Samkeppniseftirlitið hefur auknar heimildir til íhlutunar 25. janúar 2010 11:46
Samkeppniseftirlitið segir að nýlegur úrskurður áfrýjunarnefndar veiti eftirlitinu auknar heimildir til að fylgja eftir nýútgefnu umræðuskjali um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.Í tilkynningu segir að Samkeppniseftirlitið hefur heimildir til að setja skilyrði um að fyrirtæki sem yfirtekin eru af bönkum sem tryggja sjálfstæði þeirra og skilyrði um sölu þeirra innan eðlilegs tíma, enda þótt yfirtakan feli ekki í sér skörun á mörkuðum eða markaðsráðandi stöðu. Óvenjulegar aðstæður sem nú ríkja í atvinnulífinu kalla á þessar heimildir að mati áfrýjunarnefndar.Úrskurðurinn veitir Samkeppniseftirlitinu auknar heimildir til að fylgja eftir nýútgefnu umræðuskjali um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.Að öðru leyti hljóðar tilkynningin svo: „Í október sl. tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun vegna samruna Vestia hf. (dótturfélags NBI banka, þ.e. Landsbankans) og Teymis hf. (móðurfélags t.d. Vodafone). Var ekki talin heimild samkvæmt samkeppnislögum til þess að grípa til íhlutunar í samrunann þar sem engin samkeppnisleg skörun væri á milli þessara fyrirtækja. Þá var ekki í málinu gerð athugasemd við fjárhagslega endur-skipulagningu Teymis. Samrunaákvæði samkeppnislaga heimila Samkeppnis-eftirlitinu að ógilda eða setja samruna skilyrði þegar sannað er að hann raski samkeppni.Síminn hf. kærði fyrrgreinda ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Hélt Síminn því fram að þar sem Teymi væri komið í eigu dótturfélags NBI hf. og skuldir fyrirtækisins hefðu verið afskrifaðar leiddi það til þess að Teymi og dótturfélög væru kominn í markaðsráðandi stöðu á fjarskiptamörkuðum og mörkuðum fyrir upplýsingatækni. Af því leiddi að samruninn raskaði samkeppni með umtalsverðum hætti. Krafðist Síminn þess að umræddur samruni yrði ógiltur eða honum sett skilyrði.Í úrskurði áfrýjunarnefndar sem birtur var 22. janúar sl. var staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væri lagagrundvöllur til þess að ógilda samrunann. Þá taldi áfrýjunarnefndin að „samkeppnisreglur megi ekki takmarka möguleika fyrirtækja á fjárhagslegri endurskipulagningu með samningum við kröfuhafa, þegar skuldir eru að sliga rekstur með þeim hætti að hann færi á annað borð í þrot." Var ekki fallist á það að samruninn leiddi til markaðsráðandi stöðu Teymis.Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hins vegar að samkeppnisleg vandamál geti leitt af langvarandi eignarhaldi banka á atvinnufyrirtækjum. Hinar óvenjulegu aðstæður sem nú ríki veiti heimild samkvæmt samkeppnislögum til setja yfirtöku banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri skilyrði til þess að hin yfirteknu fyrirtæki starfi eins sjálfstætt og unnt er frá bönkunum. Bankarnir muni síðan selja fyrirtækin innan eðlilegs tíma.Á þessum grunni var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins felld úr gildi. Af þessum úrskurði leiðir að Samkeppniseftirlitið mun taka samruna Vestia hf. og Teymis fyrir að nýju.Þann 8. desember 2009 birti Samkeppniseftirlitið umræðuskjal um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Í því er fjallað um samkeppnisleg álitaefni sem tengjast m.a. eignarhaldi banka á fyrirtækjum sem lent hafa í skuldavanda. Umræddur úrskurður áfrýjunarnefndar er mikilvægur í þessu samhengi.Túlkun nefndarinnar felur í sér að heimildir samkvæmt samkeppnislögum til að grípa inn í samruna með bindandi hætti séu rýmri en Samkeppniseftirlitið hafði áður talið. Eftirlitið hafi þannig aukna möguleika til að taka á þeim samkeppnislegu vandamálum sem tengjast eignarhaldi bankanna sem lýst er í umræðuskjalinu frá 8. desember sl."
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira