Fleiri fréttir

Lánveitingar breskra banka í kastljósinu

Kastljós bæði fjölmiðla og almennings í Bretlandi mun beinast að lánveitingum fjögurra stærstu banka landsins í næstu viku þegar þeir skila hálfsársuppgjöri, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.

Gjaldþrot Björgólfs slær Bretlandsmet

Gjaldþrot Björgólfs Guðmundssonar er mun stærra en nokkurt gjaldþrot einstaklings í sögu Bretlands að því er fram kom í breska dagblaðinu Daily Telegraph í gær.

Keypti Haga á 30 milljarða

Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fékk þrjátíu milljarða króna lán til að kaupa 95 prósenta hlut í Högum af Baugi Group í gegnum félagið 1998 ehf.

Bretar segjast ekki hafa beitt AGS þrýstingi

Bretar neituðu í gær að hafa beitt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þrýstingi vegna Icesave, að því er fram kemur í fréttaskýringu í breska viðskiptablaðinu Financial Times.

Samkomulag um endurskoðun AGS um mánaðarmótin

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur náð samkomulagi við íslensk stjórnvöld um að endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætluninni fyrir Íslandi muni ljúka um næstu mánaðarmót, það er í lok ágúst eða byrjun september.

17,2 milljarðar í örorkubætur á síðasta ári

Heildargjöld félags- og tryggingamálaráðuneytisins námu rúmum 83,1 milljarði króna fyrir árið 2008. Af þeirri upphæð var örorkulífeyrir ríflega 17,2 milljarðar króna en árið áður nam kostnaður ráðuneytisins vegna örorkulífeyris 13,7 milljörðum króna. Aukningin á milli ára er því 25,5 prósent.

Gjöld fjármálaráðuneytisins tæpir 275 milljarðar 2008

Fjármálaráðuneytið bar langhæstan kostnað allra ráðuneyta Íslands fyrir árið 2008. Alls námu gjöld ráðuneytisins rúmum 274,6 milljörðum króna en það ráðuneyti sem næst kom var heilbrigðisráðuneytið með tæpa 112,2 milljarða króna.

Met afgangur af vöruskiptum á fyrri hluta ársins

Vöruskiptajöfnuðurinn í júní mánuði var jákvæður um 8,7 milljarða króna samkvæmt tölum Hagstofunnar og er það í takt við bráðabirgðatölur sem gefnar voru út í byrjun mánaðarins. Alls voru fluttar út vörur fyrir 40,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 32 milljarða í mánuðinum. Hagsjá Landsbankans greinir frá þessu í dag.

Verð á sjávarafurðum það sama og árið 2006

Verð á íslenskum sjávarafurðum, mælt í erlendri mynt, lækkaði um rúmlega eitt prósent í síðasta mánuði og er nú orðið það sama og það var í ársbyrjun árið 2006.

Yfir 50 embættismenn með hærri tekjur en Jóhanna

Rúmlega fimmtíu embættismenn og forstjórar ríkisfyrirtækja voru með hærri tekur á mánuði á síðasta ári en sem nemur launum forsætisráðherra. Sá sem var með hæstar tekjur var með yfir sex milljónir króna á mánuði.

Útrásarvíkingur flutti tugi milljóna rétt fyrir hrun

Ólafur Ólafsson, sem kenndur er við Samskip, flutti tugmilljónir króna af innistæðureikningi sínum í Kaupþingi Lúxemborg aðeins nokkrum dögum áður en bankinn fór í þrot. Peningarna notaði Ólafur til að fjárfesta í ríkistryggðum verðbréfum en innistæður í íslenskum bönkum erlendis voru ekki tryggðar að fullu.

Skilanefndarmenn á ofurlaunum

Skilanefndarmaðurinn Ársæll Hafsteinsson var langtekjuhæstur á síðasta ári samkvæmt tekjublaði Frjálsrar Verslunar en hann var með rúmlega sex milljónir í mánaðarlaun á síðasta ári. Þess má geta að launin gefa ekki lýsandi mynd af launakjörum skilanefndarmanna.

Skilanefnd: Ekki ágreiningur við Jón Ásgeir og Ingibjörgu

Vegna frétta í fjölmiðlum af málefnum Skilanefndar Landsbanka Íslands hf. og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar tekur Skilanefndin fram að enginn ágreiningur er til staðar við Jón Ásgeir Jóhannesson og/eða Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur vegna skuldbindinga þeirra við bankann frá fyrri tíð.

Húsnæði 101 Hótels yfirveðsett

Veð upp á rúma 1,2 milljarða króna hvíla á húsinu við Hverfisgötu 8-10 þar sem 101 Hótel er til húsa. Skilanefnd Landsbankans er með veð að andvirði 910 milljónir króna.

Ríkisreikningur 2008: Hallinn nam 216 milljörðum

Hallinn á rekstri ríkissjóðs á árinu 2008 nam 216 milljörðum kr. eða 46% af tekjum ársins. Þetta er alger viðsnúningur miðað við árið 2007 þegar 89 milljarða kr. afgangur, eða 18%, varð af tekjum ársins.

Alfesca boðar hluthafafund innan 14 daga

Í samræmi við lög um hlutafélög og samþykktir Alfesca hf. mun stjórn félagsins boða til hluthafafundar innan 14 daga. Nánari upplýsingar um fundardag, fundartíma og fundarstað hluthafafundar verða birtar innan skamms.

Yfir 70 milljarða viðsnúningur á vöruskiptunum

Fyrstu sex mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 211,8 milljarða króna en inn fyrir 178,8 milljarða króna . Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam tæpum 33 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,8 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 70,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Slakað á gjaldeyrishömlum

Áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna verður kynnt í dag. Unnið hefur verið að áætluninni í viðskiptaráðuneytinu en hún er liður í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Fram til þessa hafa ekki verið taldar forsendur til að slaka á höftunum.

Tekjur 1000 Íslendinga: Skoðaðu frítt á Vísi

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var með hæstu tekjur allra Íslendinga á síðasta ári samkvæmt álagningarskrá Ríkisskattstjóra sem lögð var fram í dag. Hreiðar Már var með rúmar 35 milljónir á mánuði í tekjur.

Auðmenn borga einum og hálfum milljarði minna í ár

Alls eru um 280 milljón króna munur á milli skattakóngs 2008 og 2007. Nú er það Þorsteinn Már Baldvinsson sem hlýtur þennan titil en hann borgaði 170 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári.

Einstaklingar geta fengið lán í gegnum íslenska vefsíðu

Ragnheiður Magnúsdóttir er stofnandi nýrrar vefsíðu sem opnar í haust og kemur til með að heita uppspretta.is. Síðan er svokölluð örlánasíða en slíkar vefsíður eru þekktar erlendis. Þetta kemur fram á Netvarpinu.

Alcoa hefur ekki fært neinar skuldir yfir á Alcoa á Íslandi

Alcoa hefur ekki fært neinar skuldir yfir á Alcoa á Íslandi heldur er hér um fjárfestingu í uppbyggingu álvers á Reyðarfirði að ræða. Skuldir Alcoa á Íslandi eru til móðurfélags og á ábyrgð þess. Þessar lánveitingar eru eingöngu tilkomnar vegna fjárfestinga félagsins hérlendis.

Sjælsö breytir lánum til Property Group í eignarhluta

Eitt af atriðunum við endurskipulagningu á Property Group í Danmörku er að Sjælsö Gruppen hefur ákveðið að breyta lánum til Property Group yfir í eignarhluta. Um er að ræða 300 milljónir danskra kr. eða um 7,3 milljarða kr.

Nordic eMarketing verður samstarfsaðili Yahoo

Nordic eMarketing hefur verið valið sem eitt af fyrstu samstarfsaðilum Yahoo! vegna nýja vefgreiningartólsins þeirra. Tólið, sem áður hét Indextools en kallast nú Yahoo Web Analytics, er andsvar Yahoo! við Google Analytics.

Skattakóngur Íslands: Vill að peningarnir fari í heilbrigðiskerfið

Tæplega 70% þeirra skattagreiðslna sem Þorsteinn Már Baldvinsson greiddi á síðasta ári eru tilkomnar vegna flutnings á hlutabréfum í Samherja hf. sem voru í hans persónulegu eign yfir í sérstakt félag í eigu hans og Helgu S Guðmundsdóttur fyrrverandi eiginkonu hans. Þetta segir Þorsteinn í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum.

Krónan að nálgast bankahrunsgengið

Gengi krónunnar hefur verið að lækka í morgun í fremur litlum viðskiptum. Nemur lækkunin 0,7%. Gengisvísitalan er í 236,7 stigum og í sínu hæsta gildi á árinu. Krónan hefur því ekki áður verið lægri á þessu ári. Kostar evran nú tæplega 182 krónur og er hún einungis 6 krónum frá því að vera jafn dýr og hún varð dýrust eftir bankahrunið í október á síðasta ári.

Reiknar með óbreyttum stýrivöxtum í ágúst

Greining Íslandsbanka reiknar með að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum sínum óbreyttum í 12% á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans sem verður þann 13. ágúst næstkomandi.

Ábatasöm Gullbergssala

Ekkjan Elínborg Jónsdóttir greiðir hæstu opinberu gjöldin í Vestmannaeyjum í ár. Þá er sonur hennar, Eyjólfur Guðjónsson í öðru sætinu.

Berlingske: Íslenskir auðmenn í stríði fyrir opnum tjöldum

„Beinagrindurnar halda áfram að rúlla út úr skápnum eftir bankahrunið á Íslandi. Nú nota auðmennirnir eigin fjölmiðla í baráttunni um eftirköstin. Fyrrum eigandi Magasin heldur því fram að hafa verið hótað af drukknum blaðamanni og sætt fjárkúgun af lögfræðingi."

Porta greiddi hæstu gjöldin á Austurlandi

Gianni Porta greiddi hæstu opinberu gjöldin í Austurlandsumdæmi á síðasta ári. Porta greiddi tæpar 18 milljónir í opinber gjöld. Því næst kom ingvaldur Ásgeirsson með tæpar 14 milljónir. Á eftir honum kemur svo Gunnar Ásgeirsson með rúmar 13 milljónir.

Stím-maðurinn í 7.sæti skattgreiðanda á Reykjanesi

Útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason, sem komst síðast í fréttirnar fyrir jól í tengslum við hið dularfulla eignarhaldsfélag Stím ehf, er í sjöunda sæti yfir þá sem greiddu hæstu opinberu gjöldin Reykjanesumdæmis. Hann greiddi rúmar 48 milljónir.

Þorsteinn Már Baldvinsson greiðir mest á Norðurlandi eystra

Þorsteinn Már Baldvinsson útgerðarmaður á Akureyri greiddi hæst opinber gjöld allra á Norðurlandi eystra á síðasta ári. Hann greiddi tæpar 170 milljónir í skatt. Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, kemur á eftir honum með rúmar 33 milljónir. Þar á eftir kemur Erna Björnsdóttir.

Helga Guðmundsdóttir greiðir hæst gjöld í Reykjanesumdæmi

Helga S. Guðmundsdóttir greiðir hæst opinber gjöld allra í Reykjanesumdæmi. Hún greiðir tæpar 116 milljónir í skatta. Á eftir henni kemur Þorsteinn Hjaltested með rúmar 77 milljónir. Þar á eftir kemur Magnús Jónsson í Garðabæ með 62 milljónir.

Sjá næstu 50 fréttir