Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjóðirnir ráði ekki miklu „Við vitum að erlendir vogunarsjóðir eiga nokkuð af kröfum bankanna. Sjóðirnir munu ekki eiga beina hluti í þeim heldur verða þeir hluti af breiðum hópi kröfuhafa í eignarhaldsfélagi sem kann að eignast hlut í Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi. Þeir geta því ekkert ráðskast með þá,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 29.10.2009 05:15
FIH verður ekki seldur í bráð Danski bankinn FIH er traustur og verður ekki seldur við núverandi markaðsaðstæður enda má við því búast að betra verð fáist fyrir hann þegar fjármálamarkaðir rétta úr kútnum. 29.10.2009 05:00
Bílalán ekki leiðrétt hjá Lýsingu Engar leiðréttingar á bílalánum verða um mánaðamótin hjá Lýsingu eins og nýsamþykkt lög gera ráð fyrir. Ekki í takt við loforð stjórnvalda segir lántaki sem fékk óleiðréttan greiðsluseðil í dag. Hann segir það pirrandi að fá þetta í hausinn núna þar sem fólk hafi búist leiðréttri greiðslubyrði nú um mánaðarmótin. 28.10.2009 18:56
Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega Úrvalsvísitalan OMX16 lækkaði um 0,3% í kauphöllinni í dag og stendur í tæpum 829 stigum. 28.10.2009 17:25
Kaupþing hagnast vel á að hafa haldið Norvestia Skilanefnd Kaupþings hefur hagnast vel á því að hafa haldið finnska fjárfestingarfélaginu Norvestia í bókum sínum. Skilanefndin hefur fengið arðgreiðslu upp á 1,25 milljónir evra eða um 230 milljónir kr. frá Norvestia og hlutir í félaginu hafa hækkað um 30% í ár. 28.10.2009 16:13
Vel gengur að endurheimta eignir Kaupþings Vel gengur að endurheimta og endurskipuleggja eignir gamla Kaupþings og og samkvæmt uppfærðri skýrslu skilanefndar bankans hafa 29 milljarðar innheimst af lánum úr eignasöfnum á Norðurlöndunum og í Evrópu. 28.10.2009 15:50
Þórólfur Árnason endurkjörinn formaður SUT Þórólfur Árnason, forstjóri SKÝRR, var endurkjörinn formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja - SUT - á aðalfundi í morgun en Þórólfur tók við formennsku SUT á síðasta ári af Eggerti Claessen. 28.10.2009 15:14
Tískuhúsið Versace í verulegum fjárhagsvandræðum Hið þekkta tískuhús Versace á nú í verulegum fjárhagsvandræðum og neyðist nú til þess að segja upp fjórðungi af starfsfólki sínu á heimsvísu. Tískuhúsið hefur greint frá því að alls hafa 350 af 1.360 starfsmenn fengið uppsagnarbréf. 28.10.2009 15:04
Innlögnum fjölgar um 142% á skráningarnúmerum ökutækja Á þessu ári hafa innlagnir skráninganúmera ökutækja aukist stórlega borið saman við undanfarin ár. Þannig voru 5239 skráningarnúmer lögð inn í september á þessu ári á meðan 2158 voru lögð inn til geymslu á sama tíma í fyrra. Þetta er 142% aukning á innlögnum skráningarnúmera á milli ára. 28.10.2009 14:29
Jens Stoltenberg ítrekar að engin lán fáist án AGS Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs ítrekaði það á Norðurlandaráðsþinginu sem nú stendur yfir í Stokkhólmi að Íslendingar fengju engin lán frá Noregi nema í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 28.10.2009 14:19
Norski seðlabankinn sá fyrsti sem hækkar stýrivexti Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína í dag og varð þar með fyrsti seðlabankinn í Evrópu til að gera slíkt frá því að fjármálakreppan skall á í fyrra. Hækkunin nam 0,25 prósentustigum og fóru vextirnir við það í 1,5%. 28.10.2009 14:06
Skuldir Landsvirkjunar nema 380 milljörðum Um mitt ár 2009 námu heildarskuldir Landsvirkjunar 3,1 milljarði Bandaríkjadala eins og fram kemur í árshlutareikningi fyrirtækisins. Skuldirnar nema því um 380 milljörðum króna á núverandi gengi. 28.10.2009 13:43
CCP flytur öll bankaviðskipti sín á Íslandi til MP Banka CCP hf. og MP Banki hf. hafa undirritað samninga um endurfjármögnun CCP og flutning allra bankaviðskipta félagsins á Íslandi til MP Banka. Í kjölfar samningsins hefur CCP greitt upp víxla félagsins sem skráðir voru í Kauphöll og voru á gjalddaga þann 28. október. 28.10.2009 13:32
Þórólfur endurkjörinn formaður SUT Þórólfur Árnason, forstjóri SKÝRR, var endurkjörinn formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja - SUT - á aðalfundi í morgun en Þórólfur tók við formennsku SUT á síðasta ári af Eggerti Claessen. 28.10.2009 13:12
Straumur stefnir World Class vegna kennitöluflakks Straumur mun leggja fram stefnu gegn líkamsræktarstöðinni World Class í dag eða í fyrramálið í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna kennitöluflakks á vegum World Class. Með því hafi skuld við Straum upp á einn milljarða kr. verið skilin eftir í gamla félaginu en allar eignir World Class settar yfir í nýtt félag. 28.10.2009 12:33
SP fjármögnun hringlar með vægi gjaldmiðla SP fjármögnun hringlar með vægi gjaldmiðla í myntkörfulánum til að hækka greiðslur viðskiptavina segir viðskiptafræðingur og lántaki hjá SP fjármögnun. Hún furðar sig á því að fyrirtæki geti verið með sína eigin gjaldmiðla. 28.10.2009 12:23
Fyrsta aflétting á gjaldeyrishöftum hefur lítil áhrif á gengið „Mjög óvíst er hverju þessi fyrsti áfangi skilar í innflæði gjaldeyris en við reiknum með því að aðgerðin hafi takmörkuð áhrif á gengi krónunnar," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um fyrsta áfangann í að aflétta gjaldeyrishöftunum. 28.10.2009 12:16
Verðbólgumæling hleypir lífi í skuldabréfamarkaðinn Verðbólgumæling morgunsins hefur hleypt nokkru lífi í skuldabréfamarkað það sem af er degi. Nokkur kaupáhugi hefur verið á íbúðabréfum, og hefur ávöxtunarkrafa þeirra lækkað um 5-12 punkta frá opnun markaðar. 28.10.2009 11:59
Rússneskur auðmaður í tugmilljarða skilnaði Rússneski auðmaðurinn Boris Berezovsky stendur nú í skilnaðarmáli við eiginkonu sína Galinu þótt að þau hafi ekki búið saman í 10 ár. Galina gæti fengið allt að 100 milljónir punda, eða ríflega 20 milljarða kr., út úr skilnaðinum við Berezovsky. 28.10.2009 11:32
Ráðgjöf um íslensku bankana gagnrýnd á breska þinginu Breskir þingmenn hafa gagnrýnt hve eftirlitsstofnanir með fjármálafyrirtækjum í Bretlandi hafa verið tregar til að rannsaka þá ráðgjöf sem bresk bæjar-og sveitarfélög fengu í tengslum við fjárfestingar sínar hjá íslensku bönkunum áður en þeir komust í þrot í fyrra. 28.10.2009 09:33
Ársverðbólgan lækkar í 9,7%, mun minna en spáð var Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 13,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% sem jafngildir 10,2% verðbólgu á ári. Ársverðbólgan mældist 10,8% í síðasta mánuði. 28.10.2009 09:02
Eignir ýmissa lánafyrirtækja hækka um 4,2 milljarða Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu um 1.309 milljörðum kr. í lok september og hækkuðu um 4,2 milljarða kr. í mánuðinum. 28.10.2009 08:51
Century Aluminium skilar 5 milljarða hagnaði Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði rétt rúmlega 40 milljón dollara eða um 5 milljarða kr. hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Er þetta nokkru meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 35,8 milljónum dollara. 28.10.2009 08:33
Vogunarsjóðir sjá tækifæri í íslensku bönkunum á ný Sjóðir sem högnuðust á falli íslenska efnahagslífsins eru meðal helstu kröfuhafa bankanna. Nýju bankarnir verða hreinsaðir af lélegum kröfum. Þúsund milljarðar króna hafa því sem næst verið afskrifaðir. 28.10.2009 00:01
Tveir og hálfur milljarður á ári í vaxtamun vegna lánanna Íslendingar munu greiða um tvo og hálfan milljarð króna á ári í vaxtakostnað vegna þeirra lána sem afgreidd verða við endurskoðun Alþjóðgjaldeyrissjóðsins á morgun. 27.10.2009 18:46
Umfangsmikið markaðsátak ferðaþjónustu í Evrópu Fulltrúar 13 ferðaþjónustufyrirtækja eru nú staddir í Þýskalandi í því skyni að kynna Ísland sem áfangastað fyrir þýska ferðamenn og er ferðin liður í markaðsátaki þeirra í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Útflutningsráði. 27.10.2009 15:42
Sparnaðaraðgerðir skila ekki árangri hjá ríkinu Ríkisendurskoðun segir að þær aðgerðir sem stjórnvöld gripu til í sumar til að hemja kostnað og bæta afkomu ríkissjóðs til ársloka hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Þá hafi 50 valdar ríkisstofanir almennt ekki farið að tilmælum Ríkisendurskoðunnar um að bæta stöðu sína. 27.10.2009 15:26
Ríkisendurskoðun beinir sjónum að kreppuvandamálum Ríkisendurskioðun ætlar að beina sjónum sínum sérstaklega að þeim meginvandamálum sem stjórnvöld og ríkisstofnanir standa frammi fyrir vegna efnahagshrunsins á næstu tveimur árum. 27.10.2009 14:32
Sarkozy mokar 120 milljörðum í franska bændur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tilkynnti í dag efnahagsaðstoð upp á 650 milljónir evra eða um 120 milljarða kr. til handa frönskum bændum. Fyrir utan þessa aðstoð standa bændunum til boða ódýr lán upp á um 185 milljarða kr. í viðbót. 27.10.2009 14:20
Bankasýslan tekur við eignarhaldi á bönkunum Bankasýsla ríkisins hefur tekið við eigandahlutverki í viðskiptabönkunum þremur. Lúkning samninga við kröfuhafa verður þó áfram á hendi fjármálaráðherra. 27.10.2009 13:28
Greining: Gjaldþrot aukast verulega næstu mánuði Greining Íslandsbanka segir að búast megi við því að gjaldþrotum muni fjölga verulega á næstu mánuðum. Leggur greiningin þar til grundvallar tölu um gjaldþrot á árinu og skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem gefin var út í gærdag. 27.10.2009 13:23
FÍS gagnrýnir frekari hækkanir á tryggingargjaldi Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS)segir að frekari hækkun tryggingagjalds í stað orkuskatta muni bitna harkalega á verslun og þjónustu og hefur áhrif á atvinnustig. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem FÍS hefur sent frá sér. 27.10.2009 13:14
Sports Direct ætlar í mál við Kaupþing í Bretlandi Íþróttavörukeðjan Sports Direct ætlar í mál við stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Málið er höfðað vegna yfirtöku á eignarhlutum Sports Direct í verslunarkeðjunum Blacks Leisure og JD Sports Fashion. 27.10.2009 12:19
Velheppnað útboð á íbúða- og ríkisbréfum í morgun Seðlabankinn hélt í morgun útboð á þeim íbúða- og ríkisbréfum sem lögð höfðu verið inn í bankann til tryggingar verðbréfalánum fyrir hrun og ríkissjóður yfirtók í kjölfarið. Í boði voru 4,3 milljarðar kr. í HFF24, 3,2 milljarðar kr. í HFF34, 3,8 milljarðar kr. í RIKB13 og 3,12 milljarðar kr. í RIKB19. 27.10.2009 12:02
Íslendingar ekki verið jafnbjartsýnir síðan fyrir hrun Eitthvað virðist svartsýni íslenskra heimila vera á undanhaldi. Væntingavísitala Gallup er í október er sú hæsta síðan fyrir hrun bankanna í október í fyrra en vísitalan hefur verið að hækka síðustu þrjá mánuði. 27.10.2009 11:04
McDonalds: Laukurinn á sama verði og gott viský Eins og fram hefur komið í fréttum hefur brotthvarf McDonalds hamborgarakeðjunnar frá Íslandi vakið heimsathygli. Frændur vorir á Norðurlöndunum eru þar engin undantekning en greint er frá málinu á helstu vefsíðum fjölmiðla þar. 27.10.2009 10:42
Kaupþing yfirtekur stærstu hlutabréfaeign Sports Direct Reiknað er með að Sports Direct tapi stærstu hlutabréfaeign sinni í framhaldi af því að stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi yfirtaki hana í dag. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Retailweek. 27.10.2009 10:15
ISAL með bestan árangur álvera heimsins í minnkun flúors Staðfest hefur verið af Alþjóðasamtökum álframleiðenda (IAI) að ISAL náði bestum árangri allra álvera heims við að lágmarka losun flúorkolefna árið 2008. 27.10.2009 09:56
Vaxtakostnaður almennings í Danmörku lækkar töluvert Vaxtakostnaður almennings í Danmörku hefur lækkað töluvert frá því í fyrra. Vextir sem Danir greiða lánastofnunum sínum hafa þannig minnkað um 2,1 milljarð danskra kr., eða um 50 milljarða kr., milli mánaðanna nóvember í fyrra og september í ár. 27.10.2009 09:34
Gjaldþrotum fjölgaði um 65% milli ára í september Í september 2009 voru 86 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 52 fyrirtæki í september 2008, sem jafngildir rúmlega 65% fjölgun milli ára. 27.10.2009 09:01
Íslandsbanki lækkar höfuðstól erlendra bílalána um 23% Íslandsbanki hefur ákveðið að leiðrétta höfuðstól gengistryggðra og verðtryggðra bílalána og bílasamninga. Leiðréttingin felur í sér að höfuðstóll láns er leiðréttur miðað við ákveðið gengi í lok september 2008. 27.10.2009 08:23
Ríkissjóður selur 14,4 milljarða í ríkis- og íbúðabréfum Þriðjudaginn 27. október fer fram útboð á íbúðabréfum og ríkisbréfum sem lögð voru fram til tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Um er að ræða bréf upp á 14,4 milljarða kr. að nafnverði. Þar af eru 6,9 milljarðar í ríkisbréfum og 7,5 milljarðar í íbúðabréfum. 27.10.2009 08:10
Álverðið fór yfir 2.000 dollara í London í morgun Heimsmarkaðsverð á áli fór yfir 2.000 dollara á markaðinum í London í morgun og stendur nú í 2.010 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verðið ekki verið hærra í ár síðan í sumar þegar það fór yfir 2.000 dollara í skamman tíma. 27.10.2009 08:01
Össur skilar 700 milljóna hagnaði á 3. ársfjórðung Össur hf. skilaði rúmlega 700 milljón kr. hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins. Sala félagsins á því tímabili nam 84 milljónum dollara, eða rúmlega 10 milljörðum kr. og nam hagnaðurinn 7% af sölunni. 27.10.2009 07:47
Íslenska hrunið eftirlitsleysi að kenna Tony Shearer fyrrverandi forstjóri Singer og Friedlander bankans í Bretlandi sem Kaupþing keypti á sínum tíma kennir eftirlitsaðilum um hrun íslenska fjármálakerfisins. Shearer, sem áður hefur borið vitni fyrir breskri þingnefnd og gagnrýnt íslensku bankana harðlega var í viðtali á Sky sjónvarpsstöðinni í gær og þar sagði hann að eftirlitsaðilar hefðu brugðist í hlutverki sínu þrátt fyrir að það hafi blasað við að áhættan hjá íslensku bönkunum hafi verið allt of mikil. 27.10.2009 06:50