Fleiri fréttir Neyðarlínan kaupir af Vodafone Neyðarlínan hefur keypt af Vodafone 12 fjarskiptahús og 16 fjarskiptamöstur sem ýmist eru staðsett á hálendindu eða í dreifbýli víða um land. 8.6.2011 10:08 Skuldatryggingaálag á Ísland niður í 200 punkta Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið er nú komið niður í slétta 200 punkta og hefur ekki verið lægra síðan töluvert fyrir hrunið árið 2008. 8.6.2011 09:54 Verðið hækkaði um 100 prósent Útflutningur á áli Alcoa í Reyðarfirði dróst saman um þrjú þúsund tonn í fyrra frá árinu 2009. Á sama tíma jókst verðmæti útflutningsins. 8.6.2011 09:30 Ríkið í milljarðs dollara skuldabréfaútgáfu erlendis Íslenska ríkið hefur auglýst alþjóðlegt skuldabréfaútboð að upphæð samtals 1 milljarðs dollara eða rúmlega 113 milljarða kr. 8.6.2011 09:14 Landsframleiðslan jókst um 2% milli ársfjórðunga Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. 8.6.2011 09:02 Reikna með frekari hækkunum á íbúðamarkaði Greining Íslandsbanka reiknar með því að framhald verði á verðhækkunum og aukinni veltu á íbúðamarkaði á næstunni. 8.6.2011 08:06 Farþegum Icelandair fjölgaði um 22% milli ára í maí Icelandair flutti 136 þúsund farþega í maí og fjölgaði þeim um 22% á milli ára. Sætanýting var 77,2%. 8.6.2011 07:17 Fyrsta skrefið í afléttingu hafta Seðlabanki Íslands hélt í gær útboð á gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna. Alls bárust tilboð upp á rúmlega 60 milljarða króna en fimmtán milljarðar voru í boði að hámarki. Tilboðum var tekið fyrir 13,4 milljarða, á meðalverðinu 218,9 krónur fyrir evru. 8.6.2011 07:15 Árleg fjárfesting var um tíu milljarðar Fjárfesting í sjávarútvegi var um níutíu milljarðar króna frá 2001 fram til ársins 2009, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hann hafnar alfarið fullyrðingu Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og varaformanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, um að fjárfesting í sjávarútvegi hafi nánast engin verið um langt árabil. 8.6.2011 07:00 Vilja losna á veiku gengi Fyrsta gjaldeyrisútboði Seðlabankans er lokið og bárust tilboð fyrir sextíu og einn milljarð. Í tilkynningu frá bankanum segir að tilboðum hafi verið tekið fyrir 13,4 milljarða og var lágmarksverð samþykktra tilboða 215 krónur fyrir evru. Meðalverð nam hinsvegar tæpum 219 krónum á evru. 7.6.2011 16:54 Ellefu íþróttafélög fengu alls 9 milljón króna styrk Ellefu aðildarfélög Íþróttabandalags Hafnarfjarðar hlutu í gær samtals 9 milljóna króna styrki til eflingar barna- og unglingastarfs félaganna. Að styrkjunum standa Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan á Íslandi og voru þeir afhentir í höfuðstöðvum álversins í Straumsvík. Um er að ræða fyrri afhendingu ársins á árlegum 15 milljóna króna styrk samkvæmt samstarfssamningi ÍBH, Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæjar. Greiðir Rio Tinto Alcan 9 milljónir á ári og Hafnarfjarðarbær 6 milljónir. Samstarf þessara þriggja aðila hefur staðið frá árinu 2001. Fjárhæð vorúthlutunar skiptist á félögin eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en við desemberúthlutun er útdeilt með hliðsjón af námskrám félaganna og menntunarstigi þjálfara. Eftirfarandi félög hlutu styrk í gær: Knattspyrnufélagið Haukar 2.737.023,- Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) 2.188.456,- Fimleikafélagið Björk 2.014.000,- Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) 604.781,- Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) 362.481,- Golfklúbburinn Keilir 354.728,- Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) 323.713,- Siglingaklúbburinn Þytur 222.916,- Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) 96.920,- Hestamannafélagið Sörli 58.152,- Íþróttafélagið Fjörður 36.830,- Rannveig Rist, forstjóri álversins, Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri og Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, lögðu öll áherslu á mikilvægi þessa samstarfs fyrir íþróttalíf bæjarins, og þann margvíslega samfélagslega ávinning sem öflugt íþróttastarf hefur í för með sér. Hafði Rannveig jafnframt á orði að gullsöfnun hafnfirskra íþróttamanna væri orðin slík að móðurfélag álversins, Rio Tinto, væri farið að muna talsvert um hana, en gull er ein af afurðum fyrirtækisins. Á meðfylgjandi mynd eru Rannveig, Guðmundur Rúnar og Hrafnkell ásamt fulltrúum aðildarfélaga ÍBH við afhendingu styrkjanna í Straumsvík í gær. 7.6.2011 15:22 Raungengi krónunnar lækkar áfram Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,2% á milli apríl og maí síðastliðins á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þessi lækkun er tilkomin vegna lækkunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu, en hún lækkaði um 1,1% miðað við vísitölu meðalgengis í maí frá fyrri mánuði. 7.6.2011 10:09 Deloitte samþykkt sem viðurkenndur ráðgjafi í Kauphöllinni Kauphöllin hefur samþykkt að Deloitte hf. verði viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum á markaðnum. 7.6.2011 09:27 Fjarðarál flutti út ál fyrir 250 milljónir á dag Fjarðaál flutti út ál fyrir tæplega 790 milljónir dollara, sem svarar til 94 milljarða króna á síðasta ári miðað við gengi bandaríkjadollars í desember síðastliðnum. Verðmæti útflutningsins nam því rúmlega 250 milljónum króna hvern dag. Um 33% útflutningstekna fyrirtækisins urðu eftir í landinu, eða rúmlega 31 milljarður króna. 7.6.2011 09:07 Vöruskiptin hagstæð um 6 milljarða í apríl Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 42,0 milljarða króna og inn fyrir tæpa 36,0 milljarða króna. Vöruskiptin í apríl voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna. Í apríl 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða króna á sama gengi. 7.6.2011 09:02 Skemmtiferðaskip skila milljörðum Um 74 þúsund ferðamenn komu sjóleiðina til landsins í fyrra og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í Sjómannadagsblaðinu, en þar segir einnig að stöðug fjölgun skemmtiferðaskipa skili sífellt hærri upphæðum í gjaldeyristekjur. 7.6.2011 09:00 Fasteignakaup jukust um 97% milli ára í maí Kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um tæp 97% í maí síðastliðnum miðað við maí í fyrra. Veltan jókst um rúm 112% milli ára í maí. 7.6.2011 07:10 Íslenska hagkerfið heldur áfram að rétta úr kútnum Íslenska hagkerfið er áfram á batavegi og búist er við 2,25 prósenta hagvexti á árinu 2011. Þá eru öll skilyrði fyrir áframhaldandi framgangi samstarfsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) uppfyllt. Þetta er mat AGS sem birtist í nýrri starfsmannaskýrslu sjóðsins sem kom út í gær í kjölfar fimmtu endurskoðunar samstarfsáætlunarinnar. 7.6.2011 07:00 Ráðgjöf fyrir 555 milljónir 7.6.2011 00:01 Í lagi að gefa peninga á viðskiptalegum forsendum Þingmaður kallaði Landsbankann í dag Hróa Hött vegna niðurfellinga á skuldum viðskiptavina. Ráðherra segir að bankarnir megi gefa peninga geri þeir það á viðskiptalegum forsendum. 6.6.2011 18:45 Exxon Mobil sýnir Drekaútboðinu áhuga Bandarísku olíurisarnir Exxon Mobil og Conoco Phillips, ásamt Statoil í Noregi og Total í Frakklandi, eru meðal þeirra átta olíufélaga sem sóttu kynningarfund um væntanlegt útboð Íslendinga á Drekasvæðinu, sem Orkustofnun stóð fyrir í Stafangri í Noregi í dag. Önnur félög sem sendu fulltrúa sína á fundinn eru Atlantic Petrolium í Færeyjum, Faroe Petrolium í Bretlandi, Sagex Petrolium í Noregi og Tullow Oil í Bretlandi. 6.6.2011 18:36 AGS með strangt eftirlit á Íslandi eftir að áætlun lýkur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mun verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi gjaldeyrishafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf. AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér. 6.6.2011 15:26 Hæstiréttur troðfullur í gengisdómamáli Áhorfendapallar í sal Hæstaréttar Íslands voru fullir þegar að sjö manna dómur kom þar saman í fyrsta sinn í sjö ár klukkan eitt í dag. Þar tókust á lögmaður Landsbanka Íslands og lögmaður þrotabús Motormax. 6.6.2011 14:44 Gjaldeyrishöftin tefja fyrir bata Þó svo að efnahagsbati á Íslandi hafi verið ótrúlega góður eftir eitt mesta hrun sögunnar standa gjaldeyrishöft nú í vegi fyrir frekari bata. Þetta kemur fram í grein eftir Þorvald Gylfason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem birtist á hagfræðivefnum Vox fyrir helgi. 6.6.2011 14:00 Aðalsteinn Leifsson formaður stjórnar FME Aðalsteinn Leifsson, lektor, hefur tekið við sem nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent, hefur tekið við sem varaformaður. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, situr áfram í stjórn Fjármálaeftirlitsins. 6.6.2011 11:10 Nýskráningar bíla aukast um 120% milli ára Nýskráningar bíla í janúar–maí 2011 voru 2.200 miðað við 997 í janúar–maí árið áður. Þetta er 120,7% aukning á milli ára. 6.6.2011 09:12 Kortavelta eykst töluvert á milli ára Kreditkortavelta heimila jókst um 7,4% í janúar–apríl í ár miðað við janúar–apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 1,6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–apríl í ár um 4,7% miðað við janúar–apríl í fyrra. 6.6.2011 09:08 Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgar áfram Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgaði um 200 í maímánuði. Hefur þessum fyrirtækjum því fjölgað um 46% frá árinu 2009 og eru þau nú 6.700 talsins. 6.6.2011 08:59 AGS vill hraða skuldaúrlausnum fyrir heimili og fyrirtæki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að íslensk stjórnvöldi eigi að hraða endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Nýjar úrlausnir sem kynntar hafa verið eigi að komast í gagnið eins fljótt og auðið er. 6.6.2011 08:47 Undrast tímasetninguna á erlendu skuldabréfaútboði Íslands Þrír alþjóðlegir stórbankar vinna nú að fyrstu erlendu skuldabréfaútgáfu íslenskra stjórnvalda frá því fyrir hrunið. Tímasetningin á útgáfunni kemur erlendum bankamönnum á óvart. 6.6.2011 06:52 Fjárfestu ekki skynsamlega „Útgerðarmenn hafa verið áhættusæknir í fjárfestingum sínum sem margar hafa gefist illa. Það er óvarlegt að draga þær ályktanir að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafi neikvæð áhrif á raungengið,“ segir ÞórólfurMatthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands. 6.6.2011 05:15 Fjárfesting löngum lítil í sjávarútvegi „Fjárfesting í sjávarútvegi hefur nánast ekki verið nein í tíu ár,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. 6.6.2011 05:00 Átti að sækja um 160 undanþágur „Ég er á móti því að einn fái undanþágu en ekki annar,“ segir Lúðvík Júlíusson. Hann hefur staðið í stappi við Seðlabankann um nokkurra mánaða skeið til að fá gjaldeyrishöftunum breytt. Hann vill láta gera þau mannlegri, fólk sé ekki reitir í excel-skjali. 6.6.2011 05:00 Heildarkröfur á fjórða milljarð „Nú er loks búið að koma þessari skuldastöðu hafnarinnar fyrir horn. Þetta hefur tekið langan tíma og málið farið nokkra hringi,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. 6.6.2011 04:30 Til skoðunar að skattleggja skuldaniðurfellingu hjá Landsbanka Til skoðunar er í fjármálaráðuneytinu að krefja viðskiptavini Landsbankans um endurgreiðslu á vaxtabótum vegna endurgreiðslu sem þeir fá frá bankanum. Þá verður niðurfelling skulda hugsanlega sérstaklega skattlögð sem tekjur. 5.6.2011 20:15 Með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði Íslandsbanki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði í maí, með 27% hlutdeild, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Alls nam veltan 216,4 milljörðum króna sem er rúmlega 20 milljörðum meira en meðaltal þessa árs. 5.6.2011 11:08 Fjórar hópuppsagnir í maí kosta 81 vinnuna Vinnumálastofnun bárust 4 tilkynningar um hópuppsagnir í maí síðastliðnum. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í mannvirkjagerð, hugbúnaðargerð, upplýsingastarfsemi og sjávarútvegi. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 81 manns. 5.6.2011 09:27 Velta með gjaldeyri minnkar milli mánaða Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í maímánuði 2011 nam 5.343 milljónum kr. sem er 207 milljónum kr. minni velta en í apríl 2011. 5.6.2011 07:30 Veltan eykst og meðalverð hækkar á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 87. Þetta er nær sami fjöldi og nemur meðaltalinu á viku undanfarnar 12 vikur sem er 88 samningar. Hinsvegar hefur heildarveltan aukist og meðalupphæð á samning hefur hækkað. 5.6.2011 07:26 MP Banki hefur áhuga á að kaupa BYR MP banki hefur sett sig í samband við slitastjórn Byrs með það fyrir augum að kaupa sparisjóðinn. Forstjóri Byrs segir að fleiri sýni sparisjóðnum áhuga. 4.6.2011 19:30 Segja kjarasamning til þriggja ára í uppnámi Aðilar vinnumarkaðarins saka forystumenn ríkisstjórnarinnar um að ganga á bak orða sinna og segja kjarasamninga til þriggja ára í uppnámi. 4.6.2011 19:00 Icesave stöðvaði sölu á Íslandsbanka Áhugi á Íslandsbanka, sem er til sölu hjá skilanefnd Glitnis, slokknaði þegar niðurstaðan í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunni lá fyrir segir formaður skilanefndar Glitnis. 4.6.2011 18:31 Íslendingur semur við Rússa fyrir hönd WTO Íslendingur leiðir viðræður Alþjóðviðskiptastofnunarinnar við Rússa en leiðtogar G8 ríkjanna telja afar mikilvægt að Rússar gangi til liðs við stofnunina sem leggur grunninn að viðskiptum heimsins. 4.6.2011 13:00 Hugsanlega hægt að hraða afnámi hafta Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að fimmta endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun íslands feli í sér traustyfirlýsingu á efnahagsstjórnina. Hann útilokar ekki að hægt verði að hraða afnámi gjaldeyrishafta. 4.6.2011 12:06 AGS lýsa yfir áhyggjum af atvinnuleysi og hægri endurskipulagningu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir það áhyggjuefni að íslenskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að minnka atvinnuleysi og hraða endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja. 4.6.2011 10:13 Sjá næstu 50 fréttir
Neyðarlínan kaupir af Vodafone Neyðarlínan hefur keypt af Vodafone 12 fjarskiptahús og 16 fjarskiptamöstur sem ýmist eru staðsett á hálendindu eða í dreifbýli víða um land. 8.6.2011 10:08
Skuldatryggingaálag á Ísland niður í 200 punkta Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið er nú komið niður í slétta 200 punkta og hefur ekki verið lægra síðan töluvert fyrir hrunið árið 2008. 8.6.2011 09:54
Verðið hækkaði um 100 prósent Útflutningur á áli Alcoa í Reyðarfirði dróst saman um þrjú þúsund tonn í fyrra frá árinu 2009. Á sama tíma jókst verðmæti útflutningsins. 8.6.2011 09:30
Ríkið í milljarðs dollara skuldabréfaútgáfu erlendis Íslenska ríkið hefur auglýst alþjóðlegt skuldabréfaútboð að upphæð samtals 1 milljarðs dollara eða rúmlega 113 milljarða kr. 8.6.2011 09:14
Landsframleiðslan jókst um 2% milli ársfjórðunga Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. 8.6.2011 09:02
Reikna með frekari hækkunum á íbúðamarkaði Greining Íslandsbanka reiknar með því að framhald verði á verðhækkunum og aukinni veltu á íbúðamarkaði á næstunni. 8.6.2011 08:06
Farþegum Icelandair fjölgaði um 22% milli ára í maí Icelandair flutti 136 þúsund farþega í maí og fjölgaði þeim um 22% á milli ára. Sætanýting var 77,2%. 8.6.2011 07:17
Fyrsta skrefið í afléttingu hafta Seðlabanki Íslands hélt í gær útboð á gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna. Alls bárust tilboð upp á rúmlega 60 milljarða króna en fimmtán milljarðar voru í boði að hámarki. Tilboðum var tekið fyrir 13,4 milljarða, á meðalverðinu 218,9 krónur fyrir evru. 8.6.2011 07:15
Árleg fjárfesting var um tíu milljarðar Fjárfesting í sjávarútvegi var um níutíu milljarðar króna frá 2001 fram til ársins 2009, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hann hafnar alfarið fullyrðingu Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og varaformanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, um að fjárfesting í sjávarútvegi hafi nánast engin verið um langt árabil. 8.6.2011 07:00
Vilja losna á veiku gengi Fyrsta gjaldeyrisútboði Seðlabankans er lokið og bárust tilboð fyrir sextíu og einn milljarð. Í tilkynningu frá bankanum segir að tilboðum hafi verið tekið fyrir 13,4 milljarða og var lágmarksverð samþykktra tilboða 215 krónur fyrir evru. Meðalverð nam hinsvegar tæpum 219 krónum á evru. 7.6.2011 16:54
Ellefu íþróttafélög fengu alls 9 milljón króna styrk Ellefu aðildarfélög Íþróttabandalags Hafnarfjarðar hlutu í gær samtals 9 milljóna króna styrki til eflingar barna- og unglingastarfs félaganna. Að styrkjunum standa Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan á Íslandi og voru þeir afhentir í höfuðstöðvum álversins í Straumsvík. Um er að ræða fyrri afhendingu ársins á árlegum 15 milljóna króna styrk samkvæmt samstarfssamningi ÍBH, Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæjar. Greiðir Rio Tinto Alcan 9 milljónir á ári og Hafnarfjarðarbær 6 milljónir. Samstarf þessara þriggja aðila hefur staðið frá árinu 2001. Fjárhæð vorúthlutunar skiptist á félögin eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en við desemberúthlutun er útdeilt með hliðsjón af námskrám félaganna og menntunarstigi þjálfara. Eftirfarandi félög hlutu styrk í gær: Knattspyrnufélagið Haukar 2.737.023,- Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) 2.188.456,- Fimleikafélagið Björk 2.014.000,- Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) 604.781,- Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) 362.481,- Golfklúbburinn Keilir 354.728,- Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) 323.713,- Siglingaklúbburinn Þytur 222.916,- Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) 96.920,- Hestamannafélagið Sörli 58.152,- Íþróttafélagið Fjörður 36.830,- Rannveig Rist, forstjóri álversins, Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri og Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, lögðu öll áherslu á mikilvægi þessa samstarfs fyrir íþróttalíf bæjarins, og þann margvíslega samfélagslega ávinning sem öflugt íþróttastarf hefur í för með sér. Hafði Rannveig jafnframt á orði að gullsöfnun hafnfirskra íþróttamanna væri orðin slík að móðurfélag álversins, Rio Tinto, væri farið að muna talsvert um hana, en gull er ein af afurðum fyrirtækisins. Á meðfylgjandi mynd eru Rannveig, Guðmundur Rúnar og Hrafnkell ásamt fulltrúum aðildarfélaga ÍBH við afhendingu styrkjanna í Straumsvík í gær. 7.6.2011 15:22
Raungengi krónunnar lækkar áfram Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,2% á milli apríl og maí síðastliðins á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þessi lækkun er tilkomin vegna lækkunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu, en hún lækkaði um 1,1% miðað við vísitölu meðalgengis í maí frá fyrri mánuði. 7.6.2011 10:09
Deloitte samþykkt sem viðurkenndur ráðgjafi í Kauphöllinni Kauphöllin hefur samþykkt að Deloitte hf. verði viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum á markaðnum. 7.6.2011 09:27
Fjarðarál flutti út ál fyrir 250 milljónir á dag Fjarðaál flutti út ál fyrir tæplega 790 milljónir dollara, sem svarar til 94 milljarða króna á síðasta ári miðað við gengi bandaríkjadollars í desember síðastliðnum. Verðmæti útflutningsins nam því rúmlega 250 milljónum króna hvern dag. Um 33% útflutningstekna fyrirtækisins urðu eftir í landinu, eða rúmlega 31 milljarður króna. 7.6.2011 09:07
Vöruskiptin hagstæð um 6 milljarða í apríl Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 42,0 milljarða króna og inn fyrir tæpa 36,0 milljarða króna. Vöruskiptin í apríl voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna. Í apríl 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða króna á sama gengi. 7.6.2011 09:02
Skemmtiferðaskip skila milljörðum Um 74 þúsund ferðamenn komu sjóleiðina til landsins í fyrra og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í Sjómannadagsblaðinu, en þar segir einnig að stöðug fjölgun skemmtiferðaskipa skili sífellt hærri upphæðum í gjaldeyristekjur. 7.6.2011 09:00
Fasteignakaup jukust um 97% milli ára í maí Kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um tæp 97% í maí síðastliðnum miðað við maí í fyrra. Veltan jókst um rúm 112% milli ára í maí. 7.6.2011 07:10
Íslenska hagkerfið heldur áfram að rétta úr kútnum Íslenska hagkerfið er áfram á batavegi og búist er við 2,25 prósenta hagvexti á árinu 2011. Þá eru öll skilyrði fyrir áframhaldandi framgangi samstarfsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) uppfyllt. Þetta er mat AGS sem birtist í nýrri starfsmannaskýrslu sjóðsins sem kom út í gær í kjölfar fimmtu endurskoðunar samstarfsáætlunarinnar. 7.6.2011 07:00
Í lagi að gefa peninga á viðskiptalegum forsendum Þingmaður kallaði Landsbankann í dag Hróa Hött vegna niðurfellinga á skuldum viðskiptavina. Ráðherra segir að bankarnir megi gefa peninga geri þeir það á viðskiptalegum forsendum. 6.6.2011 18:45
Exxon Mobil sýnir Drekaútboðinu áhuga Bandarísku olíurisarnir Exxon Mobil og Conoco Phillips, ásamt Statoil í Noregi og Total í Frakklandi, eru meðal þeirra átta olíufélaga sem sóttu kynningarfund um væntanlegt útboð Íslendinga á Drekasvæðinu, sem Orkustofnun stóð fyrir í Stafangri í Noregi í dag. Önnur félög sem sendu fulltrúa sína á fundinn eru Atlantic Petrolium í Færeyjum, Faroe Petrolium í Bretlandi, Sagex Petrolium í Noregi og Tullow Oil í Bretlandi. 6.6.2011 18:36
AGS með strangt eftirlit á Íslandi eftir að áætlun lýkur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mun verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi gjaldeyrishafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf. AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér. 6.6.2011 15:26
Hæstiréttur troðfullur í gengisdómamáli Áhorfendapallar í sal Hæstaréttar Íslands voru fullir þegar að sjö manna dómur kom þar saman í fyrsta sinn í sjö ár klukkan eitt í dag. Þar tókust á lögmaður Landsbanka Íslands og lögmaður þrotabús Motormax. 6.6.2011 14:44
Gjaldeyrishöftin tefja fyrir bata Þó svo að efnahagsbati á Íslandi hafi verið ótrúlega góður eftir eitt mesta hrun sögunnar standa gjaldeyrishöft nú í vegi fyrir frekari bata. Þetta kemur fram í grein eftir Þorvald Gylfason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem birtist á hagfræðivefnum Vox fyrir helgi. 6.6.2011 14:00
Aðalsteinn Leifsson formaður stjórnar FME Aðalsteinn Leifsson, lektor, hefur tekið við sem nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent, hefur tekið við sem varaformaður. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, situr áfram í stjórn Fjármálaeftirlitsins. 6.6.2011 11:10
Nýskráningar bíla aukast um 120% milli ára Nýskráningar bíla í janúar–maí 2011 voru 2.200 miðað við 997 í janúar–maí árið áður. Þetta er 120,7% aukning á milli ára. 6.6.2011 09:12
Kortavelta eykst töluvert á milli ára Kreditkortavelta heimila jókst um 7,4% í janúar–apríl í ár miðað við janúar–apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 1,6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–apríl í ár um 4,7% miðað við janúar–apríl í fyrra. 6.6.2011 09:08
Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgar áfram Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgaði um 200 í maímánuði. Hefur þessum fyrirtækjum því fjölgað um 46% frá árinu 2009 og eru þau nú 6.700 talsins. 6.6.2011 08:59
AGS vill hraða skuldaúrlausnum fyrir heimili og fyrirtæki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að íslensk stjórnvöldi eigi að hraða endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Nýjar úrlausnir sem kynntar hafa verið eigi að komast í gagnið eins fljótt og auðið er. 6.6.2011 08:47
Undrast tímasetninguna á erlendu skuldabréfaútboði Íslands Þrír alþjóðlegir stórbankar vinna nú að fyrstu erlendu skuldabréfaútgáfu íslenskra stjórnvalda frá því fyrir hrunið. Tímasetningin á útgáfunni kemur erlendum bankamönnum á óvart. 6.6.2011 06:52
Fjárfestu ekki skynsamlega „Útgerðarmenn hafa verið áhættusæknir í fjárfestingum sínum sem margar hafa gefist illa. Það er óvarlegt að draga þær ályktanir að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafi neikvæð áhrif á raungengið,“ segir ÞórólfurMatthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands. 6.6.2011 05:15
Fjárfesting löngum lítil í sjávarútvegi „Fjárfesting í sjávarútvegi hefur nánast ekki verið nein í tíu ár,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. 6.6.2011 05:00
Átti að sækja um 160 undanþágur „Ég er á móti því að einn fái undanþágu en ekki annar,“ segir Lúðvík Júlíusson. Hann hefur staðið í stappi við Seðlabankann um nokkurra mánaða skeið til að fá gjaldeyrishöftunum breytt. Hann vill láta gera þau mannlegri, fólk sé ekki reitir í excel-skjali. 6.6.2011 05:00
Heildarkröfur á fjórða milljarð „Nú er loks búið að koma þessari skuldastöðu hafnarinnar fyrir horn. Þetta hefur tekið langan tíma og málið farið nokkra hringi,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. 6.6.2011 04:30
Til skoðunar að skattleggja skuldaniðurfellingu hjá Landsbanka Til skoðunar er í fjármálaráðuneytinu að krefja viðskiptavini Landsbankans um endurgreiðslu á vaxtabótum vegna endurgreiðslu sem þeir fá frá bankanum. Þá verður niðurfelling skulda hugsanlega sérstaklega skattlögð sem tekjur. 5.6.2011 20:15
Með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði Íslandsbanki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði í maí, með 27% hlutdeild, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Alls nam veltan 216,4 milljörðum króna sem er rúmlega 20 milljörðum meira en meðaltal þessa árs. 5.6.2011 11:08
Fjórar hópuppsagnir í maí kosta 81 vinnuna Vinnumálastofnun bárust 4 tilkynningar um hópuppsagnir í maí síðastliðnum. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í mannvirkjagerð, hugbúnaðargerð, upplýsingastarfsemi og sjávarútvegi. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 81 manns. 5.6.2011 09:27
Velta með gjaldeyri minnkar milli mánaða Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í maímánuði 2011 nam 5.343 milljónum kr. sem er 207 milljónum kr. minni velta en í apríl 2011. 5.6.2011 07:30
Veltan eykst og meðalverð hækkar á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 87. Þetta er nær sami fjöldi og nemur meðaltalinu á viku undanfarnar 12 vikur sem er 88 samningar. Hinsvegar hefur heildarveltan aukist og meðalupphæð á samning hefur hækkað. 5.6.2011 07:26
MP Banki hefur áhuga á að kaupa BYR MP banki hefur sett sig í samband við slitastjórn Byrs með það fyrir augum að kaupa sparisjóðinn. Forstjóri Byrs segir að fleiri sýni sparisjóðnum áhuga. 4.6.2011 19:30
Segja kjarasamning til þriggja ára í uppnámi Aðilar vinnumarkaðarins saka forystumenn ríkisstjórnarinnar um að ganga á bak orða sinna og segja kjarasamninga til þriggja ára í uppnámi. 4.6.2011 19:00
Icesave stöðvaði sölu á Íslandsbanka Áhugi á Íslandsbanka, sem er til sölu hjá skilanefnd Glitnis, slokknaði þegar niðurstaðan í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunni lá fyrir segir formaður skilanefndar Glitnis. 4.6.2011 18:31
Íslendingur semur við Rússa fyrir hönd WTO Íslendingur leiðir viðræður Alþjóðviðskiptastofnunarinnar við Rússa en leiðtogar G8 ríkjanna telja afar mikilvægt að Rússar gangi til liðs við stofnunina sem leggur grunninn að viðskiptum heimsins. 4.6.2011 13:00
Hugsanlega hægt að hraða afnámi hafta Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að fimmta endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun íslands feli í sér traustyfirlýsingu á efnahagsstjórnina. Hann útilokar ekki að hægt verði að hraða afnámi gjaldeyrishafta. 4.6.2011 12:06
AGS lýsa yfir áhyggjum af atvinnuleysi og hægri endurskipulagningu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir það áhyggjuefni að íslenskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að minnka atvinnuleysi og hraða endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja. 4.6.2011 10:13