Fótbolti

Fjórði sigurinn í röð hjá Sverri og félögum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað í liði PAOK.
Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað í liði PAOK. Getty

Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK unnu góðan 0-2 útisigur er liðið heimsótti Panetolikos í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fjórði deildarsigur liðsins í röð.

Sverrir var á sínum stað í byrjunarliði PAOK í hjarta varnarinnar og lék allan leikinn fyrir liðið. Það tók sinn tíma fyrir gestina að brjóta ísinn, en fyrsta mark leiksins leit loksins dagsins ljós á fimmtu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Þeir gulltryggðu svo sigurinn þegar um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og niðurstaðan því 0-2 sigur PAOK.

PAOK situr nú í þriðja sæti grísku úrvalsdeildarinnar með 28 stig eftir 14 leiki, en Panetolikos situr í áttunda með 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×