Reikna með umtalsverðum afgangi á vöruskiptum í ár 5. febrúar 2010 10:59
Reikna má með því að afgangur verði umtalsverður af vöruskiptum við útlönd í ár. Innflutningur mun verða með minnsta móti fram eftir ári vegna áframhaldandi samdráttar í einkaneyslu og fjárfestingu, a.m.k. ef miðað er við síðasta ár.Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallar er um nýjar tölur Hagstofunnar um 10 milljarða afgang af vöruskiptunum í janúar.Í Morgunkorninu segir að viðskiptakjör hafa batnað töluvert frá fyrri hluta síðasta árs vegna mikillar verðhækkunar á áli og nokkurrar hækkunar á verði sjávarafurða. Þá mun þjónustugeirinn væntanlega njóta áfram ávaxtanna af lágu raungengi krónu. Í því ljósi virðist spá Seðlabankans um 9,6% afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum í hlutfalli við landsframleiðslu á þessu ári nokkuð líkleg til að ganga eftir og að vöru- og þjónustujöfnuðurinn verði þannig aðeins hagstæðari en á síðasta ári en greiningin áætlar að hann hafi þá verið á bilinu 8-9%.Afgangur hefur verið á vöruskiptum við útlönd allt frá því í ágúst 2008. Afgangurinn nú í janúar er samt aðeins meiri en hann hefur verið að meðaltali á þessum tíma. Hann var einnig meiri núna í janúar en hann hefur verið að meðaltali á mánuði núna síðasta hálfa árið.Vöruskiptajöfnuðurinn er samt afar sveiflukenndur á milli mánaða og réttara að lesa í þróun til lengri tíma. Þegar litið er á 6 mánaða meðaltal vöruskiptajafnaðarins sést að hann hefur verið nokkuð stöðugur undanfarna mánuði.Rifja má upp að í fyrra var metafgangur af vöruskiptum við útlönd. Var þá að meðaltali 7,3 milljarðar kr. afgangur í mánuði hverjum eða 87,2 milljarða kr. yfir árið allt. Til samanburðar má nefna að 92,1 milljarða kr. halli var á vöruskiptum við útlönd árið 2007. Breytingin skýrist af því að árið 2007 var mikil þensla í íslensku efnahagslífi og krónan sterk en nú er umtalsverður samdráttur og krónan veik, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira