Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Almar hættir hjá Sterling og Taleghani tekur við Stjórn Sterling Airlines A/S hefur ráðið Reza Taleghani í stöðu forstjóra félagsins en hann tekur við af Almari Erni Hilmarssyni sem stýrt hefur félaginu í tæp þrjú ár. Síðustu 10 ár hefur Reza starfað hjá JPMorgan í New York og London þar sem hann hefur unnið með mörgum helstu flugfélögum og félögum í flugrekstri víða um heim. 26.2.2008 15:20
Glitnir ekki á leið úr Lækjargötu Í viðtali við stjórnarformann Glitnis í Markaðnum í dag mátti skilja sem svo að loka ætti útibúi bankans í Lækjargötu. Hér gætir misskilnings. 26.2.2008 13:55
Mikill vandi hjá bönkum ef ekki tekst að afla tiltrúar erlendis Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja að mikill vandi blasi við íslensku bönkunum ef þeim tekst ekki að afla sér tiltrú erlendra markaðsaðila og ef ekkert breytist til hins betra á fjármálamörkuðum heimsins. 26.2.2008 12:22
Kauphöllin í plús í morgun Úrvalsvísitalan í kauphöllinni hefur hækkað um rúmt prósent í fyrstu viðskiptum dagsins og stendur nú í 5.099 stigum. 26.2.2008 10:26
Verne Holding kynnir netþjónabú hér á landi Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag þar sem undirritaðir verða samningar félagsins Verne Holdings við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar í tengslum við rekstur netþjónabús hér á landi. 26.2.2008 10:11
Google leggur kapal yfir Kyrrahafið Google og fimm önnur stórfyrirtæki ætla í sameiningu að leggja breiðbands-kapal á milli Bandaríkjanna og Japan. 26.2.2008 08:56
Hildur og Gunnar Þór á leið úr stjórn SPRON Hvorki Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, né Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í félaginu, bjóða sig áfram fram til stjórnarsetu í félaginu. Þetta má sjá á heimasíðu félagsins. 25.2.2008 21:44
Forstjóri Glitnis lækkar laun sín um 50% Lárus Welding, forstjóri Glitnis, hefur ákveðið að lækka laun sín um 50%. Laun Lárusar voru 5,5 milljónir á mánuði í fyrra en verða nú tæplega 2,8 milljónir króna. 25.2.2008 18:21
Illum á meðal bestu verslana í heimi Danska húsgagna- og húsbúnaðarverslunin Illum er tilnefnd til verðlauna á „Smásöluverðlaununum" sem er samkoma þar sem smásalar heimsins koma saman og verðlauna þá sem þykja hafa skarað fram úr. Illum, sem er í augu Baugs, er tilnefnd sem „Áfangastaður ársins", en þar er smalað saman þeim verslunum, borgum, eða verslunarmiðstöðvum sem eftirsóknarvert er heim að sækja. 25.2.2008 16:53
Ellefu félög hækkuðu í dag Ellefu félög hækkuðu í Kauphöll Íslands í dag. Century Aluminum Company hækkaði mest eða um 6,62% og er það eina félagið sem hefur hækkað frá áramótum, eða um 34,63%. FL Group hækkaði einnig um 1,21%. 25.2.2008 16:37
Baugur gerir óformlegt tilboð í Moss Bros Fataverslanakeðjan Moss Bros tilkynnti í dag að henni hafi boðist tilboð frá Baugi Group um kaup á félaginu. Reuters greinir frá því að tilboðið hljóði upp á 42 pens á hlut. Ekki er víst að af tilboðinu verði en búist er við að næstu skref verði þau að framkvæmd verði áreiðanleika könnun. 25.2.2008 12:30
Pálmi segir kraftaverk að náðst hafi hagnaður hjá Sterling Pálmi Haraldsson, einn af stærstu eigendum Sterling-,flugfélagsins, segir það ganga kraftaverki næsta að tekist hafi að ná hagnaði í rekstri félagsins á síðasta ári. 25.2.2008 10:37
Grænn morgun í kauphöllinni Viðskipti vikunnar fóru vel af stað í morgun og allar tölur í grænu. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,43% og stendur nú í 5.097 stigum. 25.2.2008 10:27
Jón Karl fékk 60 milljónir í starfslokasamning Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, fékk 60 milljónir í starfslokasamning frá félaginu eftir því sem fram kemur í ársskýrslu fyrir árið 2007 sem birt var á fimmtudag. 25.2.2008 09:20
Halldór Kristmannsson ráðinn til Eimskips Halldór Kristmannsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips samstæðunnar. 25.2.2008 07:53
VBS fjárfestingarbanki ætlar að sækja um viðskiptabankaleyfi Á aðalfundi VBS fjárfestingarbanka í dag samþykktu hluthafar bankans heimild til að sótt verði um viðskiptabankaleyfi til Fjármálaeftirlits. 22.2.2008 19:28
365 lækkaði mest í Kauphöllinni í dag 365 hf. lækkaði mest í dag af þeim fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands en gengi félagsins lækkaði um 2,47 prósent. 11 önnur félög lækkuðu í dag, Icelandair um 1,94 prósent, Century Aluminum um 1,39 prósent og Straumur-Burðarás fór niður um 1,38 prósent. 22.2.2008 17:05
Gámaþjónustan í útrás í Lettlandi Gámaþjónustan hefur náð töluverðri fótfestu á markaði í Lettlandi. Fyrirtækið hefur nú á einu ári keypt nokkur fyrirtæki á sviði sorphreinsunar og endurvinnslu og um mánaðarmótin síðustu bættist enn eitt í safnið, SIA Eko Kurzeme. Sveinn Hanneson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar, segir í samtali við Vísi að í Lettlandi felist tækifæri þar sem landið þarf að uppfylla harðari kröfur í þessum efnum nú þegar Lettar hafa gengið í Evrópusambandið. 22.2.2008 16:03
Jón Karl verður forstjóri JetX/Primera Air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair, hefur verið ráðinn forstjóri JetX/Primera Air sem ferðaþjónustufyrirtækið Primera Travel Group rekur. 22.2.2008 14:55
Úrvalsvísitalan undir 5.000 stigin Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,90 prósent í Kauphöll Íslands í dag og fór hún undir 5.000 stigin eftir hádegi í dag. Vísitalan stendur nú í 4.990 stigum og hefur fallið um rétt rúmt 21 prósent frá áramótum. 22.2.2008 13:15
Loðnustoppið veikir gengi krónunnar Þau tíðindi að loðnuveiðum hefur verið hætt eru á meðal þeirra áhrifaþátta sem toga krónuna niður nú í vikunni en uppskerubrestur loðnuvertíðarinnar hefur í för með sér minnkandi útflutningstekjur og í kjölfarið versnandi hagvaxtarhorfur. 22.2.2008 11:51
Össur hf. gerir ekki sérstaka starfslokasamninga Á aðalfundi Össur hf. sem haldinn var í dag var m.a. samþykkt að félagið gerir ekki sérstaka starfslokasamninga við stjórnendur eða starfsfólk. 22.2.2008 10:40
Enn ein mínusbyrjun í kauphöllinni Ekkert félag hefur hækkað í fyrstu viðskiptunum í kauphöllinni í morgun. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,45% og stendur nú í 5.011 stigum. 22.2.2008 10:31
Atorkuforstjóri með 117 milljónir í laun og bónusa Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group, fékk rétt rúmar 117 milljónir í laun og bónusa árið 2007 samkvæmt ársskýrslu félagsins sem birt var í morgun. 22.2.2008 10:03
Atorka Group hagnaðist um 8 milljarða á síðasta ári Hagnaður móðurfélags Atorku Group eftir skatta á árinu 2007 var 8.141 milljónir króna. Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi var 1.371 milljónir króna. Heildareignir í lok árs voru um 62.325 milljónir króna, jukust um 45% á milli ára. 22.2.2008 09:38
Stórfelldar breytingar hjá Skífunni Verslun Skífunnar í Smáralind verður lokað um næstu mánaðamót. Um leið verður sala á tónlist í verslunum BT færð undir nýtt merki Skífunnar Express. Þá er áformað að opna „tónlistarkaffihús“ tengt Skífunni á Laugavegi fyrir sumarið. 22.2.2008 05:00
Heppni hjá Fons „Þetta var heppni og reynsla,“ segir Pálmi Haraldsson, stærsti hluthafi Fons, en félagið skilaði um fimm milljarða króna hagnaði í fyrra. Rekstrarhagnaður var um sjö milljarðar króna og námu heildareignir félagsins hundrað milljörðum í árslok. 22.2.2008 03:00
Hagnaður Icelandair tekur dýfu Hagnaður Icelandair Group dróst verulega saman á milli ára í fyrra. Hagnaðurinn nam 257 milljónum króna á árinu samanborið við 2,6 milljarða í hitteðfyrra. Þá tapaði félagið 780 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi samanborið 551 milljóna króna tap á sama tíma árið á undan. 21.2.2008 22:45
Atlantic Airways á uppleið í Kauphöllinni Færeyingarnir hjá flugfélaginu Atlantic Airways flugu upp um sex prósent prósent við upphaf viðskipta í Kauphöll Íslands í dag en afkomutölur félagsins fyrir síðasta ár voru birtar í gær. Félagið skilaði hagnaði upp á jafnvirði 312 milljóna íslenskra króna í fyrra, sem er besta ár í sögu Atlantic Airways. 21.2.2008 16:46
Umdeildur greinandi óttast ekki um starf sitt David Karsbøl hjá greiningadeild Saxobank í Danmörku segist ekki óttast um starf sitt þrátt fyrir hörð viðbrögð vegna álits sem hann gaf á íslensku bönkunum. Danska blaðið Börsen hafði eftir David að Kaupþing og aðir íslenskir bankar stefndu í gjaldþrot. 21.2.2008 15:51
Kostar 2,50 að slá eina krónu Það kostar 2,50 krónur að slá eina íslenska krónu samkvæmt upplýsingum frá Ingvari Alfreð Sigfússyni, rekstrarstjóra Seðlabankans. Ástæðan fyrir dýrum slætti er mikil hækkun á málmi á undanförnum misserum. 21.2.2008 14:00
Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo „Hann er annaðhvort fáfróður eða heimskur um Kaupþing, greinandi Saxo sem heldur því fram að Kaupþing og hinir íslensku bankarnir séu að verða gjaldþrota," segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo en Sigurður vildi þó ekki tjá sig eða staðfesta það. 21.2.2008 12:15
Kaupþing á hausinn og Ron Paul í Hvíta húsið Spádómur Davids Karsbol um válegar framtíðarhorfur hjá Kaupþingi hafa vakið hörð viðbrögð Sigurðar Einarssonar forstjóra Kaupþings. Sigurður sagði í viðtali við danska viðskiptablaðið Börsen að mat Karsbol skýrðist annað hvort af heimsku eða algerri fáfræði um íslenskt viðskiptalíf. Hann virðist þó ekki þurfa að hafa áhyggjur ef mið er takið af fyrri spádómum Karsbol. 21.2.2008 12:13
Mjólka kaupir Vogabæ Mjólka hefur fest kaup á matvælafyrirtækinu Vogabæ, sem er einna þekktast fyrir Vogaídýfurnar, og hefur mjólkurstöð Mjólku verið flutt í verksmiðjuhúsnæði Vogabæjar í Hafnarfirði. 21.2.2008 11:27
Róleg byrjun í kauphöllinni Það hefur verið róleg byrjun í kauphöllinni í morgun. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,22% og stendur nú í 5.071 stigum. 21.2.2008 10:55
Baldur Guðnason hættir hjá Eimskip Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu að eigin ósk og hættir störfum hjá félaginu frá og með deginum í dag. Stefán Ágúst Magnússon, sem verið hefur aðstoðarforstjóri félagsins undanfarin ár, mun sinna starfi forstjóra þar til annað verður tilkynnt. 21.2.2008 10:21
Heimskir eða fáfróðir Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings, vandar greiningaraðila hjá Saxo Bank ekki kveðjurnar en sá taldi allt eins líklegt að Kaupþing yrði gjaldþrota fyrir árslok. 20.2.2008 17:41
Sextán félög lækkuðu í dag Sextán félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag á meðan fimm hækkuðu. Mest var lækkun á bréfum Exista sem fór niður um 2,09 prósent. Eimskip kom þar á eftir með 1,84 prósent og FL Group lækkaði um 1,57 prósent. 20.2.2008 17:39
Nauðsynlegt að bæta Lárusi skaða af flutningi milli starfa Nauðsynlegt var að bæta Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, þann fjárhagslega skaða sem hann hefði ella orðið fyrir við að færa sig til bankans frá Landsbankanum í London. 20.2.2008 16:14
Býst við gjaldþroti íslenskra banka Davis Karsbøl yfirmaður greiningardeildar Saxo bankans segir á fréttavef Børsen að líkur á því að Kaupþing verði gjaldþrota hafi aldrei verið meiri. Hann telur að komandi ár eftir að reynast íslensku bönkunum erfitt og segist ekki verða undrandi ef einn eða tveir stóru íslensku bankanna verði gjaldþrota fyrir árslok. Kaupþing sé þar líklegastur þar sem hann hafi orðið verst úti með tilliti til skuldatryggingarálags bankans sem hafi aldrei verið hærra. 20.2.2008 14:10
Mesti hagnaður í 20 ára sögu Atlantic Airways Hagnaður Atlantic Airways nam um 390 milljónum kr. fyrir skatta á síðasta ári. Í tilkynningu um uppgjörið segir að árið í fyrra hafi verið gott ár hjá flugfélaginu raunar það besta í 20 ára sögu félagsins. 20.2.2008 11:47
Færeyjabanki fellur um fimm prósent Gengi hlutabréfa í Föroya banka féll um rétt rúm fimm prósent í Kauphöllinni í dag. Það stendur nú í 129 dönskum krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra. Að öðru leyti hefur verið lækkun í Kauphöllinni líkt og víðar í evrópskum kauphöllum í dag. 20.2.2008 10:27
Lánamarkaðir eru í raun lokaðir fyrir íslensku bankana Oliver Johnson sérfræðingur í lánaráðgjöf hjá Barclay´s Capital í London segir að alþjóðlegir lánamarkaðir séu í raun lokaðir íslenskum bönkum í augnablikinu. Í samtali við Vísir segir Oliver að bæði sé um að ræða að fjárfestar vilji ekki lána íslensku bönkunum vegna áhyggna af íslensku efnahagslífi og hinsvegar vilji bankarnir sjálfir ekki taka lán á þeim kjörum sem þeim bjóðast í dag. 20.2.2008 10:15
Greining Kaupþings spáir 6% verðbólgu Greining Kaupþings spáir 0,6% hækkun á vísitölu neysluverðs í febrúar. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 6% samanborið við 5,8% í janúar. 20.2.2008 08:44
Kraftur í handverkinu Í Handverkshúsinu í Hafnarfirði má finna allt sem þarf til handverks; allt frá námskeiðum til verkfæra. Jón Skaftason spjallaði við Þorstein Jónsson eiganda. 20.2.2008 00:01