Íslandsbanki lækkar höfuðstól erlendra bílalána um 23% 27. október 2009 08:23
Íslandsbanki hefur ákveðið að leiðrétta höfuðstól gengistryggðra og verðtryggðra bílalána og bílasamninga. Leiðréttingin felur í sér að höfuðstóll láns er leiðréttur miðað við ákveðið gengi í lok september 2008. Í tilkynningu segir að þetta hafi í för með sér að höfuðstóll erlendra bílalána og bílasamninga mun lækka um 23% að meðaltali, m.v. gengið eins og það var 20. október s.l. Höfuðstóll verðtryggðra bílalána og bílasamninga í íslenskum krónum lækkar um 5% að meðaltali. Þetta hefur í för með sér að lánið færist yfir í íslenskar krónur á breytilegum óverðtryggðum vöxtum. Veittur verður afsláttur af vöxtum fyrstu 12 mánuði lánsins. Vextir verða því 10,5% í stað 13,1% í dag. Ef vaxtabreytingar verða á tímabilinu munu vextir breytast í samræmi við það. Eftir 12 mánuði munu vextir miðast við vaxtatöflu Íslandsbanka Fjármögnunar. Til þess halda greiðslubyrði í lágmarki stendur viðskiptavinum Íslandsbanka til boða að lengja greiðslutíma bílalánsins, þó aldrei lengur en í þrjú ár og að hámarki 75% af þeim fjölda greiðslna sem eftir er á láninu. Hægt verður að sækja um leiðréttingu á höfuðstól bílalána og samninga fram til 15. desember næstkomandi. Viðskiptavinur munu geta sótt um á vef bankans, www.islandsbanki.is, prentað út viðeigandi skjöl á einfaldan hátt og skilað þeim undirrituðum í næsta útibú Íslandsbanka um land allt. Sem dæmi má nefna að lán upp á 2,5 milljónir kr. sem var tekið í nóvember 2007 í erlendri mynt til 84 mánaða, stendur í 4,6 milljónum kr. í dag, og greiðslubyrði eru rúmar 86 þús. kr. Eftir höfuðstólsleiðréttingu lækkar höfuðstóllinn um það bil í 3,5 milljónir kr. og greiðslubyrði láns verður 54 þús., m.v. að viðskiptavinur velji lengingu á lánstíma.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira