Glitnir gæti tapað sex milljörðum á Skeljungi Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. febrúar 2010 18:42
Útlit er fyrir er að Glitnir tapi á endanum rúmlega sex milljörðum þar sem bankinn ábyrgðist sölu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, á hlutabréfum í Skeljungi níu mánuðum fyrir bankahrunið. Fons, félag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, keypti rúmlega 6 prósenta hlut í FL Group í desember 2007 á tíu milljarða króna og fékk allt kaupverðið að láni hjá Glitni gegn veði í bréfunum sjálfum. Pálmi hefur nú upplýst að hann hafi keypt þessi hlutabréf því að í staðinn hafi hann fengið 8,7 milljarða króna sölutryggingu hjá Glitni banka fyrir hlut sinn í Skeljungi. Þetta þýddi að bankinn ábyrgðist að hlutur Pálma í Skeljungi yrði aldrei seldur fyrir minna en 8,7 milljarða. Í desember 2007 voru vaxtaberandi skuldir Skeljungs um átta milljarðar króna, en tíu milljarðar samkvæmt ársreikningi og eigið fé aðeins 2,2 milljarðar. Aðeins hálfu ári síðar var helmingur þess hlutafjár í Skeljungi sem Glitnir sölutryggði seldur á einn og hálfan milljarð króna. Pálmi segist hafa setið uppi með svarta pétur vegna þessara viðskipta því bréfin í FL Group reyndust verðlítil. Þá var andvirði sölutryggingarinnar notað til að greiða niður lánið sem hann fékk hjá Glitni, en enn eru útistandandi rúmlega þrír milljarðar króna sem er hluti af 23 milljarða samtölu krafna Glitnis á Fons. Nú stendur yfir söluferli á þeim 49 prósentum í Skeljungi sem enn eru í eigu Íslandsbanka. Óvíst er hvað bankinn fær fyrir hlutinn, en ef kaupverðið verður hálfur milljarðar króna sem er ekki óvarlega áætlað, þá verður tap bankans vegna sölutryggingarinnar á Skeljungi rúmlega sex milljarðar króna.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira