Fleiri fréttir

Stofnuðu félag til þess að fjárfesta í kvikmyndagerð

Framkvæmdarstjóri í Seðlabankanum stofnaði félag ásamt Steingrími Wernerssyni sem hefur það að markmiði að fjárfesta í kvikmyndagerð. Félagarnir hafa sett milljónir í framleiðslu á heimildamynd sem ber heitið, Feigðarflan.

Meðallaun starfsmanna Glitnis tæpar fimmtán milljónir

Meðallaunagreiðslur til hvers starfsmanns Glitnis eru um 14,6 milljónir samkvæmt uppgjöri bankans fyrstu ellefu mánuðina árið 2009 sem hefur verið birt kröfuhöfum. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins.

Íslenskt hugvit í norskum rútum

Íslenska flotastýringakerfið SAGA-system hefur selt búnað sinn í tæplega eitt hundrað strætisvagna í Noregi sem eru í eigu rútufyrirtækisins Tide Buss.

Fagfjárfestar verða mótvægi

Svo kann að fara að fagfjárfestum, svo sem lífeyrissjóðum, verði boðið að kaupa stóran hlut Arion banka í Högum í lokuðu útboði fyrir skráningu félagsins á markað seinni hluta árs og þeir verði mótvægi við aðra hluthafa félagsins sem fá að kaupa í opnu útboði. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segir þetta á meðal þeirra hugmynda sem unnið sé með í samráði við erlendan ráðgjafa í útfærslu á útboðsferlinu.

Gengi bréfa Century Aluminum féll um 7,77 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 7,77 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa Marels féll um 3,79 prósent og Össurar um 3,05 prósent á sama tíma.

Segir umhverfisráðherra standa gegn endurreisninni

Viðskiptaráð Íslands gagnrýnir harðlega ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra varðandi Þjórsárvirkjanirþ Telur ráðið að umhverfisráðherra sé með þessu að standa með beinum hætti gegn endurreisn hagkerfisins.

Nordea ráðleggur fjárfestum að selja Össurhluti

Greining Nordea bankans hefur breytt meðmælum sínum um Össur hf. úr „halda" og yfir í „selja". Þetta kemur í kjölfar mikilla hækkana á hlutum í Össurri í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Þær hækkanir má svo aftur rekja til góðs uppgjörs félagsins fyrir síðasta ár.

Þrjá mánuði að skrá Haga í Kauphöll

Það tekur að lágmarki þrjá mánuði að skrá Haga í Kauphöllina eftir að slík beiðni er lögð þar inn, að sögn forstjóra Kauphallarinnar. Óvíst er hvað Arion banki þarf að afskrifa mikið vegna 1998 ehf., fyrrum eiganda Haga, en það gætu orðið fjörutíu milljarðar króna.

Raungengi krónunnar hækkaði

Raungengi íslensku krónunnar nú í janúar hækkaði þriðja mánuðinn í röð frá fyrri mánuði, og nam hækkunin um 0,7% á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin skrifast einkum á styrkingu krónu milli mánaða enda lækkaði vísitala neysluverðs um 0,3% hér á landi í janúar.

Útflutningur á óunnum ísfiski hefur minnkað töluvert

Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu hefur útflutningur á óunnum ísfiski bæði minnkað að magni til og einnig sem hlutfall af heildarafla. Samanburðurinn tekur til tímabilanna september 2009 til janúar 2010 og september 2008 til janúar 2009. Verulegur breytileiki er þó eftir tegundum.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tapaði milljón á Spron

Ingibjörg Sólrún á stofnbréf að nafnvirði 255 þúsund krónur í Spron. Eftir því sem Vísir kemst næst var algengt að bréfin væru seld á genginu 4-7 í svokölluðum glugga þegar bréfin voru sett á markað árið 2007. Því má segja að Ingibjörg hafi tapað milljón á bréfunum.

Reikna með umtalsverðum afgangi á vöruskiptum í ár

Reikna má með því að afgangur verði umtalsverður af vöruskiptum við útlönd í ár. Innflutningur mun verða með minnsta móti fram eftir ári vegna áframhaldandi samdráttar í einkaneyslu og fjárfestingu, a.m.k. ef miðað er við síðasta ár.

Norðmenn skoða skipti á Icesave skuld fyrir norskt lán

Sigbjørn Johnsen fjármálaráðherra Noregs er ekki fráhverfur þeirri hugmynd að Norðmenn borgi út Icesave skuld Íslendinga og láni síðan upphæðina til Íslands á mun lægri vöxtum en í boði eru á Icesave skuldinni.

Bankarnir eignast rúmlega 95% í Atorku

Nýi Landsbankinn (NBI), Íslandsbanki, Arion Banki og Glitnir hafa eignast 95,5% í Atorku. Þetta er niðurstaðan eftir hluthafafund í félaginu í gærdag.

Býst við fleiri fyrirtækjum

„Það er fagnaðarefni að þessi ákvörðun hafi verið tekin. Þetta getur orðið mjög mikilvægt skref að endurvekja hlutabréfamarkað hér,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar um fyrirætlanir þess efnis að skrá Haga í Kauphöllina.

Marel tapaði 11,8 milljónum evra - skuldir lækkuðu

Tekjur af kjarnastarfsemi Marels árið 2009 námu 434,8 milljónum evra og jukust jafnt og þétt á árinu. Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu. Heildartekjur ársins 2009 námu 531,7 milljónum evra, samanborið við 540,1 milljón evra árið 2008. Tap eftir skatta var 11,8 milljónir evra samanborið við 8,4 milljóna evra árið áður. Skuldir hafa hinsvegar lækkað á sama tíma.

Marel selur hluta af Stork Food Systems

Marel hefur komist að samkomulagi við hollenska fjárfestingafélagið Nimbus um sölu á Food & Dairy Systems deild Stork Food Systems, að undanskilinni starfsemi hennar á Spáni.

Glitnir gæti tapað sex milljörðum á Skeljungi

Útlit er fyrir er að Glitnir tapi á endanum rúmlega sex milljörðum þar sem bankinn ábyrgðist sölu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, á hlutabréfum í Skeljungi níu mánuðum fyrir bankahrunið.

Fyrri eigendur í ábyrgðum vegna lána til 1998

Gaumur, félag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, ISP, sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, og Bague, sem er í eigu Hreins Loftssonar, eru í ábyrgð vegna lána til félagsins 1998 en óvíst er hvort gengið verður að þeim. Jón Ásgeir og fjölskylda hafa misst eignarhald sitt á Högum, móðurfélagi Bónuss, Hagkaupa og fleiri verslana, en Arion banki hefur ákveðið að skrá félagið í Kauphöll.

Baugsfeðgar missa Haga

Stjórn Arion banka hefur ákveðið að óska eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í Kauphöllina í samvinnu við Haga og selja hlut bankans í félaginu.

Frestun S&P kann að hafa lækkað skuldatryggingaálagið

Greining Íslandsbanka segir að svo kunni að vera að jákvæð tíðindi á borð við framlengingu frests Standard&Poor´s (S&P) á því að taka ákvörðun um lánshæfiseinkunn Íslands og aukinn stuðning við málstað landsins í Icesave á erlendri grundu hafi einhver áhrif á lækkandi skuldatryggingaálags ríkissjóðs.

Lögregla rannsakar á ný sölu SPRON-bréfa

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur nú fjögur mál til rannsóknar tengd sölu stjórnarmanna og tengdra aðila á stofnfjárbréfum í SPRON sumarið 2007 vegna gruns um innherjaviðskipti, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Valitor sendir ný kort til 1.200 korthafa

Greiðslukortafyrirtækið Valitor hefur sent ný kort til tólf hundruð korthafa fyrirtækisins til að koma í veg fyrir að eldri kortin þeirra verði misnotuð.

Seðlabankastjóri Hollands sakar íslensk stjórnvöld um lygar

Nout Wellink aðalbankastjóri Seðlabanka Hollands segir að íslensk stjórnvöld hafi logið að hollenskum stjórnvöldum um fjárhagsstöðu íslensku bankanna árið 2008. Þetta kom fram í máli Wellink þegar hann kom fyrir hollensku þingnefndina sem rannsakar fjármálakreppuna í morgun.

Nýskráningum bifreiða heldur áfram að fækka

Í janúar síðastliðnum voru nýskráðir 133 bílar hér á landi sem er fækkun upp á 43% frá sama mánuði 2009. Þannig voru nýskráðir 235 bílar í janúar fyrir ári en þess má geta að þá hafði þeim fækkað um 89% frá sama tíma 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Umferðastofan hefur birt um nýskráningar bifreiða.

Segir lánamálum Saxbygg snúið á haus

Framkvæmdarstjóri Saxbygg, Björn Ingi Sveinsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins um dómsmál sem skiptastjóri félagsins hefur höfðað vegna viðskipta félagsins við félög því tengdu.

Þrír erlendir aðilar fá að bjóða áfram í Sjóvá

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist 12 óskuldbindandi tilboð í hlutafé Sjóvár Almennra trygginga hf. Í flestum tilvikum er boðið í allt hlutafé félagsins. Þar af voru þrír erlendir aðilar og fá Þeir allir að taka þátt í áframhaldandi söluferli.

Yfir 10 milljarðar lagðir inn eftir slökun gjaldeyrishafta

Á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því að fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishaftanna var stigið hafa tæplega 5 milljarðar kr. verðir lagðir hér inn á bankareikninga og tæplega 4,5 milljarðar kr. verið varið til að fjárfesta í atvinnurekstri. Rúmir 0,9 milljarðar kr. hafa farið í hlutabréfakaup og rúmir 0,2 milljarðar kr. í fasteignakaup. Samtals hafa því borist tæpir 10,6 milljarðar kr. í formi nýfjárfestinga á þessu tímabili.

Össur hagnaðist um 30 milljónir á sölunni

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa selt bréf í SPRON fyrir 62 milljónir árið 2007. Hann hafi hagnast um 30 milljónir króna á sölunni og hafi greitt af því fjármagnstekjuskatt fyrir það ár.

Kauphöllin tekur upp tífalt hraðara viðskiptakerfi

Kauphöllin mun á mánudaginn innleiða nýtt viðskiptakerfi, INET, sem hefur verið notað á NASDAQ markaðnum síðan 2007. INET er tílfalt hraðara en núverandi viðskiptakerfi (SAXESS) og annar miklu meira magni af viðskiptum.

Íslandssjóðir með bestu ávöxtun í ríkisskuldabréfum

Ríkisverðbréfasjóðir Íslandssjóða, Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, hafa skilað bestu ávöxtun sambærilegra sjóða yfir nánast öll samanburðartímabil miðað við gengi 30. desember 2009. Þetta kemur fram í óháðum samanburði allra verðbréfasjóða á vefsíðunni www.sjodir.is.

Danskir fjárfestar ánægðir með uppgjör Össurar

Danir hafa tekið ársuppgjöri Össurrar hf. vel í morgun en hlutir í Össurri hafa hækkað um rétt tæp 10% frá opnun kauphallarinnar. Hlutirnir stóðu í 6,50 dönskum kr. en eru í augnablikinu skráðir á 7.20 dönskum kr.

Hlutabréf í Toyota hrynja í verði

Hlutabréf í Toyota hafa fallið gríðarlega á hlutabréfamarkaðnum í Tokyo og hafa ekki verið lægri í tíu mánuði. Ástæðan er rakin til mikilla umræðna um öryggi Toyota bifreiðanna.

Sjá næstu 50 fréttir