upp á áfengi þegar kosningamiðstöð þeirra var opnuð við Bankastræti 5 í gær. Formaðurinn segir að einhverjir hafi verið súrir þegar þeir gátu eingöngu fengið óáfenga drykki á staðnum en þeir boða til nýrrar veislu í næstu viku.
Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði.
Ég hef undanfarið rúmt ár fylgst af töluverðum áhuga með vaxandi fjölda manndrápsmála og manndrápstilrauna á Íslandi, og því hvernig íslenska dómskerfið virðist dálítið ráðþrota í slíkum málum.
Tveir voru handteknir í gærkvöldi eða í nótt eftir hópslagsmál við skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Þeir voru í kjölfarið færðir á lögreglustöð þar sem þeir voru vistaðir í fangaklefa. Málið er í rannsókn.
Brotaþoli í mansalsmáli, sem lögregla hefur til rannsóknar og tengist veitingastaðnum Gríska húsinu, sagði í skýrslutöku að hann hafi verið látinn vinna sjö daga í hverri viku, stundum 30 daga í mánuði. Hann, ásamt öðrum manni, fannst sofandi á dýnu í kjallara hússins þegar lögregla réðist þar í húsleit.
Fyrirtaka fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli níu einstaklinga sem krefjast miskabóta vegna framgöngu lögreglu á mótmælum þann 31. maí í Skuggasundi, við fund ríkisstjórnarinnar, vegna ástandsins á Gasa. Þar voru um 40 mótmælendur beittir piparúða. Þrír fóru á slysadeild og tveir fengu aðhlynningu sjúkraliða á vettvangi.
Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir hópslagsmál í Breiðholti í Reykjavík í gærkvöldi eða í nótt.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að tveggja bíla árekstri sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í Reykjavík fimmtudagskvöldið 24. október. Tilkynning um áreksturinn barst klukkan 19.42.
Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í fyrra.
Hildur Kristín Þorvarðardóttir lögreglukona segir að stór hluti umferðarslysa megi rekja til þess að ökumenn séu í símanum við akstur. Hún segir það orðið algengt að fólk sendi skilaboð undir stýri, skoði myndbönd og samfélagsmiðla. Mikill fjöldi viti að þetta sé hættulegt en geri það samt.
Það sem af er ári hefur lögreglu borist mun fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra. Framkvæmdastjóri Barnaverndar segir málin þar harðari en áður og að neysla ungmenna hafi aukist. Þá skorti úrræði og við því þurfi að bregðast.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af bifreið í Garðabæ í dag en eftir að bifreiðin hafði verið stöðvuð kom í ljós að fjórir væru innanborðs sem var umfram þann farþegafjölda sem skráningarskírteini bifreiðarinnar heimilaði. Mennirnir fjórir voru síðan allir handteknir grunaðir um ólöglega dvöl hér á landi.
Embætti ríkislögreglustjóra hyggst ekki veita frekari upplýsingar um umfangsmikla lögregluaðgerð í Sólheimum í Reykjavík í gær þar sem kona vopnuð hnífi með ungt barn var yfirbuguð.
Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna.
Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ómannúðlegt að vista hælisleitendur sem hafa fengið endanlega synjun um vernd hér á landi í fangelsi. Á þessu ári hafi 40 einstaklingar verið vistaðir í fangelsi í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga.
Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi.
Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út.
Lögreglan var kölluð út að skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt vegna slagsmála. Lögreglu barst tilkynning um að hnífur hefði verið dreginn upp og einn einstaklingur skorinn með honum.
Þverárfjallsvegur, sem er skammt frá Blönduósi er lokaður að svo stöddu vegna eldsvoða í bíl.
Gæsluvarðhald yfir manni á fertugsaldri sem var handtekinn á vettvangi þar sem móðir hans fannst látin hefur verið framlengt til 28. nóvember næstkomandi á grundvelli almannahagsmuna.