Viðskipti innlent

Bankinn seldi eignina á 75 milljónir - nýr eigandi vill selja á 200 milljónir

Landsbankinn.
Landsbankinn.

Eigendur atvinnuhúsnæðisins á Grensásvegi 12 hafa boðið nokkrum einstaklingum húsið til sölu á 200 milljónir króna en eigendurnir keyptu húsið á 75 milljónir króna af Landsbankanum.

Landsbankinn seldi atvinnuhúsnæði á Grensásvegi á yfir fjörutíu prósenta lægra verði en húsið var keypt á fyrir þremur árum. Fermetrinn var seldur á tæpar 50 þúsund krónur. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom fram að verðið væri hrakvirði að sögn löggilts fasteignasala, en ekki óeðlilegt í því árferði sem nú ríkir á fasteignamarkaði.

Það var verkfræðingur sem keypti eignina árið 2006 á tæpar 132 milljónir króna, í þeim tilgangi að breyta húsinu í hótel.

Ári síðar missti hann atvinnuhúsnæðið vegna kreppunnar.

Að sögn Landsbankans voru eignirnar þá settar í sölu hjá tveimur fasteignasölum, Eignamiðlun seldi svo eignirnar nú í október á 75 milljónir króna. Það er órafjarri fasteignamati hússins og innan við 60% af því sem Grensásvegur 12 seldist á fyrir þremur árum.

Þrátt fyrir erfiða tíma á fasteignamarkaði þar sem verð á fasteignum eru mjög á reiki að sögn kunnugra, þá hefur eigandi hússins boðið í það minnsta tveimur stóreignamönnum húsnæðið til sölu fyrir 200 milljónir króna, eða á 125 milljónum hærra verði en bankinn seldi það á.

Það eru fasteignasölurnar Húseign og Stórborg sem sjá um miðlun viðskiptanna.

Eigandi hússins er þó ekki bjartsýnn á að fá greitt í reiðufé fyrir húsið þar sem hugsanlegum kaupendum var, samkvæmt heimildum Vísis, boðið að greiða með lóðum, fasteignum og jafnvel öðrum verðmætum fyrir húsnæðið.

Þess skal geta að þó Landsbankinn hafi selt atvinnuhúsnæðið á 75 milljónir þá þýðir það ekki að markaðsvirði þess sé mikið hærra enda erfitt að spá nokkru um raunvirði fasteigna í dag.


Tengdar fréttir

Seldi atvinnuhúsnæði langt undir fasteignavirði

Landsbankinn seldi atvinnuhúsnæði á Grensásvegi á yfir fjörutíu prósenta lægra verði en húsið var keypt á fyrir þremur árum. Fermetrinn var seldur á tæpar 50 þúsund krónur. Hrakvirði segir löggiltur fasteignasali, en ekki óeðlilegt í þessu ástandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×