Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Árni Sæberg skrifar 12. ágúst 2026 16:26 Skúli Hrafn Harðarson tekur við starfi framkvæmdastjóra Íslandssjóða í lok september. Íslandsbanki Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Skúli Hrafn komi til Íslandssjóða frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), þar sem hann hafi frá árinu 2022 gegnt starfi sjóðstjóra innlendra verðbréfa hjá stærsta lífeyrissjóði landsins. Áður hafi Skúli Hrafn starfað hjá Kviku eignastýringu á árunum 2015 til 2022, þar sem hann hafi leitt meðal annars hlutabréfastýringu félagsins og verið í forsvari fyrir fagfjárfestasjóði. Þar á undan hafi hann verið forstöðumaður eigin viðskipta hjá MP banka og hafið feril sinn hjá Saga Capital fjárfestingarbanka árið 2007. Skúli Hrafn hafi jafnframt setið í fjárfestinga- og hagsmunaráðum ýmissa rekstrarfélaga. Skúli Hrafn hafi lokið námi í hagfræði með lögfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands árið 2007 og hlotið löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2011. Hann muni hefja störf hjá Íslandssjóðum í lok september. „Hjá Íslandssjóðum starfar öflugt teymi með mikla reynslu og skýran metnað til að sækja fram á íslenskum sjóðastýringarmarkaði. Á þeirri vegferð er mikill styrkur fólginn í því að þekkja markaðinn frá báðum hliðum. Skúli Hrafn kemur til okkar frá einum stærsta fjárfesti landsins og býr því yfir djúpum skilningi á sjónarmiðum fagfjárfesta og þeim kröfum sem þeir gera til öflugrar sjóðastýringar. Sú reynsla, ásamt þeim sterka grunni sem þegar er til staðar hjá Íslandssjóðum, styrkir stöðu okkar til að sækja enn frekar fram. Við hlökkum mikið til samstarfsins og þess að byggja áfram upp Íslandssjóði með Skúla Hrafn í brúnni,“ er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, stjórnarformanni Íslandssjóða.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Vistaskipti Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira