Fleiri fréttir

Höfuðstólslækkun á eignaleigusamningum fyrirtækja

Frá og með 27. janúar geta fyrirtæki og einstaklingar í rekstri sem eru í viðskiptum við Íslandsbanka Fjármögnun fengið lækkun á höfuðstól eignaleigusamninga í erlendri mynt. Lækkunin getur numið allt að 25% og er breytileg eftir samsetningu mynta í hverjum samningi.

Landsbankinn: Úrskurðurinn eyðir óvissu

„Úrskurðurinn í ofangreindu máli hefur að öllu óbreyttu í för með sér að eytt verður óvissu um samkeppnisréttarlegt rekstrarumhverfi þeirra atvinnufyrirtækja sem bankinn fer með yfirráð yfir."

Aflaverðmætið komið í 95 milljarða á síðasta ári

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 95 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2009, samanborið við tæpa 80 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 19,2% á milli ára. Aflaverðmæti í októbermánuði nam 9,7 milljörðum króna miðað við 9,4 milljarða í október 2008.

Endurgerð kvikmyndar eftir Mýrinni komin í biðstöðu

Endurgerð kvikmyndar eftir Mýrinni í Bandaríkjunum er komin í biðstöðu og óljóst hvort af henni verði. Þetta er sökum fjárhagsvandræða kvikmyndaframleiðendans Overture sem er eitt af dótturfélögum Liberty Media.

Landic Property heitir Reitir

Skipt hefur verið um nafn á fasteignafélaginu Landic Property Ísland. Það heitir nú Reitir fasteignafélag.

Hægt að lækka höfuðstólinn

Fyrirtæki og einstaklingar í rekstri, sem eru í viðskiptum við Íslandsbanka Fjármögnun, geta fengið lækkun á höfuðstól eignaleigusamninga í erlendri mynt hjá bankanum, frá og með 27. janúar. Lækkunin getur numið allt að 25 prósentum.

Mikilvægt að bjarga Icelandic Group

Nýi Landsbankinn (NBI) hefur síðustu mánuði unnið að yfirtöku á öllu hlutafé Icelandic Group (áður Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna) og færir það inn í eignarhaldsfélagð Vestia á næstu dögum. Það verður selt í opnu söluferli eftir óákveðinn tíma.

Úrskurðarnefnd telur hættu á að bankar raski samkeppni

Séu ekki settar skorður við langvarandi eignarhaldi lánardrottna á borð við banka á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði skapast ýmis konar hætta á röskun á samkeppni. Þetta er mat úrskurðarnefndar um samkeppnismál.

Tchenguiz bræður þöglir um kröfuna í Kaupþing

Bræðurnir Vincent og Robert Tchenguiz munu líklegast sækja rétt sinn gegn slitastjórn Kaupþings fyrir rétti ef krafa þeirra í þrotabú Kaupþings verður ekki samþykkt. Þetta er fullyrt í breska blaðinu Sunday Telegraph.

Framleiðsluverðmæti Fjarðaáls 100 milljarðar á ári

Framleiðsluverðmæti Fjarðaáls austur á fjörðum nemur nú hátt í 100 milljörðum kr. á ári. Í fyrra framleiddi álverið rétt tæp 350.000 tonn af áli. Miðað við núverandi álverð á málmmarkaðinum í London er verðmæti þeirrar framleiðslu vel yfir 100 milljörðum.

Tchenguiz bræður vilja fjögur hundruð milljarða frá Kaupþingi

Bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz, sem voru meðal stærstu viðskiptavina Kaupþings, gera yfir fjögur hundruð milljarða króna skaðabótakröfur í þrotabú bankans. Kröfurnar koma frá tveimur vogunarsjóðum á Guernsey og Tortóla. Tchenguiz bræður fengu á sínum tíma hátt í þrjú hundruð milljarða að láni hjá bankanum.

FME: Landskilum leyft að fara með virkan eignarhlut í NBI

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Landskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í NBI hf. fyrir hönd Landsbanka Íslands hf. Leyfið er veitt í kjölfar samnings Landsbanka Íslands hf. og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 15. desember síðastliðinn, m.a. þess efnis að Landsbanki Íslands hf. gæti eignast 18,7% hlut í NBI hf. að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Tchenquiz bræður með 440 milljarða kröfu í Kaupþing

Á kröfulista Kaupþings kemur fram að sjóðurinn Investec Trust Limited á Guernsey gerir 127 milljarða króna skaðabótakröfu í þrotabúið og sjóður að nafni Euro Investments Overseas á Tortóla gerir skaðabótakröfu upp á 317 milljarða króna. Heimildir fréttastofu herma að sjóðirnir séu í eigu bræðranna Robert og Vincent Tchenguiz. Samtals nema kröfur þeirra yfir 440 milljörðum króna.

Hluthafafundur Atorku samþykkti yfirtöku kröfuhafa

Hluthafafundur Atorku Group hf. sem haldinn var á Grand Hótel, Reykjavík í dag samþykkti tillögu stjórnar félagsins um að hlutafé í félaginu, að nafnvirði 3.373.650.000 kr., yrði fært niður að fullu, samhliða því að hlutafé í félaginu yrði hækkað að nýju um sömu nafnverðsfjárhæð, með því að kröfuhafar félagsins skráðu sig fyrir því hlutafé.

Landsbankinn tapaði 6,9 milljörðum

Afkoma Landsbankans eftir skatta var neikvæð um 6,9 milljarða króna frá því bankinn var tekinn yfir af ríkinu eftir hrun haustið 2008 til áramóta sama ár. Þetta skýrist fyrst og fremst af tapi af markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008 en það nam 38,2 milljörðum króna, að fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Nýr framkvæmdarstjóri ráðinn til Yggdrasil

Nýr framkvæmdarstjóri, Björn Kristján Arnarson, hefur verið ráðinn hjá Yggdrasil. Yggdrasill er heildverslun sem selur lífrænt ræktaðar matvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur. Stjórn fyrirtækisins helst óbreytt en í henni sitja Björn Jóhannesson og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir.

Kaupmáttarskerðingin á sér fá fordæmi hérlendis

Sú kaupmáttarskerðing sem íslenskir launþegar hafa orðið fyrir undanfarin misseri á sér fá fordæmi hér á landi og þarf að fara aftur til byrjun tíunda áratugar síðustu aldar til þess að finna álíka þróun.

Allt hlutafé Bílaleigu Flugleiða er til sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið falið að annast sölu á öllu hlutafé í Bílaleigu Flugleiða ehf. Bílaleiga Flugleiða er eina félagið á Íslandi sem hefur einkarétt á að nota og markaðssetja vörumerkið Hertz samkvæmt samningi við Hertz International.

Aðeins þrjú gjaldeyrisviðskipti á millibankamarkaðinum

Mikill Fróðafriður hefur ríkt á millibankamarkaði með gjaldeyri það sem af er ári. Aðeins hafa þrisvar sinnum átt sér stað viðskipti á markaðinum frá áramótum, og nemur heildarvelta 3 milljónir evra, jafnvirði 540 milljónum kr., það sem af er ári.

FME gerir 125 milljóna forgangskröfu í Kaupþing

Fjármálaeftirlitið (FME) lýsti forgangskröfu í þrotabúið upp á 135 milljónir króna vegna kostnaðar við störf skilanefndarinnar frá haustinu 2008 fram til apríl 2009. Slitastjórn bankans hefur ekki tekið afstöðu til kröfunnar.

Óþekktur starfsmaður með hæstu launakröfuna

Hæsta launakrafan í þrotabú Kaupþings nemur rúmum sjö hundruð og sextíu milljónum en hún kemur frá manni sem var ráðinn til að sjá um starfsemi Kaupþings í Japan, sem aldrei varð af.

Þrotabú Baugs vill 30 milljarða í skaðabætur

Þrotabú Baugs gerir fimm kröfur í þrotabú Kaupþings banka. Krafa Baugs hljómar upp á 30,5 milljarða og er farið fram á upphæðina í skaðabætur, að því er fram kemur í kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið á netinu. Kröfur í búið voru rúmlega 28 þúsund talsins og leggja sig samtals á rúmlega 7300 milljarða króna.

Kjalar með kröfu upp á 146 milljarða

Kjalar, fjárfestingafélag í eigu Ólafs Ólafssonar, sem var einn stærsti eigandi Kaupþings banka, gerir kröfu í þrotabúið samkvæmt kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið. Krafan eru upp á 146 milljarða íslenskra króna vegna gjaldmiðlaskiptasamninga.

Deutsche Bank gerir nær 900 milljarða kröfur

Deutsche Bank er stærsti erlendi kröfuhafinn í þrotabú Kaupþing en kröfur hans nema nær 900 milljörðum kr. Eru þær því hátt í 15% af brúttókröfum í þrotabúið.

Sigurður vill 244 milljónir frá Kaupþingi

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, gerir launakröfu upp á 244 milljónir króna í þrotabú fallna bankans. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri, virðist ekki gera launakröfu í þrotabúið.

Seðlabankinn með 356 milljarða kröfu í Kaupþing

Seðlabanki Íslands er með stærstu innlendu kröfuhöfunum í þrotabú Kaupþings en samtals nema kröfur hans rúmlega 356 milljörðum kr. Þar af er ein einstök krafa upp á 101 milljarða kr. vegna lánasamnings.

Viðskiptaráð vill greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda

Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda verði sem fyrst komið á fyrir árið 2010.

Launavísitalan hækkaði um 3,6% í fyrra

Launavísitala í desember 2009 er 366,5 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 3,6%.

Kröfur í Kaupþing nema yfir 7.300 milljörðum

Heildarfjárhæð lýstra krafna í Kaupþing nam 7.316 milljörðum króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands þann 22. apríl 2009. Heildarfjárhæð lýstra krafna er hærri en skuldir samkvæmt efnahagsreikningi miðað við 30. júní sl.

Sendi sérstökum saksóknara bréf um alvarleg veikindi Steingríms

Steingrímur Wernersson sem átti fjárfestingarfélagið Milestone með Karli bróður sínum hefur undanfarin tvö ár glímt við alvarleg veikindi og ekki sinnt fjárhagslegum málefnum sínum, að því er fram kemur í bréfi lögmanns hans til embættis sérstaks saksóknara.

Völd Icesave-arkitektsins aukast enn

Landsbankinn er að eignast bæði Atorku og Icelandic Group og munu fyrirtækin renna inn í Vestia, dótturfélag Landsbankans. Gert er ráð fyrir að Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, verði stjórnarformaður beggja fyrirtækja.

Sjá næstu 50 fréttir