Bankasýslan tekur við eignarhaldi á bönkunum 27. október 2009 13:28
Bankasýsla ríkisins hefur tekið við eigandahlutverki í viðskiptabönkunum þremur. Lúkning samninga við kröfuhafa verður þó áfram á hendi fjármálaráðherra. Í tilkynningu segir að Bankasýslan fari samkvæmt lögum með eigandahlutverk ríkisins í fjármálafyrirtækjum sem stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að eignast hlut í. Þeim sem þurfa að hafa samband við ríkið vegna eignarhluta þess í viðskiptabönkunum er bent á að hafa samband við Bankasýsluna. Eins og áður hefur komið fram skipa stjórn Bankasýslu ríkisins þau Þorsteinn Þorsteinsson rekstrarhagfræðingur, stjórnarformaður, Sonja María Hreiðarsdóttir lögmaður, varaformaður, Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur og Guðrún Johnsen hagfræðingur til vara. Í samræmi við lög um Bankasýsluna hefur stjórnin skipað valnefnd til að tilnefna fulltrúa ríkisins til setu í stjórnum fjármálafyrirtækjanna. Í henni eiga sæti Kristín Rafnar forstöðumaður skráningarsviðs Nasdaq OMX, formaður, Friðrik Már Baldursson forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Helga Valfells sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði Atvinnulífsins. Unnið er að gerð vefseturs fyrir Bankasýsluna og þar mun fólk sem telur sig uppfylla hæfisskilyrði fyrir setu í bankaráðum og stjórnum fjármálafyrirtækja geta gefið kost á sér. Stjórnin hefur samþykkt starfsreglur valnefndarinnar. Samkvæmt samningum við skilanefndir gömlu bankanna á ríkið rétt á að kjósa einn mann í bankaráð Íslandsbanka, fjóra menn í bankaráð Nýja Kaupþings sem þó fækkar í einn ef Kaupþing ákveður að yfirtaka meirihlutann í Nýja Kaupþingi og ennfremur fjóra menn í bankaráð Landsbankans. Þá hefur stjórn Bankasýslunnar auglýst starf forstjóra stofnunarinnar laust til umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út 2. nóvember.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira