Viðskipti innlent

FME frestar yfirtöku á Alfesca vegna kröfu um hluthafafund

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að fresta gildistíma á yfirtökutilboði Lur Berri á Alfesca. Ástæðan er krafa nokkurra hluthafa um að hluthafafundur verði haldinn til að ræða tilboðið.

Í frétt um málið á vefsíðu FME segir að eftirlitinu hafi borist beiðni af hálfu Rekstrarfélags Nýja Kaupþings banka hf. f.h. sjóðanna Kaupthing ÍS-5, Kaupþing ÍS-15 og ICEQ verðbréfasjóðs, Gildi-Lífeyrissjóðs, Sameinaða Lífeyrissjóðsins og Stafir lífeyrissjóðs, um að framlengja gildistíma yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland ehf., dags. 25. júní 2009, en það rann út í gærdag. Tilefni beiðnar ofangreindra aðila er að þeir hafa krafist hluthafafundar í þeim tilgangi að ræða yfirtökutilboðið.

Í tengslum við yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. hafa verið unnin tvö verðmöt sem gefa ólíka mynd af tilboðinu. Annars vegar var verðmat unnið af Saga Capital sem telur tilboðsgengi Lur Berri Iceland ehf. (kr. 4,5 per hlut) til hluthafa Alfesca hf. sanngjarnt.

Hins vegar var verðmat unnið af IFS Ráðgjöf ehf. sem telur verðmæti hvers útistandandi hlutar í Alfesca hf. vera kr. 8,0 per hlut. Meðal annars á að ræða þessi verðmöt á fundinum sem ofangreindir aðilar hafa krafist.

Fjármálaeftirlitið telur gildar ástæður vera fyrir því að framlengja gildistíma tilboðs. Yfirtökutilboðið verður framlengt um 18 daga og beinir Fjármálaeftirlitið því til Alfesca hf. að boða til hluthafafundar við fyrsta tækifæri. Fjármálaeftirlitið áskilur sér rétt til þess að framlengja fyrrgreindan frest ef tafir verða á fundarboði til hluthafa.

Yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. rennur því út kl. 16.00 þann 17. ágúst nk. Fjármálaeftirlitið beinir því til Alfesca hf. að birta upplýsingar um fyrirhugaðan hluthafafund opinberlega eins fljótt og auðið er.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×