Fleiri fréttir

Kólnun á fasteignamarkaði hafin

Velta síðustu fjögurra vikna er tuttugu prósentum minni en á sama tíma í fyrra. Sérfræðingar spá lækkun raunverðs á árinu.

Fjármagnstekjur veikur hlekkur

„Ég hef vakið á því athygli við umræður á Alþingi að óvissa væri í fjárlagagerðinni. Það er matið á fjármagnstekjuskattinum og tekjum fyrirtækja,“ segir Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis.

Hagnaður yfir árið en tap á fjórðungnum

Flugrekstrarsamstæðan AMR, móðurfélag American Airlines, stærsta flugfélags Bandaríkjanna, tapaði 69 milljónum dala, jafnvirði 4,5 milljörðum króna, á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs.

Tilnefningar streyma inn

Á morgun rennur út frestur til að tilnefna vefi til Íslensku vefverðlaunanna 2007. Að sögn Þórlaugar Ágústsdóttur, formanns Samtaka vefiðnaðarins (SVEF), hafa tugir tilnefninga þegar borist.

Skype-milljarðamæringur kaupir Nyhedsavisen

Morten Lund, sem þénaði milljarða þegar Skype var selt til Ebay árið 2005, hefur keypt 51% hlut af Baugi Group í Dagsbrun Media Fond sem gefur út Nyhedsavisen í Danmörku og Bosto Now í Bandaríkjunum.

Bréf í Kauphöll þokast upp á við

Við lok dags í Kauphöllinni hafði Úrvalsvísitalan þokast upp á við um 0,03 prósent. Bakkavör Group hækkaði mest allra eðaum 2,56 prósent og Icelandair fór upp um 1,87 prósent. Þá hækkaði Exista, sem er í eigu svokallaðra Bakkabræðra líkt og Bakkavör, um 1,68 prósent.

Jón Ásgeir einn áhrifamesti maður dansks fjölmiðlaheims

Jón Ásgeir Jóhannesson er þriðji valdamesti maðurinn í dönskum fjölmiðlaheimi. Þetta er álit valnefndar sem tók saman lista yfir 200 valdamikla einstaklinga í fjölmiðlageiranum þar í landi. Jón Ásgeir, starfandi stjórnarformaður Baugs sem á danska fríblaðið Nyhedsavisen. Listinn er birtur í tímariti danskra blaðamanna, Journalisten.

Verðbólga eykst í Bandaríkjunum

Verðbólga jókst talvert í Bandaríkjunum í fyrra samanborið við 2006. Hún mældist 4,1 prósent en var 2,5 prósent í hitteðfyrra og hefur ekki hækkað jafn snarlega á milli ára síðan árið 1990. Mestu munar um verðhækkanir á matvöru og raforku.

Hagnaður JP Morgan niður um 34 prósent

Hagnaður bandaríska bankans JP Morgan nam 2,97 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rétt rúmra 194 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 4,53 milljörðum dala á síðasta fjórðungi 2006 4,5 milljörðum dala. Þetta er því 34 prósenta samdráttur á milli ára, sem skýrist að langmestu leyti af afskriftum um á 2,54 milljarða dala á bandarísku undirmálslánasafni bankans.

Spá slaka á atvinnumarkaði

Greiningadeild Glitnis gerir ráð fyrir að síðar á þessu ári sjáist merki um slaka á vinnumarkaði. Töluverður fjöldi erlendra starfsmanna hafi þegar horfð frá Austurlandi eða sé á förum þar sem framkvæmdum vegna stóriðjuuppbyggingar þar er í þann mund að ljúka. Þá er gert ráð fyrir að almennt dragi úr fjárfestingu atvinnuveganna sem einnig muni hafa áhrif á vinnumarkaðinn í ár.

Ekkert lát á útgáfu krónubréfa

Lítið lát er á krónubréfaútgáfu og minnkar bilið milli heildarupphæðar nýrra útgáfa í janúar annars vegar, og bréfa á gjalddaga í mánuðinum hins vegar, hratt þessa dagana.

Mannabreytingar hjá Tryggingamiðstöðinni

Sigríður Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og fjárfestinga hjá Tryggingamiðstöðinni hf., hefur sagt starfi sínu hjá félaginu lausu. Sigríður mun láta af störfum um mánaðamótin janúar/febrúar nk. þegar ársuppgjör félagsins liggur fyrir.

Úrvalsvísitalan hækkar í alþjóðlegri niðursveiflu

Gengi bréfa í Kaupþingi, Existu, Atorku og Bakkavör hefur hækkað í dag en önnur félög hafa lækkað í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Önnur félög hafa hins vegar lækkað, mest í Icelandic Group en gengi félagsins hefur fallið um tæp 4,9 prósent á hálftíma.

Verðfall víða um heim

Talsverður taugatitringur hefur verið á evrópskum hlutabréfum í dag eftir fall á bandarískum mörkuðum í gær og asískum í morgun. FTSE-vísitalan í Bretlandi féll um rúm þrjú prósent skömmu eftir upphaf viðskiptadagsins en jafnaði sig fljótlega. Hún hefur það sem af er dags lækkað um 0,78 prósent.

Dreamliner ekki í loftið í bráð

Flugvélasmiðir hjá Boeing eiga í vandræðum með smíði Boeing 787 Dreamliner-þotunnar, nýjustu farþegavélar fyrirtækisins, og gæti svo farið að afhending hennar dragist frekar á langinn. Þetta fullyrða dagblöðin Financial Times og Wall Street Journal í dag.

Mikilvægt að halda rónni í erfiðu árferði

Grunnstaða fjármálafyrirtækjanna er góð, segir forstjóri FME. Búast má við meiri sveiflum í afkomu sparisjóða en banka. Verkefnin fram undan snúa að fjármögnun og samþættingu.

Íhuga flutning höfuðstöðva

Forsvarsmenn Kaupþings hafa íhugað kosti þess að snúa yfirtökunni á hollenska bankanum NIBC við. Í stað þess að Kaupþing taki NIBC yfir tæki NIBC Kaupþing yfir. Það myndi þýða að höfuðstöðvar Kaupþings yrðu í Hollandi, Evrópski seðlabankinn yrði bakhjarl bankans og uppgjör gert í evrum.

Vogun vinnur, vogun tapar

Mikil lækkun á gengi íslenskra hlutabréfa undanfarna mánuði hefur komið mörgum mjög á óvart. Þegar þetta er skrifað hefur gengi Úrvalsvísitölunnar lækkað um 40% frá því að hún náði hámarki í júlí á síðasta ári. Engan veginn virðist útilokað að hún eigi enn eftir að lækka talsvert.

Ár skuldabréfanna er runnið upp

Undanfarin ár hafa sjónir manna nánast eingöngu beinst að hlutabréfamarkaði, á meðan færri hafa gefið skuldabréfamarkaði gaum. Margar skýringar kunna að liggja þar að baki. Ein er þó líklega sú að ekki hefur verið sami dýrðarljómi yfir skuldabréfum og hlutabréfum, enda eru sveiflur á skuldabréfamarkaði ekki jafn tíðar og á hlutabréfamarkaði og þar af leiðandi er jafnan minni áhætta af fjárfestingu í skuldabréfum.

Gæti orðið dýrt að halda bréfunum

„Hvert veltumetið á fætur öðru hefur verið slegið það sem af er ári. Gengi bæði verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað töluvert. Það er mjög sjaldgæft að við sjáum svona miklar og kröftugar hreyfingar og við höfum orðið vitni að síðustu vikur,“ segir Hjördís Vilhjálms­dóttir, hagfræðingur hjá greiningu Glitnis.

Bandaríkin féllu

Talsvert fall varð á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar urðu mjög uggandi um að samdráttarskeið sé í þann mund að renna upp.

Skellur á gengi Flögu

Gengi fjölmargra félaga í Kauphöllinni tók dýfu í dag, mest í Flögu sem féll um 13,85 prósent. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengi bréfanna fellur en markaðsvirði félagsins hefur fallið um rúm 34 prósent frá áramótum.

Mettap hjá Citigroup

Citigroup, stærsti banki Bandaríkjanna, tapaði 9,83 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 631 milljarðs íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Þetta er mesta tap í sögu þessa 196 ára gamla banka.

Fyrstu Uridashi-skuldabréfin í krónum

Alþjóðabankinn tilkynnti í morgun um útgáfu svokallaðs uridashi-bréfs í krónum að nafnvirði ríflega 1,3 milljarðar kr., og er útgáfan til tveggja ára.

Bland í poka í kauphöllinni

Markaðurinn fór fremur rólega af stað í morgun og hefur úrvalsvísitalan lækkað um 0,13% í fyrstu viðskiptum dagsins.

Óvissuþættir í þjóðhagsspá fleiri en oft áður

Áætlað er að hagvöxtur á síðasta ári hafi verið um 2,7 prósent sem er tveimur prósentustigum meira en gert var ráð fyrir í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins í haust. Ráðuneytið birtir í dag endurskoðaða þjóðhagsspá fyrir árin 2007-2009 og segir óvissuþætti í henni nokkru fleiri en áður.

Citigroup ætlar að segja upp 20.000 starfsmönnum

Citigroup, stærsti banki Bandaríkjanna, ætlar sér að segja upp um 20.000 starfsmönnum sínum. Jafnframt þarf bankinn nýtt fjármagn upp á um 600 milljarða króna inn í reksturinn.

Salan undir væntingum hjá Burberry

Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að sölutekjur á vörum undir merkjum bresku verslanakeðjunnar Burberrys hafi aukist um 14 prósent á milli ára á síðasta fjórðungi nýliðins árs og væntingar um að tekjur aukist um 20 prósent á seinni hluta ársins, þá er það undir spám stjórnenda, að því er Associated Press-fréttastofan greinir frá.

FL Group semur um viðskiptavakt

FL Group hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka og Glitni banka um að annast viðskiptavakt með hlutabréf í FL Group fyrir eigin reikning félaganna.

Átján lækkuðu, tvö hækkuðu

Átján félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Icelandic Group lækkaði mest, um 5,63 prósent og Fl Group fylgdi í kjölfarið með lækkun upp á 5,42 prósent. SPRON lækkaði einnig, um 4,36 prósent og Kaupthing um 3,87 prósent svo eitthvað sé nefnt.

Skipti áfram með í baráttunni um slóvenska símann

Einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Skipti annars vegar og fjárfestingarsjóðina Bain Capital og Axos Capital hins vegar, sem buðu sameiginlega í félagið, um kaup á Telekom Slovenije.

FL Group á leið á botninn

Gengi FL Group stendur nú í 10,81 krónur á hlut. Það hefur ekki farið niður fyrir 11 krónur á hlut síðan 10. janúar 2005, en þá var það 10,35. FL Group lækkaði mest allra félaga í vikunni sem leið í Kauphöllinni. Félagið lækkaði um 12,7% en Exista fylgdi hart á hæla þess með 11,8% hækkun.

Sjá næstu 50 fréttir