Mane á skotskónum í þýska ofurbikarnum Bayern Munchen eru meistarar meistaranna í þýska fótboltanum eftir sigur á RB Leipzig í fjörugum leik í kvöld. Fótbolti 30. júlí 2022 20:31
Ronaldo æfði með Man Utd í dag og spilar á morgun Alls óvíst er hvar framtíð Cristiano Ronaldo liggur en hann mun þó taka þátt í síðasta æfingaleik Man Utd áður en enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi. Enski boltinn 30. júlí 2022 20:02
Klopp: „Við erum tilbúnir í mótið“ Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ánægður með það sem hann sá af sínu liði í leiknum um Góðgerðarskjöldinn á King Power leikvangnum í Leicester í dag. Enski boltinn 30. júlí 2022 19:00
Stjörnuframherji Dortmund hefur lyfjameðferð vegna krabbameins Þýska úrvalsdeildarliðið Borussia Dortmund hefur staðfest að Sebastian Haller hafi gengist undir aðgerð eftir að æxli í eistum gerðu vart við sig og við taki lyfjameðferð næstu mánuðina. Fótbolti 30. júlí 2022 19:00
Jón Dagur kominn á blað í Belgíu Jón Dagur Þorsteinsson stimplaði sig inn í belgísku úrvalsdeildina í fótbolta í dag þegar hann gerði sitt fyrsta mark fyrir OH Leuven. Fótbolti 30. júlí 2022 18:18
Brynjólfur og félagar unnu loks sinn fyrsta sigur Brynjólfur Willumsson og félagar í Kristiansund unnu í dag sinn fyrsta sigur á tímabilinu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 30. júlí 2022 18:11
Liverpool vann Samfélagsskjöldinn í fyrsta sinn í sextán ár Enski boltinn hófst formlega í dag þegar Liverpool og Manchester City áttust við í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Enski boltinn 30. júlí 2022 17:55
Arnar Bergmann: Ótrúlegt að Nikolaj hafi getað byrjað þennan leik Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ekki viss þegar hann var spurður hvort hann sæi glasið hálffullt eða hálftómt eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í dag. Fótbolti 30. júlí 2022 16:56
„Strákarnir eiga skilið að njóta sín og skemmta sér í Dalnum“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, sagði jafntefli líklega hafa verið sanngjörn úrslit í leik ÍBV og Keflavíkur sem fram fór í Bestu deildinni í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 30. júlí 2022 16:42
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Keflavík 2-2 | Stigunum deilt í gleðinni á Þjóðhátíð ÍBV hafði unnið síðustu tvo leiki áður en þeir fengu Keflavík í heimsókn á laugardegi á Þjóðhátíð. Leikurinn var mikil skemmtun og endaði með tvö-tvö jafntefli. Íslenski boltinn 30. júlí 2022 16:31
Alfons spilaði allan leikinn í sigri Alfons Sampsted var á sínum stað í byrjunarliði Bodo/Glimt þegar liðið heimsótti Álasund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 30. júlí 2022 15:59
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Víkingur 2-2 | Bæði lið hæfilega sátt við stigið Stjarnan og Víkingur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í lokaleik 14. umferðar í Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í dag. Bæði lið hefðu sárlega þurft á stigunum að halda í toppbaráttunni. Íslenski boltinn 30. júlí 2022 15:51
Arsenal skoraði sex á Sevilla á meðan Man Utd tapaði fyrir Atletico Ensku liðin eru í lokaundirbúningi sínum áður en flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Enski boltinn 30. júlí 2022 14:15
Böðvar spilaði í dramatískum sigri Böðvar Böðvarsson og félagar í Trelleborg eru í góðum málum í sænsku B-deildinni í fótbolta. Fótbolti 30. júlí 2022 12:55
Fyrsta orrustan í titlastríðinu háð í dag Liverpool og Manchester City berjast um fyrsta titil tímabilsins í enska boltanum þegar liðin mætast í leiknum um Samfélagsskjöldinn á King Power vellinum í Leicester í dag. Þessi tvö lið hafa barist um alla þá titla sem í boði eru undanfarin ár og á þessu tímabili virðist engin breyting verða þar á. Enski boltinn 30. júlí 2022 12:30
Þakkar stuðningsmönnum annarra liða fyrir að láta sig heyra það Kristall Máni Ingason lék í vikunni sinn síðasta leik fyrir Víking Reykjavík, að minnsta kosti í bili. Hann þakkaði ekki einungis stuðningsmönnum þeirra fyrir sig, heldur allra hinna liðanna í deildinni einnig. Íslenski boltinn 30. júlí 2022 12:01
Gjörbreyttur leikstíll Burnley undir stjórn Kompany Burnley hóf leik í ensku B-deildinni í fótbolta í gærkvöldi eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor. Enski boltinn 30. júlí 2022 11:30
Hver verður markadrotting á EM? Tveir markahæstu leikmenn Evrópumóts kvenna í fótbolta verða báðir í eldlínunni þegar England mætir Þýskalandi í úrslitaleik mótsins á morgun. Fótbolti 30. júlí 2022 10:30
Ödegaard nýr fyrirliði Arsenal Norðmaðurinn Martin Ödegaard mun leiða lið Arsenal til leiks í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi. Enski boltinn 30. júlí 2022 10:10
Mourinho mætir Tottenham í umdeildum leik: „Hámark hræsninnar“ Lærisveinar José Mourinho í Roma mæta Tottenham Hotspur í æfingaleik á morgun. Stuðningsmenn Tottenham eru margir hverjir spenntir fyrir því að endurnýja kynnin við Portúgalann sem stýrði liðinu frá 2019 til 2021. Staðsetning leiksins hefur hins vegar vakið athygli. Fótbolti 30. júlí 2022 09:00
Búist við að Guardiola muni sleppa beislinu af Haaland Enskir fjölmiðlar gera fastlega ráð fyrir því að Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, muni hafa Erling Haaland í framlínu liðsins gegn Liverpool í leik dagsins um Samfélagsskjöldinn. Fótbolti 30. júlí 2022 08:01
Tíu ára þjálfarar hjálpa yngri krökkunum að elta drauma sína Tveir ungir drengir á Seltjarnarnesi bjóða um helgina upp á knattspyrnunámskeið fyrir börn á aldrinum fimm til sjö ára. Markmið þeirra er að hjálpa krökkunum að verða betri í fótbolta og elta drauma sína, en strákarnir skipulögðu námskeiðið og útfærðu æfingarnar sjálfir. Innlent 30. júlí 2022 07:01
„Væri gaman að vinna hann einu sinni“ Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, segir leik dagsins við Manchester City, vera félagi sínu mikilvægan. Samfélagsskjöldurinn er eini enski bikarinn sem Klopp hefur ekki tekist að vinna á stjóratíð sinni í Bítlaborginni. Fótbolti 30. júlí 2022 07:01
Domino's endurnefnir stað í höfuð landsliðskonu og fyrrum starfsmanns Englendingar eru í skýjunum vegna góðs árangurs kvennalandsliðs þeirra á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem fer fram á Englandi. Lucy Bronze hlaut sérstakan heiður frá Domino's. Fótbolti 29. júlí 2022 23:00
Laporte ekki með á morgun Spænski varnarmaðurinn Aymeric Laporte verður ekki með Manchester City þegar liðið mætir Liverpool í leiknum um Samfélagsskjöldinn á morgun. Hann mun ekki snúa aftur fyrr en í september. Fótbolti 29. júlí 2022 22:00
Rosenborg sagðir ákveðnir í því að klófesta Ísak Snæ Aðeins virðist vera tímaspursmál hvenær Ísak Snær Þorvaldsson, annar tveggja markahæstu leikmanna Bestu deildar karla í fótbolta, heldur utan í atvinnumennsku. Rosenborg í Noregi er sagt áhugasamt. Fótbolti 29. júlí 2022 21:30
Jóhann Berg enn frá er Burnley vann fyrsta leik Jóhann Berg Guðmundsson var utan hóps Burnley sem vann Huddersfield í fyrstu umferð ensku Championship-deildarinnar í kvöld. Fótbolti 29. júlí 2022 21:01
Mætti með yfirvaraskegg á blaðamannafund Alexandra Popp, fyrirliði þýska kvennalandsliðsins í fótbolta, fór mikinn á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik liðsins við England á Evrópumótinu í fótbolta sem fram fer á sunnudag. Fótbolti 29. júlí 2022 20:30
Viðar spilaði allan leikinn í tapi Viðar Ari Jónsson spilaði allan leikinn í hægri bakverði Budapest Honved er liðið tapaði 1-0 fyrir Zalaegerszegi í fyrstu umferð ungversku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 29. júlí 2022 20:01
Fyrsta tap lærisveina Hannesar á tímabilinu Wacker Burghausen, undir stjórn Hannesar Þ. Sigurðssonar, tapaði í kvöld 2-0 fyrir Vilzing í þýsku þriðju deildinni. Fótbolti 29. júlí 2022 19:30