Kröfur í Kaupþing nema yfir 7.300 milljörðum 22. janúar 2010 07:38
Heildarfjárhæð lýstra krafna í Kaupþing nam 7.316 milljörðum króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands þann 22. apríl 2009. Heildarfjárhæð lýstra krafna er hærri en skuldir samkvæmt efnahagsreikningi miðað við 30. júní sl. Þetta kemur fram í yfirliti frá slitastjórn Kaupþings banka hf. sem hefur birt kröfuskrá á vefsvæði fyrir kröfuhafa. Alls var 28.167 kröfum lýst í Kaupþing innan kröfulýsingarfrests sem lauk 30. desember sl. Lýstar kröfur í bankann bárust frá 119 löndum, þar af var ríflega helmingur vaxtakröfur frá Þýskalandi. Meðal stærstu kröfuhafa eru innlendir aðilar, innlendar og erlendar bankastofnanir, auk ýmissa erlendra fjárfestingarsjóða, framtakssjóða, verðbréfasjóða og vogunarsjóða. Skýringar á að heildarfjárhæð lýstra krafna er hærri en skuldir má rekja til oflýstra krafna vegna innstæðna sem Kaupþing hefur þegar greitt, tví- og þrílýsinga vegna ýmissa innstæðna og skuldabréfaútgáfu bankans og krafna sem falla utan efnahaggsreiknings, s.s. skaðabótakrafna og ábyrgðarkrafna. Auk þess væri ítrustu kröfum jafnan lýst. Samanlögð fjárhæð vegna framangreindra atriða næmi a.m.k. 2.900 milljörðum króna. Slitastjórn hefur tekið afstöðu til rúmlega 16.000 krafna eða u.þ.b. 57% af heildarfjölda lýstra krafna. Langflestar þeirra eru vaxtakröfur frá Þýskalandi, enda bárust þær jafnt og þétt á kröfulýsingartímanum. Hins vegar bárust kröfur á banka og fjármálafyrirtækja flestar undir lok frestsins. Kröfuskráin er aðgengileg kröfuhöfum á lokuðu vefsvæði og á skrifstofu sltiastjórnar að Borgartúni 26. Fundur verður haldinn með kröfuhöfum föstudaginn 29. janúar á Hilton Hotel Nordica þar sem kröfuskráin og afstaða slitastjórnar til lýstra krafna, að svo miklu leyti sem hún liggur fyrir, verður til umræðu. Framhaldsfundur með kröfuhöfum verður haldinn 18. maí 2010 þar sem kynnt verður afstaða til þeirra krafna sem þá verður búið að fara yfir. Gert er ráð fyrir þriðja fundinum með kröfuhöfum vegna afstöðu til krafna í haust, að því er segir á vefsíðunni.
Tengdar fréttir Þrotabú Baugs vill 30 milljarða í skaðabætur Þrotabú Baugs gerir fimm kröfur í þrotabú Kaupþings banka. Krafa Baugs hljómar upp á 30,5 milljarða og er farið fram á upphæðina í skaðabætur, að því er fram kemur í kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið á netinu. Kröfur í búið voru rúmlega 28 þúsund talsins og leggja sig samtals á rúmlega 7300 milljarða króna. 22. janúar 2010 10:23 Deutsche Bank gerir nær 900 milljarða kröfur Deutsche Bank er stærsti erlendi kröfuhafinn í þrotabú Kaupþing en kröfur hans nema nær 900 milljörðum kr. Eru þær því hátt í 15% af brúttókröfum í þrotabúið. 22. janúar 2010 10:11 Sigurður vill 244 milljónir frá Kaupþingi Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, gerir launakröfu upp á 244 milljónir króna í þrotabú fallna bankans. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri, virðist ekki gera launakröfu í þrotabúið. 22. janúar 2010 10:08 Kjalar með kröfu upp á 146 milljarða Kjalar, fjárfestingafélag í eigu Ólafs Ólafssonar, sem var einn stærsti eigandi Kaupþings banka, gerir kröfu í þrotabúið samkvæmt kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið. Krafan eru upp á 146 milljarða íslenskra króna vegna gjaldmiðlaskiptasamninga. 22. janúar 2010 10:19 Seðlabankinn með 356 milljarða kröfu í Kaupþing Seðlabanki Íslands er með stærstu innlendu kröfuhöfunum í þrotabú Kaupþings en samtals nema kröfur hans rúmlega 356 milljörðum kr. Þar af er ein einstök krafa upp á 101 milljarða kr. vegna lánasamnings. 22. janúar 2010 09:49 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Þrotabú Baugs vill 30 milljarða í skaðabætur Þrotabú Baugs gerir fimm kröfur í þrotabú Kaupþings banka. Krafa Baugs hljómar upp á 30,5 milljarða og er farið fram á upphæðina í skaðabætur, að því er fram kemur í kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið á netinu. Kröfur í búið voru rúmlega 28 þúsund talsins og leggja sig samtals á rúmlega 7300 milljarða króna. 22. janúar 2010 10:23
Deutsche Bank gerir nær 900 milljarða kröfur Deutsche Bank er stærsti erlendi kröfuhafinn í þrotabú Kaupþing en kröfur hans nema nær 900 milljörðum kr. Eru þær því hátt í 15% af brúttókröfum í þrotabúið. 22. janúar 2010 10:11
Sigurður vill 244 milljónir frá Kaupþingi Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, gerir launakröfu upp á 244 milljónir króna í þrotabú fallna bankans. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri, virðist ekki gera launakröfu í þrotabúið. 22. janúar 2010 10:08
Kjalar með kröfu upp á 146 milljarða Kjalar, fjárfestingafélag í eigu Ólafs Ólafssonar, sem var einn stærsti eigandi Kaupþings banka, gerir kröfu í þrotabúið samkvæmt kröfulýsingaskrá sem birt hefur verið. Krafan eru upp á 146 milljarða íslenskra króna vegna gjaldmiðlaskiptasamninga. 22. janúar 2010 10:19
Seðlabankinn með 356 milljarða kröfu í Kaupþing Seðlabanki Íslands er með stærstu innlendu kröfuhöfunum í þrotabú Kaupþings en samtals nema kröfur hans rúmlega 356 milljörðum kr. Þar af er ein einstök krafa upp á 101 milljarða kr. vegna lánasamnings. 22. janúar 2010 09:49