Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Starri Freyr Jónsson skrifar 30. október 2026 12:09 Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í Hörpu á miðvikudaginn. Athöfnin var afar vel sótt og var henni streymt í beinni útsendingu á Vísi. Myndir/Anton Brink. Það var hátíðleg stemning og mikil gleði í Hörpu á miðvikudaginn þegar Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir góðan og traustan rekstur, sautjánda árið í röð.
Athöfnin var afar vel sótt og var henni streymt í beinni útsendingu á Vísi. Tæplega 1.220 fyrirtæki komust á listann í ár, samanborið við 1.155 á síðasta ári. Vottunin er verðmæt viðurkenning fyrir fyrirtæki sem skara fram úr í íslensku atvinnulífi og getur bæði styrkt stöðu þeirra á markaði og aukið traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, setti viðburðinn og óskaði fulltrúum fyrirtækjanna til hamingju með viðurkenninguna og góðan rekstrarárangur á árinu 2025. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á mikilvægi öflugs atvinnulífs fyrir samfélagið og sagði viðurkenninguna bæði staðfestingu á góðum árangri og hvatningu til frekari uppbyggingar. Hún undirstrikaði að kröfur Creditinfo væru strangar og aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja kæmust á listann. Sérstaklega vakti hún athygli á þeim 46 fyrirtækjum sem hefðu verið á listanum í 17 ár samfleytt. Fyrirtæki sem standa á traustum fótum, þau skapa svo mikið. Þau skapa okkur verðmæti, stöðugleika, fullt af tækifærum og þessi tækifæri eru fyrir svo marga. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var heiðursgestur dagsins. Næstur steig á svið heiðursgestur dagsins, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Í ræðu sinni lagði Bjarni áherslu á að framúrskarandi rekstur byggðist á aga, stöðugleika og góðum ákvörðunum til lengri tíma. Hann undirstrikaði mikilvægi öflugs atvinnulífs fyrir lífskjör þjóðarinnar og hvatti stjórnvöld til að sýna aðhald í opinberum fjármálum og forðast skattahækkanir. Þá minnti hann á að viðurkenningarnar væru ekki síður vitnisburður um framlag starfsfólks fyrirtækjanna. Þetta kann að hljóma mjög hversdagslega en það er einmitt þannig sem að framúrskarandi fyrirtæki verða til, með því að gera margt vel aftur og aftur yfir langan tíma. Erla Ósk Ásgeirsdóttir er formaður stjórnar Festu – miðstöðvar um sjálfbærni. Að lokum afhenti Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Í ár fékk Nói Síríus verðlaunin. Í ræðu sinni lagði Erla Ósk áherslu á mikilvægi inngildingar á vinnumarkaði og hrósaði Nóa Síríusi fyrir að skapa varanleg störf fyrir fólk með frábrugðna starfsorku. Með aðlögun vinnustaðarins og markvissum stuðningi hefði fyrirtækið aukið starfsánægju, eflt samskipti og sýnt hvernig fjölbreytileiki getur orðið styrkleiki í vinnustaðamenningu. Nói Síríus hlaut sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Frá vinstri eru Hrefna Ösp, Harpa Þorláksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Nóa Sírísus, Halla Björk Vigfúsdóttir inngildingarstjóri Nóa Sírísus, Rakel Reynisdóttir mannauðssérfræðingur hjá Nóa Síríus og Erla Ósk. Inngilding snýst ekki aðeins um að skapa fólki tækifæri. Hún snýst um að sjá tækifærin sem felast í fólkinu. Sýnt var stutt myndband um starfsemi Nóa Síríusar. Í því kom m.a. fram að fyrirtækið hefði í yfir 40 ár haft fólk með frábrugðna starfsgetu í vinnu. Með samstarfi við Vinnumálastofnun og ráðningu inngildandi verkstjóra hefði fyrirtækið stigið skrefinu lengra, aðlagað verkferla og skapað raunveruleg störf. Þá væri fjölbreytileiki starfsfólks, sem kemur frá 14 þjóðlöndum, mikilvægur þáttur í fyrirtækjamenningunni. Viðburðinum var streymt í beinni útsendingu á Vísi og má horfa á upptökuna í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 Mikil gleði og góð stemning ríkti í Hörpu þar sem fjöldi gesta kom saman til að fagna árangri framúrskarandi fyrirtækja. Veðrið lék við gesti sem nutu hátíðarinnar í Hörpu. Hér fyrir neðan má sjá myndir sem Anton Brink, ljósmyndari Vísis, tók við þetta tilefni.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira