Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Háhyrningar sáust við Sky Lagoon í Kópavogi síðdegis í dag. Vakti það mikla lukku meðal baðgesta og starfsmanna þegar tveir þeirra syntu í átt að Nauthólfsvík. Innlent 26.5.2026 19:31
Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Brotist var inn í einbýlishús á Kársnesi í Kópavogi um helgina og ýmsum verðmætum stolið. Húsráðendur segja um mikið fjárhagslegt og tilfinningalegt tjón að ræða og eru ekki vongóð um að endurheimta þýfið. Vandað hafi verið til verka og brotamennirnir sneitt hjá öryggiskerfi hússins. Innlent 25.5.2026 22:14
Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald vegna máls sem kom upp í Kársnesi í Kópavogi í gær. Þá hefur verið lagt hald á skotvopn. Innlent 25.5.2026 12:55
Stuð í kosningavökum flokkanna Stjórnmálaflokkar héldu kosningavökur um land allt á laugardagskvöldið til að fagna niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga. Fréttastofa Sýnar kíkti í fjölmargar kosningavökur á höfuðborgarsvæðinu og var gríðarleg stemming víða. Lífið 18. maí 2026 16:46
Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Sextán nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur. Konum fækkar víða en hlutfallið helst það sama annars staðar. Þær eru í nokkrum sveitarfélögum meirihluti fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 14:55
Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn hlaut hreinan meirihluta í sveitarstjórnarkosningum í Kópavogi samkvæmt lokatölum úr bæjarfélaginu. Innlent 17. maí 2026 04:35
Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Jónasi Má Torfasyni oddvita Samfylkingar var fagnað innilega í kosningapartýi flokksins á Café Catalinu í Hamraborginni. Alma Möller heilbrigðisráðherra móðir Jónasar segist hreykin af syni sínum, það hafi verið hann sem dró hana út í stjórnmálin en ekki öfugt. Lífið 16. maí 2026 23:19
Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Það ætlaði allt um koll að keyra í kosningapartýi Sjálfstæðisflokksins í turninum í Kópavogi þegar Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri mætti þangað. Flokkurinn er eftir fyrstu tölur með 45 prósenta fylgi og væri með hreinan meirihluta yrðu þetta lokatölur. Lífið 16. maí 2026 23:12
Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur. Yrðu það lokatölur fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bænum. Annar frambjóðandi flokksins var í áfalli. Allir oddvitar í Kópavogi virðast sáttir við sitt. Innlent 16. maí 2026 22:26
Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn er með langmesta fylgið í Kópavogi samkvæmt fyrstu tölum og fær sex menn miðað við þær. Yfirkjörstjórn í Kópavogi kynnti tölurnar rétt í þessu. Innlent 16. maí 2026 22:19
Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Norræna kóramótið Norbusang hefur farið fram í Kópavogi síðustu daga en þrjú hundruð börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum taka þátt. Á morgun fara fram lokatónleikar í Digraneskirkju klukkan fjögur en þar verður tónverkið Valhoppar vorið frumflutt. Tónlist 15. maí 2026 23:52
Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Laugardaginn 16. maí gefst Kópavogsbúum tækifæri til að ákveða í hvaða átt bærinn þeirra mun stefna. Skoðun 15. maí 2026 22:00
Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Ekið var á hjólreiðamann í Hlíðunum í dag en sá brást við með því að láta höggum rigna yfir bifreiðina svo sást á bílnum. Manninn sakaði ekki. Þá var tilkynnt um þjófnað á fjórum mismunandi stöðum í dag en meðal annars var verkfærum stolið í Árbæ. Innlent 15. maí 2026 18:12
Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 15. maí 2026 16:01
Oddvitaáskorunin: „Baunateljarinn“ Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 15. maí 2026 08:02
Hvernig samfélag er Kópavogur? Samfélagið sem við búum í er framlenging af okkur sjálfum. Bærinn okkar endurspeglar gildin okkar. Mín reynsla af Kópavogsbúum er að þeim er annt um bæinn sinn og nærumhverfi. Skoðun 15. maí 2026 07:32
Sorp víkur fyrir mannlífi Kópavogsdalurinn er einn af þeim stöðum sem gefa Kópavogi sitt sérstaka yfirbragð. Allt árið um kring má sjá fólk á göngu, börn að leik og fjölskyldur að njóta náttúrunnar. Þar fara útivist, hreyfing og samvera vel saman enda skipar dalurinn sérstakan sess í hugum margra bæjarbúa. Skoðun 14. maí 2026 21:02
Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sterkt samfélag byggist ekki aðeins á góðum innviðum eða fallegum byggingum. Það byggist á fólkinu sem þar býr. Öllum íbúum þarf að finnast að rödd þeirra skipti máli og að á þau sé hlustað, óháð tungumáli, fötlun eða aðstæðum. Skoðun 14. maí 2026 19:40
Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana Einstaklingur er sagður hafa farið inn í heimahús og tekið bíllykla í tilraun til að stela bifreið húsráðanda. Náði sá síðarnefndi naumlega að stöðva brotamanninn eftir að hann var búinn að gangsetja bifreiðina. Innlent 14. maí 2026 17:43
Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Lögreglan rannsakar rán og minniháttar líkamsárás í Salahverfi í Kópavogi í nótt þar sem kona og tveir menn eru sögð hafa ráðist á mann inni á heimili hans. Konan er sögð hafa bankað upp á en þegar húsráðandinn opnaði dyrnar ruddust inn tveir karlmenn sem réðust á hann og rændu hann. Innlent 14. maí 2026 11:22
Oddvitaáskorunin: Ekki spenntur fyrir hvalveiðum Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. maí 2026 09:02
Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi sakar meirihlutann í bænum um að hafa flýtt framkvæmdum við nýjan miðbæ til að uppfylla kosningaloforð. Lítið samráð hafi verið haft við íbúa sem kvarti yfir hávaða og raski. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vísar því á bug en biðlar til íbúa að sýna þolinmæði. Glæsilegur miðbær muni rísa á svæðinu. Innlent 13. maí 2026 21:01
Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Föngulegur hópur; 98 barnungir og fullorðnir hjólarar, tvær löggur og hundur, lögðu leið sína fram og aftur eftir Kársnesinu í Kópavogi í morgun. Um var að ræða svokallaðan „hjólastrætó“ í skólann, þar sem börn hjóla saman í skólann í fylgd með fullorðnum. Innlent 13. maí 2026 15:39
Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Ég bauð mig fram á lista Framsóknar í Kópavogi af ástríðu fyrirþví að gera góðan bæ og þjónustu hans enn betri. Ég trúi aðalltaf megi bæta hlutina; stundum með langhlaupi, en oft dugarað taka stuttan, markvissan sprett. Skoðun 13. maí 2026 15:30